Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
7
Fréttir
Hagfræðingur Alþýðusambands íslands:
Þurfum 22 þúsund
störf til aldamóta
- fiskvinnslustefhu 1 stað fiskveiðistefnu
Húsavík:
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má segja að það sem af er
þessuári hafi veriðágættatvinnu-
ástand hjá okkur og full vinna i
fiskvinnslunní" segir Tryggvi
Finnsson, framkvæmdastjóri ,
Fiskiðjusamlags Húsavíkur.
Togarinn Kolbeinsey, sem sér
fyrirtækinu fyrá mestu hrácfni,
er nú að veiða fyrir siglingu og
mun selja eriendis um páskana
eins og verið hefur undanfarin
ár. Þegar sú staða hefur komið
upp einhverra hluta vegna að tog-
arinn hefurekki fært nóg hráefni
að landi fyrir vinnsluna hefur
verið gripið til þess ráðs að vinna
„Rússafisk'*.
„Við höfum keypt þann fisk
svona eftir hendinni, við erum
búnir að fá um 200 tonn frá ára-
mótum og þessi fiskur hefur
bjargað miklu fyrir okkur í
rinnslunni," segir Tryggvi.
„Við þurfum að skapa 22 þúsund
störf til aldamóta til að takast á við
atvinnuleysið nú og væntanlega
fjölgun landsmanna á komandi
árum. Atvinnuleysið verður óbreytt
til aldamóta ef ekkert verður að
gert.“ Þetta fullyrðir Gylfi Arn-
bjömsson, hagfræðingur hjá Al-
þýðusambandi íslands.
Gylfi bendir á að miðað við 2 pró-
senta hagvaxtarspá Þjóðhagsstofn-
unar fyrir næstu 5 árin sé gert ráð
fyrir að störfum fjölgi ekki nema um
1 prósent á ári. Það sé nokkurn veg-
inn sem nemi íbúafjölguninni.
„Þjóðhagsstofnun spáir því að á
þessu ári verði 7 þúsund án atvinnu.
Ef við tökum þann fjölda starfa sem
voru í boði 1988 og framskrifum þann
fjölda miðað við íbúafjölgun þá hefðu
þurft að vera 135 þúsund störf á
vinnumarkaðnum til að halda í við
íbúafjölgunina. Störfin em hins veg-
ar ekki nema rúmlega 122 þúsund.
Þetta þýðir að það skortir um 13 þús-
und störf miðað við sömu atvinnu-
þátttöku og starfaskiptingu. Mis-
munurinn felst í minni atvinnuþátt-
töku, sérstaklega hjá konum og
námsmönnum. Miðað við sömu for-
sendur þyrftu störfin að vera 144
þúsund um aldamótin og það gefur
okkur vísbendingu um hversu mörg
störf við þurfum að skapa þangað
til, það er 22 þúsund."
Gylfi segir almennu efnahagslegu
skilyrðin, sem Þjóðhagsstofnun
byggir spá sína á, ekki duga. „Við
þurfum að koma hagvexti upp í 4 tíl
6 prósent sem er svipað hagvaxtar-
stig og var hér á á sjöunda og átt-
unda áratugnum. Það er ekki óraun-
hæft markmið en það næst ekki mið-
að við núverandi forsendur."
Á atvinnumálafundi Alþýðusam-
bands íslands í síðustu viku kom
fram sú skoðun að ástæða væri til
að endurskoða fiskveiðistefnuna.
Móta ætti í staðinn fiskvinnslu-
stefnu. „Árið 1972 byggöum við upp
fiskvinnsluna með sérstakri fisk-
vinnsluáætlun. Þá byggðum við upp
hráefnaframleiðslu í fiskiðnaði. Það
var eðlilegt á þeim tíma þegar við
stóðum frammi fyrir aukningu á hrá-
efni. í dag stöndum við í þeim spor-
um að við erum með takmarkað hrá-
efni. Nú er þvi ástæða til að byggja
upp öflugafullvinnslu. Sjávarútvegs-
stefnan, sem var mótuð á þeim tíma
þegar mikið var af hráefni, þarf að
taka mið af þessu."
Gylfi leggur á það áherslu að meira
svigrúm sé til að takast á við vandann
en menn nýta. „Við verðum að breyta
grundvallarforsendum. Hér stefnir í
mikið atvinnuleysi til margra ára.
Það dugir ekki að vísa til hagstæðra
skilyrða, eins og lækkunar á erlend-
um skuldum og vaxtalækkunar, því
það eru þessi hagstæðu skilyrði sem
Þjóðhagsstofnun gengur út frá í sinni
spá og fær út þessa döpru niðurstöðu
að hagvöxtur verði ekki nema 2 pró-
sent.“ -IBS
Krakkarnir í Njarðvík hafa hrifist a> framtaki Dagbjartar Halldórsdóttur sem hefur látið hundinn sinn draga sig á
sleða eftir götum Njarðvíkur i skíðabrekkurnar. Nokkrir hafa reynt að fá foreldra sina til að fá hund á heimilið og
kann þvi svo að (ara að fleiri en Dagbjört ferðist á hundasleða i skíðabrekkurnar við Njarðvík þvi ekki vantar snjóinn.
DV-mynd Ægir Már, Suðurnesjum
Grafarvogur:
Mótmæla bensínstöð
„Við mótmælum þessari bensín-
stöð vegna þess að við teljum að
slysahætta aukist verulega við það
að bensínstöð og sjoppa verði sett
upp hinum megin við götuna. Stað-
urinn verður opinn til klukkan hálf-
tólf á kvöldin og kemur til með að
draga aö sér börn og unglinga sem
þurfa að fara yfir veginn í mikilli
umferð. Samkvæmt aðalskipulagi er
þetta svæði skipulagt sem athafna-
svæði, ekki svæði fyrir verslun og
þjónustu," segir Þorvaldur Björns-
son, formælandi íbúanna.
Tugir íbúa úr Vesturfold, Austur-
fold og Berjarima í Grafarvogi mættu
á grenndarkynningu hjá Borgar-
skipulagi síðdegis á fimmtudag þar
sem tillaga um byggingu sjoppu og
bensínstöðvar við Hallsveg var
kynnt. Mikil andstaða við bygging-
una kom fram á fundinum og ítrek-
uðu íbúamir mótmæli sín. Þeir
höfðu áður skilað inn undirskrifta-
hstum með ríflega 50 nöfnum vegna
bensínstöðvarinnar.
-GHS
Tugir íbúa úr Grafarvogi ítrekuðu andstöðu sina við söluskála á Gylfaflöt við Hallsveg í Grafarvogi á grenndarkynn-
ingu hjá Borgarskipulagi. DV-mynd BG
Akureyri:
Framboðslisti Alþýðuflokks
Félagsfundur í Jafnaðarmannafé-
lagi Eyjafjarðar hefur samþykkt til-
lögu uppstillingarnefhdar um fram-
boðslista Alþýðuflokksins í bæjar-
stjórnarkosningunum á Akureyri
næsta vor. Fyrstu tíu sætin á listan-
um eru þannig skipuð:
1. Gísli B. Hjartarson bæjarfuUtrúi.
2. Hreinn Pálsson lögmaður. 3. Okta-
vía Jóhannesdóttir húsmóðir. 4.
Hanna B. Jóhannesdóttir húsmóðir.
5. Jón I. Cæsarsson póstmaður. 6.
Nói Bjömsson skrifstofumaður. 7.
Alfreð Gíslason framkvæmdastjóri.
8. Margrét Jónsdóttir skrifstofumað-
ur. 9. Finnur Birgisson arkitekt. 10.
Drífa Pétursdóttir verslunarmaður.
-GHS
Húsgagnahöllin
We make IRBj|BH Við búum
the world's IvuhIMH til heimsins
best mattress bestu dýnur
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm skaltu
koma til okkar og prófa hvort þér líkar millistíf, hörð
eða mjúk dýna. Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að
veita þér þær upplýsingar sem þú vilt vita um Serta
dýnuna og til að aðstoða þig við val á réttu dýnunni.
Við eigum Serta dýnumar alltaf til á lager í ýmsum
gerðum og stærðum og getum afgreitt samdægurs
og þeim fylgir allt að 20 ára ábyrgð.
Við búum til heimsins bestu dýnur er hið
viðurkennda vörumerki og auglýsingaslagorð
Serta verksmiðjanna í Ameríku.
Serta verksmiðjumar eru þekktar
fyrir gæði og dýnumar sem við
kaupum frá þeim hafa gormakerfi
og fjaðrabindingu sem er svo einstök
og vönduð í framleiðslu að Serta er
tvímælalaust hreint úrvalsvara
eins og þeir auglýsa. Serta er t.d.
eina breiða rúmdýnan á markaðnum
sem er bundin í báðar áttir sem
þýðir að hjón sem sofa saman á
dýnunni verða lítið vör hvort við
annað þegar annar aðilinn byltir sér.
í Serta dýnunni sameinast
góður stuðningur við
líkamann og frábær þægindi.
Allar dýnumar em með þéttofnum
damask dúk og öll uppbygging
dýnunnar á að tryggja sem lengsta endingu.