Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
ViðskiptL
Þorskur á fiskm.
krAg Þr Mí Fi Fö Má Þr
Þingvísit. hiutabr.
Má Þr Mi Fi Fö Má
Alverð erl.
$/tunna Má Þr M| ftj fö
Dollarinn
MS Þr Mi
Fö Má
Kauph. í New York
3830v-
I j
Jones
Þorskurlækkar
Þorskur á fiskmörkuðum hefur
verið að lækka í verði. Meöal-
verðið í gær var rúmlega 90 krón-
ur kílóið en var 102 krónur sl.
miðvikudag.
Þingvísitala hlutabréfa lækkaði
í gær um 2% niður í 804 stig.
Ástæðan er einkum lækkun
hlutabréfa í Eimskip um 11%
þegar gengi þeirra fór úr 4,16 í
3,70.
Frá sl. þriðjudegi til fóstudags
hækkaði staðgreiðsluverð áls um
60 dollara tonnið. í gærmorgun
var verðið svipaö, eða um 1320
dollarar tonnið, og hefur ekki
verið hærra sl. 20 mánuði.
Dollarinn hefur verið á uppleið
síðan á funmtudag. Sölugengið
var 72,53 krónur í gærmorgun.
Dow Jones hlutabréfavísitalan
í New York lækkaði nokkuð í gær
frá því fyrir helgi en sveiflur voru
átölunniísíðustuviku. -bjb
Innanlandsflug Flugleiða og Islandsflugs 1993:
Ólíkt höfðust
f lugfélögin að
Ólíkt höfðust þau að í innanlands-
fluginu á síðasta ári, Flugleiðir og
íslandsflug. Flugleiöir töpuðu 125
milljónum króna á innanlandsflug-
inu, sem er 70% af tapi ársins, en
íslandsflug hagnaðist um á annan
tug milljóna króna samkvæmt heim-
ildum DV. Farþega- og fraktflutning-
ar minnkuðu hjá Flugleiðum milli
ára um allt að 4% en jukust hjá ís-
landsflugi um allt að 10%. Sætanýt-
ing í innanlandsflugi Flugleiða
versnaði á síðasta ári um 2 prósentu-
stig frá 1992 en batnaði hjá íslands-
flugi um svipað hlutfall.
Tap á innanlandsfluginu segja for-
ráðamenn Flugleiða einkum vera
vegna samdráttar í efnahagslífinu og
aukinnar samkeppni frá einkabíln-
um og öðrum flugfélögum. Á aðal-
fundi minntust forstjóri og stjórnar-
formaður ekkert á vélakostinn sem
ástæðu fyrir verri aíkomu en sæta-
nýting á minni áætlunarstaði meö
nýju Fokkervélunum hefur ekki ver-
ið góð. Flugleiðir fljúga til 9 staða á
landinu með þremur 50 sæta Fokk-
ervélum. Upphaflega voru allar fjór-
ar vélarnar notaðar í innanlands-
flugið en á síðasta ári var þeim fækk-
að um eina þegar ein vél var lánuð
til Austrian Airlines.
Af þessum 9 áætlunarstöðum Flug-
leiða innanlands er nær 90% flugsins
til fjögurra staða: Akureyrar, ísa-
fjarðar, Vestmannaeyja og Egils-
staða. Forráðamenn Flugleiða segj-
ast ætla að leggja mesta áherslu á
þessa staði en aðrir áætlunarstaðir
eru Hornafjörður, Húsavík, Sauðár-
krókur, Patreksfjörður og Þingeyri.
íslandsflug berst núna fyrir því að
fá flugleyfi til tveggja þessara staöa:
Patreksfjaröar og Sauðárkróks.
Fram hefur komið í DV að helsta
breyting á áætlun Flugleiða í ár verði
til Sauðárkróks. í sumaráætlun er
reiknað með flug: nórum sinnum á
Farþegar í innanlandsflugi
hjá Flugfepbfi og íslandsflugi 1993 —
\ . ,r
Flugleiðir
249.000 farþeg^
3% fækkun
viku til Sauðárkróks með Fokker en
fjórum sinnum með vélum Flugfé-
lags Norðurlands, FN. Þar sem ís-
landsflug berst fyrir því að sérleyfi
Flugleiða til Sauðárkróks verði af-
numið fmnst forráöamönnum félags-
ins óeðlilegt að Flugleiðir geti ráð-
stafað leiðinni til annars flugfélags
þótt FN sé í 35% eigu Flugleiða. Þá
hafa bæjaryfirvöld á Sauðárkróki
gert athugasemdir við áætlunina og
óskað eftir því við samgönguráðu-
neytið að flugleyfi til bæjarins verið
opnað fleiri félögum en Flugleiðum.
Forráðamenn Flugleiða gera sér
vel grein fyrir erfiðleikum innan-
landsflugsins og á aðalfundinum sl.
fimmtudag viðraði Hörður Sigur-
gestsson stjórnarformaður þá hug-
mynd að stofna sjálfstætt fyrirtæki
um innanlandsflugið. Leifur Magn-
ússon, yfirmaður innanlandsflugs
Flugleiða, sagði við DV að þessi leið
væri ein af mörgum sem gæti komið
til greina.
Barist um Sauðárkrók
íslandsflug flýgur núna með tvær
19 sæta Dorniervélar og á von á 19
sæta skrúfuþotu í næsta mánuði. Á
síðasta ári var félagið að auki með
tvær 15 sæta Beechcraftvélar en þær
hafa verið seldar til Kanada. Félagið
flýgur til Bíldudals, Flateyrar,
Hólmavíkur, Gjögurs, Siglufjarðar,
Egilsstaða, Norðfjaröar og Vest-
mannaeyja.
Að sögn Sigfúsar Sigfússonar sölu-
stjóra er mest barist fyrir því að fá
flugleiðina til Sauðárkróks. íslands-
flug hefur margsinnis þurft að lenda
á Sauðárkróki meö farþega til Siglu-
fjaröar og er með hugmyndir um að
sameina flug til þessara tveggja
staða. „Við erum með minni vélar
og getum nýtt þær betur. Auk þess
getum við sett upp þá tíðni flugferða
að f ólk á þessum minni stöðum getur
stólað á flugsamgöngur," sagöi Sig-
fús við DV.
-bjb
Gleðitíðindi fyrir íslenska álfélagið:
Áfram spáð háu álverði
Forráðamenn íslenska álfélagsins
í Straumsvík geta verið glaðir um
sinn því álverð á erlendum mörkuð-
um hefur verið að hækka að undan-
fómu. Áfram er spáð háu verði en
álverð hefur ekki verið jafn hátt í
nær tvö ár.
Frá mánudegi til föstudags í síð-
ustu viku hækkaði þriggja mánaða
verð um 70 dollara tonnið. Stað-
greiðsluverð hækkaði svipað. Hækk-
unin gerist þrátt fyrir að álbirgðir
hafi aukist mikið. Hins vegar hefur
eftirspurn eftir áli aukist mikið síð-
ustu misseri og sífellt meira notaö
af þessu hráefni í iðnaðarfram-
leiðslu.
Enn hækkar fiskverð
Okkar stærsta útflutningsvara,
fiskurinn, heldur áfram að hækka í
verði erlendis. Á tvemur vikum hef-
ur t.d. karfi í gámasölu í Englandi
hækkað um 75% og ufsi um 90%. Á
fiskmörkuöum innanlands hækkuðu
flestar tegundir í verði milli vikna
nema hvað ýsan lækkaði lítillega.
í síðustu viku voru 377 tonn seld
úr gámum í Englandi fyrir 56 millj-
ónir króna. Mest var selt af ýsu. Þrír
togarar seldu í Bremerhaven í
Þýskalandi um 445 tonn fyrir 50
mUljónir króna. Uppistaða aflans var
karfi. Togaramir vom Viðey RE,
Drangur SH og Sólberg ÓF en sá síð-
asttaldi fékk hæsta meðalverðiö, 122
krónur kílóið.
-bjb
Útflutningsafurðir íslendinga
395< \\
L
OO J
375
D J F M
rjiiiinifflniw
50
mtf________a____
T F M
DV
Vatnsfélagið ger-
irdreifingar-
samning í Banda-
ríkjunum
Vatnsfélagið á Suðurnesjum
undirbýr núna af fullum krafti
framleiðslu vatns sem hefja á í
sumar. Búið er að gera samning
við bandarískt fyrirtæki um
dreifingu vatns í Bandaríkjun-
um. Að sögnFriðfinns Skaftason-
ar hjá Atvinnuþróunarfélagi
Suðurnesja er stefht aö fram-
leiðslu 6 milljón vatnslítra fyrsta
árið á 114 litra plastflöskum, þ.e.
4 milljónir af flöskum,
Vatnsfélagið er einkum í eigu
Eignarhaldsfélags Suðumesja,
Atvinnuþróunarfélags Suður-
nesja og sex einstaklinga. Kefla-
víkurbær hefur veríð félagjnu
ínnan handar með útvegun hús-
næðis og er ábyrgðaraðili. Hluta-
féð er um 50 milljónir króna og
stefnt að aukningu þess. Fram-
leiöslan mun fara fram við
Smiðjuvelli í Keflavík þar sem
nú er Trésmiðja Ella Jóns. Um
10-15 manns munu fá atvinnu hjá
Vatnsfélaginu við fyrstu vatns-
verksmiðjuna á Suðurnesjum.
Lítill áhugi á
hlutabréfum
Níu fyrirtæki á hlutabréfa-
markaðnum hafa haldið aöal-
fundi sína fyrir síðasta ár og sjö
þeirra skilað hagnaði. Aðeins
Flugleiðir og Þróunarfélagið hafa
sýnt tap á rekstrinum. Þrátt fyrir
þessar niðurstöður hafa viðskipti
með hlutabréf verið mjög lítil frá
því aöalfundirnir hófust. Dræm
viðskipti eru helst skýrð með því
að litlar breytingar hafa orðið á
stjórnum hlutafélaga og svipuð
aflcoma fyrirtækja milli ára. Þá
er talið að fjárfestar séu ekki
stemmdir fyrir hlutabréfum
þessa dagana heldur erlendum
verðbréfum.
í síðustu viku námu hlutabréfa-
viðskipti rúmum 2 milljónum
króna. Mest var keypt af hluta-
bréfum íslenska útvarpsfélags-
ins, eða fyrir 870 þúsund krónur.
Næst komu hlutabréf í Marel fyr-
ir 450 þúsund krónur.
Hagnaður hjá
Hampiðjunni
Aðalfundur Hampiðjunnar fyr-
ir árið 1993 var haldinn sl. fóstu-
dag. Þar kom fram að afkoman
var svipuð og árið 1992, eða hagn-
aður upp á 41 miHjón króna, einni
milljón meira en ’92. Á fundinum
var lagður fram samstæðureikn-
ingur Hampiöjunnar og dóttur-
fyrirtækis í Portúgal. Rekstrar-
tekjur þessara fyrirtækja voru
um 850 milljónir á síðasta ári,
11% meira en árið áður.
í árslok var eigið fé Hampiöj-
unnar um 690 railljónir króna og
eiginflárhlutfallið 49%. Tillaga
stjórnar um að greiða út 7% arð
'til hluthafa var samþykkt á aöal-
fundinum. Stærstu hluthafar í
Hampiðjunni eru Sigurður Egils-
son og Venus hf.
Ennlækkavextir
Seðlabankans
Vaxtabreytingadagur var í gær.
Bankar og sparisjóöir breyttu
vöxtum sínum lítið sem ekkert.
Þá er veriö að tala um helstu
gerðir út- og innlána en vextir
þeirra hafa lítið breyst frá 21. jan-
úar sl. Hins vegar lækkaðí Seðla-
bankinn vexti sína við innláns-
stofnanir í gær.
Vextir innstæðubréfa lækkuðu
um allt að 0,25 prósentustig og
ávöxtun i endurhverfum verð-
bréfakaupum lækkaði um 0,20
prósentustig. Vextir þessara
verðbréfa hafa lækkað um allt að
hálft prósentustig i marsmánuði
hjá Seðlabankanum.
-bjb