Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
Stuttar fréttir
Gíslar við stiflu
Uppreisnarmenn i Surinam
tóku 30 manns 1 gislingu við raf-
orkuversstíflu og hótuðu aö
sprengja hana.
Ályktunundátúin
Bandaríkjastjórn hefur undir-
búið ályktun í Öryggisráðinu um
skoðun á kjarnorkubúnaði Norð-
ur-Kóreu.
Viðari vamH’
Boutros-
Ghali, fram-
kvæmdastjóri
SÞ, lagði til að
loftvarnasvæði
NATO næöi
einnig yftr
Króatíu og Ör-
yggisráðið
framlengdi dvöi sveita SÞ í Bos-
níu um eitt ár.
Friðuráhraðferð
Friðarumleitanir í fyrrum
Júgóslavíu eru nú komnar á góð-
an skrið.
Rættum Krajina
Friöarviðræður Króata og
Serba í Krajina-héraði í Króatíu
munu miöa aö því að koma á
varanlegu vopnahiéi.
Kosovokallar
Forsætisráðherra sjálfskipaðs
lýðveldis Kosovo í Serbíu vill al-
þjóðlegar sveitir á staðinn.
Samdiviðsaksóknara
Eitm af höfuðpaurunum i
Whitewater-hneykslinu ætlar að
lýsa yfir sekt sinni.
William
Perry, varnar-
inálaráöherra
Bandaríkj-
anna,criúkra-
ínu þar scm
hann fékk að
fylgjast með
því þegar
sprengjuoddar voru fjarlægöir af
SS-24 kjarnorkuflaugum.
Áframbarist
Átök blossuðu upp enn á ný í
Suður-Afríku í gær.
Kosið aftur
Kjósa verður aftur í forseta-
kosningunum í E1 Salvador milli
frambjóöenda stjórnarflokksins
og vinstrimanna.
Bróðir í haldi
Humberto Ortega, yfirmaður
hers Nikaragua og bróðir fvrrum
forseta, er í stofufangelsi.
Blindurdð
Blindur Palestínumaöur, sem
ísraelskir hermenn særöu, lóst
af sárum sínum.
HittiArafat
Bandaríski
sendimaðurinn
Dennis Ross
hitti Yasser
Arafat að máli
í Túnís og sagði
að miðaði í
rétta átt en
mikið væri
ógert áöur en friðarviðræður
gætu hafist á ný.
Ráððstgegn Kúrdum
Tyrkneskar flugvélar drápu 32
uppreisnarmeim Kúrda í loftá-
rásumí suðausturhluta landsins.
Gengisbekkun
Stjórnvöld í Angóla hafa lækk-
aö gengi gjaldmiðilsins í flórða
sinnáfimmvikum. Reuter
Útlönd
Afhending óskarsverölaunanna:
Spielberg var sigur-
vegari hátíðarinnar
Mynd Stevens Spielberg, Listi
Schindlers, hlaut hvorki meira né
minna en sjö óskarsverðlaun á ósk-
arsverðalaunahátíðinni sem fram fór
í Los Angeles í gær en myndin var
m.a. valin besta myndin, Spielberg
var valinn besti leikstjórinn og
myndin hlaut verðlaun fyrir besta
handritið gert eftir áðurbirtu efni.
Tom Hanks var vahnn besti leikar-
inn fyrir hlutverk sitt í Philadelphia
og Holly Hunter besta leikkonan fyr-
ir hlutverk sitt í myndinni Píanó.
„Ég á vini sem hafa fengið svona
óskar og ég lofa ykkur því að ég hef
aldrei haldið á svona áður,“ sagði
Spielberg grátklökkur eftir að hann
hafði tekið við verðlaununum fyrir
bestu leikstjórnina úr hendi Clints
Eastwood. Örfáum mínútum seinna
kom Spielberg aftur upp á sviöið til
að taka á móti verðlaunum fyrir
bestu myndina, Lista Schindlers.
Hann sagði við það tækifæri að fólk
mætti aldrei leyfa helfórinni að
gleymast.
Hin 11 ára gamla Anna Paquin
hlaut verðlaun sem besta leikkonan
í aukahlutverki í myndinni Píanó og
Tommy Lee Jones hlaut verðlaun
sem besti leikarinn í aukahlutverki
í Flóttamanninum. Ekki hefur áður
verið svo mikið kynslóðabil á milli
verðlaunahafa í sögu óskarsins en
Jones er 47 ára gamall. Paquin er
næstyngsta leikkonan sem fær ósk-
arinn en sú yngsta var Tatum ONÞe-
al, sem var aðeins 10 ára er hún hlaut
verðlaun sem besta leikkonan í
aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í
myndinni Pappírstungl. Paquin var
orðlaus yfir því að hafa sigrað og
grét er hún tók við verðlaununum.
Baráttan um bestu leikstjórnina
stóð á milli Spielbergs og Jane
Steven Spielberg var án efa sigurvegari kvöldsins en mynd hans Listi
Schindlers hiaut alls sjö verðlaun. Simamynd Reuter
Campion en Campion fór þó ekki
tómhent heim því hún hlaut verð-
laun fyrir besta frumsamda handrit-
ið.
Spænska myndin Belle Epoque var
vahn besta erlenda myndin.
Whoopi Goldberg, sem er fyrsta
Anna Paquin var valin besta leikkon-
an í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt
í myndinni Píanó.
konan og jafnframt fyrsta blökku-
manneskjan sem kynnir á hátíðinni,
þótti standa sig með prýði en hún tók
við hlutverkinu af Billy Crystal sem
hefur verið kynnir á hátíðinni sl.
fimm ár.
Ræður óskarsverðlaunahafanna á
hátíðinni í fyrra þóttu einkennast af
pólitískum yfirlýsingum en hins veg-
ar einkenndust ræðurnar í gær af
miklum tilfinningum og gráti.
Reuter
Bandaríkin flytja Patriot-flaugar til Suður-Kóreu:
Vaxandi spenna á landa-
mærum kóresku ríkjanna
Bill Ciinton Bandarikjaforseti sendir Patriot-flugskeyti til Suður-Kóreu.
Simamynd Reuter
Kim Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, skipaði herafla landsins í
morgun að setja sig í viðbragðsstöðu
vegna vaxandi spennu milli kóresku
ríkjanna þar sem Norður-Kóreu-
menn heimila ekki eftirlit með kjam-
orkubúnaði sínum. Leiðtogar Vest-
urlanda gruna þá um að vera að
smíða kjarnorkusprengju.
Han Sung-joo utanríkisráðherra og
háttsettir bandarískir embættis-
menn hittust einnig í Seoul í morgun
tfl að ræða hvar koma ætti fyrir
Patriot-flugskeytum sem Banda-
ríkjastjórn ákvaö í gær að senda til
Suður-Kóreu. Þá dustuðu Banda-
ríkjamenn einnig rykið af áætlunum
um heræfingar á Kóreuskaga.
Clinton Bandaríkjaforseti sagði
fréttamönnum að hann hefði ákveðið
að verða við ósk stjómar Suður-
Kóreu um að flaugarnar yrðu sendar
þangað. *
„Patriot-flugskeytin munu bráðum
koma til Suður-Kóreu,“ sagði Kim
forseti á fundi með stjómmálaleið-
togum landsins. ,
Embættismenn sögðu að þeim yrði
komið fyrir á lykilstöðum umhverfis
Seoul sem er tæpa fimmtíu kílómetra
frá landamærunum að Norður-
Kóreu.
James Woolsey, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, sagði
í Washington að innan bandarísku
njósnastofnananna væru menn
sannfærðir um að Norður-Kóreu-
menn hefðu nægilegt efni til að smíða
að minnsta kosti eina kjarnorku-
sprengju.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu sögðu að
þau mundu halda dyrunum opnum
fyrir viðræður viö Norður-Kóeru-
menn og leita friðsamlegrar lausnar.
Forseti Suður-Kóreu leggur upp í
ferð til Japans og Kína á fimmtudag
til þess að leita stuönings við við-
leitni manna til aö fá norðanmenn
til að fara að reglum. Stjómvöld
Norður-Kóreu endurnýjuðu þá hót-
un sína í vikunni að segja upp samn-
ingi um takmörkun á útbreiðslu
kjamavopna. Reuter
Helstu óskars-
verðlaunahafar
Besta kvikmynd
Listi Schindlers
Besti leikstjóri
Steven Spielberg,
Listi Schindlers
Besti leikari í
aðalhlutverki
Tom Hanks,
Philadelphia
Besta leikkona í
aðalhlutverki
Holly Hunter,
Ptanóið
Besti leikari í
aukahlutverki
Tommy Lee Jones,
Flóttamaðurinn
Besta leikkona í
aukahlutverki
Anna Paquin,
Píanóið
Besta frumsamda
handrit
Píanóið
(Jane Campion)
Besta erlenda kvikmynd
Belle Epoque
(Spánn)