Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
Fréttir
DV
Keflavík, Njarðvlk, Hafnir:
Mikil átök hjá sjálfstæðis-
mönnum á Suðurnesjum
Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjum;
Forseti bæjarstjómar Njarðvíkur,
Ingólfur Báðarson, hefur ákveðið að
draga sig í hlé frá pólitík og mun
ekki gefa kost á sér á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn-
arkosningunum í nýja sveitarfélag-
inu Keílavík, Njarövík, Hafnir í vor.
forseti bæjarstjómar Njarðvíkur þvingaður til að draga sig í hlé
í prófkjöri flokksins í Njarðvík fyrir
skömmu fékk hann flest atkvaeði í
fyrsta sætið. Samkvæmt heimildum
DV var hann þvingaður til að taka
þessa ákvörðun - að öðrum kosti
yrði hann settur neðarlega á lista
flokksins.
Jónína Guðmundsdóttir, bæjar-
fulltrúi í Keflavík, verður heldur
ekki á lista flokksins. Hún gaf kost á
sér í efstu sætin en uppstillingar-
nefnd hafnar henni hvað þau varðar
og sama er að segja um Kristbjöm
Albertsson, bæjarfulltrúa í Njarðvík.
Hann fann ekki heldur náð fyrir aug-
um nefndarmanna.
Eftir öraggum heimildum DV verð-
ur sú tillaga, sem uppstillingamefnd
flokksins leggur fram á fulltrúaráðs-
fundi í kvöld 22. mars, samþykkt en
þar er Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Keflavík, í fyrsta sæti. Jónína Sand-
ers verður í öðra sæti en hún hlaut
bindandi kosningu í prófkjöri flokks-
ins í Njarðvík. I þriðja sæti veröur
Björk Guðjónsdóttir, bæjarfulltrúi í
Keflavík, og Garöar Oddgeirsson,
bæjarfuUtrúi í Keflavík, fær fjórða
sætið. Njarðvíkingurinn Böðvar
Jónsson verður í flmmta sæti en
hann lenti í fjórða sæti í prófkjörinu
í Njarðvík. Viktor Kjartansson, vara-
bæjarfulltrúi í Keflavík, verður 1
sjötta sætinu.
Loðnuveiðin:
Hólmaborgin
nálgast 50
þúsund tonnin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Afli Hólmaborgarinnar frá Eski-
firði á loðnuvertíðinni nálgast nú
óðum 50 þúsund tonnin og hefur eitt
skip aldrei veitt’svona mikla loðnu á
einni vertíð. Alls fengu 45 skip út-
hlutað loðnukvóta á vertíðinni og
hafa þau öll nema fjögur komið með
afla að landi.
Heildarveiðin á vertíðinni nemur
nú rétt um 900 þúsund tonnum en
heildarkvótinn er tæplega 1100 þús-
und tonn. Ljóst er að vertíðin, sem
senn lýkur, er ein sú albesta frá upp-
hafi og munar þar mestu um að sum-
ar- og haustvertíðin var óvenju góð.
Það vekur athygli að 10 aflahæstu
skipin á vertíðinni em með samtals
um 360 þúsund tonn eða um 40% af
heildaraflanum. Þar er Hólmaborgin
sem fyrr sagði aflahæst með 48.400
tonn, Sigurður frá Vestmannaeyjum
er með 41.900 tonn, Víkingur, Akra-
nesi, 40.300 tonn, Börkur, Neskaup-
stað, 39.800 tor.a, Júpiter, Þórshöfn,
38.200 tonn, Jón Kjartansson Nes-
kaupstað 34.700 tonn, Guðmundur,
Reykjavík, 32.400 tonn, Örn, Kefla-
vík, 31.500 tonn, Bjami Ólafsson,
Akranesi, 30.800 tonn og Höfrungur,
Akranesi, 28.900 tonn.
Afli Hólmaborgarinnar frá Eskifirði á loðnuvertíðinni nálgast nú óðum 50 þúsund tonnin og hefur eitt skip aldrei
veitt svona mikla loðnu á einni vertíð.
í dag mælir Dagfari ___________
~ Fjölskyldumálin
Þá eru fylkingamar tvær í borgar-
málunum búnar að stilla upp list-
um sínum. Og það sem meira er:
listarnir eru búnir að finna út
hvaða málefni verða efst á baugi í
kosningabaráttunni. R-listinn var á
undan með sína málefnaskrá og
þar segir að höfuðáhersla verði
lögð á tvennt: atvinnumálin og fjöl-
skyldmáhn. D-listinn, listi Sjálf-
stæðisflokksins, fór alla leið austur
í Landsveit til að leggja á ráðin um
málefni sín og útkoman varð sú að
listinn mun leggja höfuðáherslu á
tvennt: atvinnumálin og fjöl-
skyldumáhn.
Af þessu er ljóst að atvinnu Reyk-
víkinga verður að mestu borgið eft-
ir kosningar. Það veröur sama
hvor hstinn ber sigur úr býtum.
Báðir munu leysa atvinnumáhn
með því að skapa fleiri atvinnu-
tækifæri og raunar hefur Árni Sigf-
ússon lýst því yfir að hann vilji enn
fremur skapa fleiri vel launuð störf
í borginni. Það eru gósentímar
framundan og atvinnuleysi mun
hverfa eins og dögg fyrir sólu þegar
ný borgarstjórn hefur verið kosin.
Hitt er þó meira um vert að R-
hstinn mun leggja áherslu á íjöl-
skyldumáhn. Það sama mun D-
hstinn gera. Fjölskyldumál hafa
greinilega verið afskipt í borgar-
stjórn fram að þessu og kominn
tími til að taka til hendinni í þeim
málaflokki. Ekki er alveg ljóst
hvernig stjórnmálamennirnir og
borgarfulltrúar munu skipta sér
af fjölskyldumálunum og aldrei aö
vita nema heimilin í borginni geti
átt von á borgarstarfsmönnum inn
á gafl til að leysa flölskyldukrís-
urnar. Að minnsta kosti verður
borgarfulltrúum annt um fjöl-
skyldurnar í borginni ef þeir ætla
að efna kosningaloforðin.
Borgarfulltrúar munu veita ráðg-
jöf í hjónabandsástum, ganga á
mhli í heimiliserjum, leysa fjár-
hagsvandræði og taka að sér bar-
nagæslu ef hjón eru aðframkomin
af ómegð. Fjölskyldumar verða í
fyrirrúmi og gott ef borgarstjórn
mun ekki setja upp hjónabands-
miðlun til að bjarga fjölskyldum
sem em á vergangi vegna skilnaöa
eða einstæöingsskapar. Þannig má
einnig stýra saman fólki með
flokkspólitískar hneigðir og koma
kjörskrámar og merkingar flokk-
anna á stuðningsmönnum sínum
sér vel í þeim efnum.
R-hstinn er ágætlega flölskyldu-
tengdur að því leyti að efstu menn
hstans eru flestir giftir stjórnmála-
mönnum með reynslu. Má þar
nefna að Sigrún Magnúsdóttir er
gift Páli á Höllustöðum, formanni
þingflokks framsóknarmanna, og
Guðrún Ágústsdóttir er gift Sva-
vari Gestssyni, þingmanni og fyrr-
um formanni Alþýðubandalagsins.
Þar era fjölskylduböndin sterk inn-
an flokkanna og kannski ætlar
þetta fólk aö leysa fjölskyldumál
annarrra með því að hvetja til gift-
inga hjá flokkslega tengdu fólki til
að herða og styrkja þau tengsl sem
þurfa að vera í flokkunum til að
völdunum verði náð.
Borgarstjóraefni R-hstans, Ingf
björg Sólrún Gísladóttir, er 'sögð
vel gift og hefur raunar lagt út í
kosningabaráttuna með ummæh
eiginmanns síns að leiðarljósi: auk-
ast nú enn vandræðin, kerling.
Ami Sigfússon, borgarstjóraefni
D- hstans, er sömuleiðis vel giftur
eins og fram hefur komið á mynd-
um sem birtar era af nýja borgar-
stjóranum í faðmi fjölskyldunnar
og þá má einnig minna á að Inga
Jóna Þórðardóttir er gift formanni
þingflokks sjálfstæðismanna, Geir
Haarde, og þannig era tengslin inn
í þingflokkana vel tryggð - hvor
hstinn sem valinn verður.
Báðir munu hstarnir sjá til þess
að biðhstar hverfi á dagvistarstofn-
unum og sjálfstæðismenn hafa lagt
sérstaka áherslu á aö þeir hafi loks-
ins áttað sig á, eftir fimmtiu ára
meirihluta, að dagvistun bama
skipti máh og þeir hafa enn fremur
uppgötvað að nú þurfi að einsetja
skólana. Þetta uppgötvuðu þeir eft-
ir að Markús hætti og Ámi tók við,
sem sýnir hversu mikill léttir það
hlýtur að vera fyrir barnafjölskyld-
umar í Reykjavík að skipt er um
borgarstjóra.
Af öhu þessu sést að það eru
skörp skfl á milli flokkanna sem í
boði era. Annars vegar era at-
vinnumáhn og fjölskyldumálin sett
á oddinn og hins vegar era atvinnu-
máhn og tjölskyldumáhn sett á
oddinn. Á þessu tvennu eru and-
stæðumar augljósar og fer ekki á
milli mála að þörf er á tveim fram-
boðum sem skerpa hnumar.
Dagfari