Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
Utlönd
Fylgismenn Afríska þjóðarráðsins minnast þess að 25 ár eru nú liöin síðan fjöldamorðin í Sharpeville í S-Afriku
voru framin. Símamynd Reuter
Tveir bandarískir auðkýfingar stórhuga:
Nýtt fjarskiptanet nær
til endimarka heimsins
Nýtt fyrirtæki í eigu bandarísku
auðkýfinganna Bills Gates og Craigs
McCaws ætlar að byggja upp fjar-
skiptanet með 840 gervitunglum sem
á að ná heimshoma á milli. Áætlað
er aö fjarskiptanetiö taki til starfa
árið 2001 og kostnaðurinn viö það
nemur rúmum sex hundruð miUj-
örðum íslenskra króna, eða um sex-
foldum fjárlögum íslenska ríkisins.
j\ dag er kostnaðurinn við að koma
á nútímafjarskiptum við fátæk og
afskekkt svæöi svo hár að margar
þjóðir hafa ekki efhi á að taka þátt i
samfélagi þjóðanna," sagði Craig
McCaw, stjómarformaður stærsta
farsímafyrirtækis Bandaríkjanna.
Hann er jafnframt stjómarformaöur
hins nýja fyrirtækis, Teledesic.
McCaw og Gates, sem er stjórnar-
formaöur og stofnandi Microsoft
hugbúnaðarfyrirtækisins, eiga hvor
um sig þijátíu prósent í Teledesic.
McCaw farsímafyrirtækið, sem
bandaríski símarisinn AT&T hefúr
keypt fyrir á níunda hundrað millj-
arða króna, á 28 prósent í hinu nýja
fyrirtæki.
McCaw hefur verið meö hugmynd-
ir þessar á pijónunum í mörg ár en
Gates kom ekki inn í myndina fyrr
en fyrir nokkrum mánuðum.
Teledesic áformar aö skjóta íjar-
skiptahnöttum sínum á lágan spor-
baug umhverfis jörðu og verður not-
uð tækni sem var þróuð fyrir
,Stjömustríðsvamarkerfið“. Hnett-
imir yrðu í tæplega átta hundruð
kílómetra hæð yfir jörðu sem gerir
þeim kleift að flytja gögn með meiri
hraða en fjarskiptahnettir þeir sem
nú eru í notkun og era á sporbaug
um jörðu í rúmlega þijátíu þúsund
kílómetra hæð.
Til þess að áformin geti orðið að
veruleika verður fyrirtækið að fá
rekstrarleyfi frá stjómvöldum í
Bandaríkjunum og víðar. Reuter
Poul Schliiter
ísksbanka
Poul
Schlúter, fyrr-
um forsætis-
ráðherra Dan-
merkur, er orð-
inn ráðgjali
fyrir ameríska
bankann
Republic
National Bank of New York sem
ætlar að opna skrifstofu í Kaup-
mannahöfn í sumar.
Banki þessi velti um 3.300 millj-
örðum íslenskra króna í fyrra og
hagnaður hans eftir skatta var
um tvö hundruð milljarðar.
Skrifstofan 1 Kaupmannahöfh
verður höfuðstöðvar fyrir við-
skipti hans á Norðurlöndura.
Norræni menn-
læturokkurfáfé
Tvö íslensk verkefni fá umtals-
verða styrki úr norræna menn-
ingarsjóðnum en úthlutun er ný-
lokiö. Rúmum þremur milljónum
króna er veitt í gerð íslensk-
skandínavískrar orðabókar og
tæpum tveimur milljónum er
veitt til að styrkja menningar- og
listadaga á Akureyri í apríl.
Auk þess fær norræna þjóð-
lagatónlistamefndin í Árósum
um hálfa aöra mihjón til að halda
þjóðlagatónlistarhátíö í Reykja-
vík í ágúst.
Menningarmálanefndin úííriut-
aði að þessu sinni um sextíu
milljónum króna til 68 verkefna.
Stærsta styrkinn, ura níu milljón-
ir króna, fékk norræn hönnunar-
sýning sem hóf hringferð sína um
Noröurlöndin í Stokkhólmi fyrir
stuttu.
Grunsamleg
holaviðkastala
drottningar
Breskar hryðjuverkasveitir
voru kvaddar til að rannsaka
gransamlega holu sem fannst
nærri Windsor kastala Ellsabetar
Englandsdrottningar en fundu
ekkert sem benti til aö nota ætti
holuna til að varpa úr henni
sprengjum.
Það var íbúi einn í grennd við
kastalann sem kom auga á hol-
una, 76 sentímetra djúpa, á eyju
úti í Thamesá, rúman kílómetra
frá drottningarranni.
„Ekkert fannst sem tengdi
þessa holu IRA eða öörum
hryðjuverkahópum en viö getum
ekki tekiö neina áhættu á þessum
tímum árása á Heathrow-flug-
vöU,“ sagði Jim Jones lögreglu-
fulltrúi.
komlöggunumí
klandur
Díana prins-
essa braut um-
ferðaiTeglurn-
ar um helgina
með því að
skftja bílinn
sinn eftir þar
sem ekki mátti
leggja en það
voru löggumar tvær sem létu
hana komast upp meö það sem
fengu á baukinn.
Löggurnar hjálpuðu prinsess-
unnl með þvi að iáta líta svo út
sem splunkunýr bíll hennar væri
bilaður til þess að ekki yrðu sett-
ar á hann hjólaklemmur.
Prinsessan hafði verið aö leita
sér að bilastæði við veitingahús
en ekki fundið og sneri sér því til
laganna varöa og létu þeir sér-
stakan miða í glugga bflsins.
Ritzau, TT, Bcuter
Tæki fyrir óléttar konur:
Hindrar að þær
ali fyrir tímann
Nýir skynjarar, sem geta mælt alla
starfsemi í móðurlífi óléttra kvenna,
geta dregið verulega úr hætunni á
því að konur fæði böm sín fyrir tím-
ann og það gerir konum einnig kleift
að tilkynna komu sína til læknis þeg-
ar tíminn er kominn. Frá þessu var
skýrt á læknaráðstefnu sem haldin
var í Orlando á Flórída um helgina.
Rannsóknin, sem var gerð af The-
odore Colton frá Boston háskólan-
um, sýndi að viðkomandi tæki dreg-
ur úr fæðingum fyrir tímann um
20%.
„Konur verða oft stressaðar og
áhyggjufullar þegar þær finna fyrir
samdrætti eða öðrum verkjum.
Verkimir era þó í flestum tilfellum
ekkert til að hafa áhyggjur af en kon-
umar þurfa samt að borga fyrir
hveija skoðun hjá lækni og það getur
verið afar kostnaðarsamt," sagði
Colton.
Hann sagði tækið virka þannig að
konumar heföu það heima hjá sér
og á því væri skynjari sem mældi
samdrætti í leginu í gegnum kviðar-
holið. „Tækiðnemurupplýsingamar
og breytir þeim síðan í merki sem
send eru símleiðis til viðkomandi
læknis sem metur hvort tími sé fyrir
konuna til að koma á spítalann og
fæða.“
Tækiö gerir konum, sem eru í
hættu að fæða fyrir tímann, kleift að
hringja í lækni þegar þær fá verki
og láta hann athuga merkin sem
hann hefur fengið í gegnum tækið.
Þar með er komið í veg fyrir að kon-
umar þurfi að borga háar upphæðir
fyrir óþarfa spítalalegu.
Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur
leyft notkun á tækinu fyrir óléttar
konur sem hafa áður fætt böm fyrir
tímann og einnig fyrir þær konur
sem ganga með fjölbura.
„Hér áður fyrr þurftu sjúklingar
stundum aö eyða heilli viku á spít-
ala. Nú fáum við þá til okkar, könn-
um líkamsástandið og sendum þá
heim. Ef sjúklingarnir era síöan með
einhveija verki þá geta þeir látið
lækninn kanna það í gegnum tækið
með einu símtali,“ sagði Colton.
Reuter
Tæki fyrir óléttar konur mælir allar
hreyfingar í móðurkviði.
Forseti Fídji
eyja, Kamisese
Mara, segist
ætla að koma á
fullum stjórn-
málatnngslum
við Indland á
ný en sam-
bandið varö
mjög stirt eftir að Fídjieyingar
ákváðu að loka sendiráði Ind-
lands á eyjunum áríð 1990. Ind-
land hafði þá þegar kallað alla
sína sendiráösstarfsmenn heim.
Mara tilkynnti þessa ákvörðun
við setningu þingsins í gær og
sagði að Indlandi yrði boðið að
opna sendiráð sitt á ný.
Eyðni breiðist
hrattútíAsíu
Virusinn sem veldur eyöni mun
ieggjasi á fleiri Asíubúa á næsiu
árum en Afríkubúa samkvæmt
þvi sem alþjóðaheilbrigðissatn-
tökin skýrðu frá nýlega.
„Endir á þessu vandamáii er
hvergi í sjónmáli. Eyðnifaraldur-
ínn mun að öllum likindum fylgja
okkur vel inn i 21. öldina," sagði
Michael Merson, framkvætnda-
stjóri eyðniáætlunar alþjóðaheil-
brigðíssamtakanna.
„Ör útbreiðsla eyðni 1 Asíu varð
aö hluta til vegna mistaka en það
var einhvem veginn aldrei gert
ráð fyrir því að sú mikla út-
breiðsla sem orðiö hefur á eyðni
í Afríku myndi einnig eiga sér
stað í Asíu,“ sagöi Merson.
Búist er við að dánartala Afr-
íkubúa sem látist hafa úr eyðni
nái fimm milljónum um árið 2000.
Með sama áframhaldi raunu töl-
umar í Asíu þó verða enn hærri.
Goðsagnirum
drekaogrisa-
skjaldbökur
Goðsagnir um dreka og risa-
skjaldbökur hafa farið á kreik í
þorpinu Kota Belud í Malasíu síö-
an hafin var leit að fimm bresk-
um hermönnum og Hong Kong-
búa á einu hæsta íjalli Suðaust-
ur-Asíu.
Leitin að mönnunum hófst fyrir
um mánuði og síðan þá hafa alls
kyns sögusagnir frá fyrri tímum
komist á kreik. Talað er um
skringileg göng og hella í fjallinu
og er sagt að þar séu heimkynni
eldspúandi dreka og risaskjald-
baka. „Langafi minn sagði mér
sögur afþví aö kínverskur maður
hefði stolið dýrmætum gimsteini
frá drekanum. Drekinn heíði alla
tíö síðan gert Kínverjum, sem
hefðu lagt leið sína á fjallið,
mein,“ sagði einn þorpsbú-
inn.
Leitarmenn segjast hins vegar
ekki búast við að finna annað á
fjallinu en mennina sem þeir leita
að.
Fórímeðferð
vððkrabbameini
Konungur
Kambódíu,
Norodom Si-
hanouk, er
kominn heim
af spítala þar
sem hann
gekkst undir
meðferð vegna
krabbameins. Sihanouk, sem
dvelur nú í Peking, mun snúa til
heimalands síns fyrir 13. aprfl en
þá hefst nýtt ár í Kambódíu.
„Sihanouk ætlar þó ekki að fara
heim fyrr en hann er búínn að
heimsækja Kim Il-sung, leiðtoga
Noröur-Kóreu sem er besti vinur
konungsins, “ sagði talsmaður
Sihanoúks.
Reuter