Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Side 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
Fréttir
Deilt um Ariel Ultra auglýsingu Islensk Ameríska:
Verið að auglýsa hluti
sem standast ekki
segir efnafræðingur Efnaverksmiðjunnar Sjafnar á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Okkur finnst nokkuö langt gengið
þegar fyrirtæki láta hamra á hlutum
í auglýsingum sem ekki er hægt að
standa við,“ segir Níels Br. Jónsson,
efnafræðingur hjá Efnaverksmiðj-
unni Sjöfn á Akureyri, vegna fullyrð-
inga í auglýsingum frá íslensk Amer-
íska verslunarfélaginu hf. þar sem
Akureyri:
Konurnar ætla
séríframboð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri
„Það er verið að vinna í þessu
máli og það eru meiri líkur á aö
við fórum i framboö," segir
Málmffíður Siguröardóttir
kvennalistakona um hugsanlegt
framboð Kvennalistans á Akur-
eyri við bæjarstjómarkosning-
amar i vor.
Málmfr íður segir að skipuð hafi
verið nefnd til að vinna að fram-
boðsmálunum og sú nefnd hafi i
sjálfu sér engin tímamörk til að
starfa innan. „Viö reiknum þó
með að nefndin skiii af sér um
eöa upp úr mánaðamótunum en
hlutverk hennar er m.a. að gera
tillögur um konur á listann án
þess að nefndinni sé ætlaö að
vinna sem uppstiilingamefnd. Ég
reikna með að þegar að því verki
kemur komi fleiri að því,“ segir
Málmfríður.
Þar með viröist Ijóst aö Akur-
eyringar muni hafa úr 5 listum
aö velja 1 kjörklefunum í vor.
„F'jórflokkarnir", Sjálfstæðis-
flokkur, Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag og Framsóknarflokkur,
bjóða allir ffam og nú eru allar
líkur á að Kvennalistinn bætist í
hópinn. Konumar buðu ekki
fram síðast en þá var Þjóðar-
flokkur meö framboðslista en
verður ekki nú.
Kröfur meinatækna:
Getumekki
staðiðaðbein-
umlauna-
hækkunum
- segir öármálaráöherra
„Að beinum launahækkunum
getum við ekki staðið. Það hefur
verið stefna ríkisstjórnarinnar að
fylgja þeim niðurstöðum sem
fengust við gerð almennu kjara-
samninganna. Við munum gera
það sem í okkar valdi stendur til
þess aö það sé ekki vikiö af þeirri
braut það sem eftir lifir samn-
ingstímabilisins," segir Friörik
Sophusson íjármálaráðherra um
kröfugerð meinatækna.
Friðrik segir getu efnahagslífs-
ins til að hækka laun vera í al-
gjöm lágmarki núna. Þá segir
hann það ákaflega viðkvæmt mál
að hækka laun hjá einstökum
starfsstéttum því þá sé hætt við
að aðrar fylgi á eftir.
„Við verðum að horfast í augu
viö aö þaö er atvinnuleysi sem
er stærsta vandamálið. Um sinn
er það miklu brýnna að ráða niö-
urlögum þess en aö sjá fólki fyrir
hækkuöum iaunum." -kaa
m.a. er auglýst að Ariel Ultra þvotta-
efnið leysi fitu úr flíkum við þvott.
Sjafnarmenn hafa gert tilraunir til
að sannprófa þetta og segja það aug-
ljóst að þessi fuliyrðing standist ekki.
Sjöfn bauð blaðamönnum í síðustu
viku að vera viðstaddir er tilraun var
gerð með þvottaprufu við 40 stiga
hita með 45 g af Ariel Ultra. Þvegnar
voru 3 bláar herraskyrtur og sloppur
„Það var gaman að fá þennan bikar
fyrir fyrsta laxinn minn, sem ég
veiddi í Reykjadalsá í Borgarfirði,
fiskurinn var 4,5 pund,“ sagði Guö-
mundur Þór Vilhjálmsson, 10 ára, en
hann fékk bikar á árshátíð Veiðifé-
lagsins Strauma á laugardagskvöld-
ið. En þeir Straumamenn voru með
Reykjadalsá í Borgarfirði og Lang-
holt í Hvítá í Árnessýslu í fyrra. En
fyrir fáum vikum leigðu þeir Álftá á
Mýrum.
„Ég var fimmtán mínútur að landa
laxinum og næsta sumar ætla ég að
reyna að fá fleiri laxa. Kannski í Alftá
á Mýrum,“ sagði Guðmundur Þór
ennfremur.
Magnea Hjálmarsdóttir fékk tvo
bikara fyrir stærsta lax á vatnasvæði
félagsins, 10 punda lax í Grjótpolli í
Reykjadalsá, svo og frúarbikarinn
fyrir sama laxinn í Reykjadalsá.
Dagur Garðarsson veiddi stærsta
og höfðu flíkurnar veriö mengaðar
með sólblómaolíu, olífuolíu, sojaoliu,
möndluolíu og hveitikímolíu. Niður-
staða tilraunarinnar var sú að olíu-
blettirnir hurfu ekki við þvottinn.
Sjafnarmenn segja að íslensk Am-
eríska beiti miskunnarlaust fullyrð-
ingum í auglýsingum sínum sem
ekki standist. Þá segja þeir að í könn-
un sem dönsku neytendasamtökin
flugulaxinn, 7 punda, í Klettsfossi í
Reykjadalsá á fluguna Bæsa bakara.
Garðar Sigurðsson veiddi stærsta
hafi staðið fyrir á síðasta ári hafi
Ariel Ultra fengið dapra einkunn fyr-
ir ntuleysingu í þvotti og reyndar
hafi ekkert þvottefnanna í þeirri
könnun fiarlægt fitu eftir einn þvott.
„Málið í hnotskurn er að það er ver-
ið að auglýsa hluti sem standast ekki
í raunveruleikanum," segir Níels Br.
Jónsson, efnafræðingur hjá Sjöfn.
„Það er veriö að kanna þetta mál
silunginn í Sturlureykjastreng í
Reykjadalsá á Blá Grímu, 5,5 punda
urriöa. -G.Bender
og ég geri ráð fyrir að þessu veröi
svarað á viðeigandi hátt. Við höfum
ekki áhuga á neinu fiölmiðlastríði og
teljum það engum til framdráttar.
En við vonumst til að hægt verði að
sýna fram á að við erum ekki að gera
neitt rangt," sagði Pálína Magnús-
dóttir, auglýsingastjóri hjá íslensk
Ameríska, þegar ummæli Sjafnar-
manna voru borin undir hana.
Emthækkabff-
reiðatryggingar
„Hérna er um að ræða skyldu-
tryggingu á húsbílnum mínum. í
fyrra var rukkunin 12.500 krónur
en núna hefur hún hækkað upp
í 15.250. Samkvæmt vasatölvunni
minni er þetta rúmlega 22 pró-
senta hækkun og ég er ekki par
ánægöur með þetta," sagði hús-
bílseigandi í samtali við DV.
Hann er nfiög óánægöur með
þessa hækkun í Jjósi þess aö lítil
sem engin hækkun hafi orðið á
vísitölu frá því í fyrra og aö til-
kynnt hafi veriö í útvarpi um
helgina að VÍS, tryggingarfélagið
þar sem bíllinn er tryggður, hafi
skilað rúmlega 100 milljóna
króna hagnaði á nýliðnu rekstr-
arári.
„Þetta er hækkun á slysatrygg-
ingu ökumanns og eiganda á milli
ára. Þessi hluti af bótagreiðslun-
um var færður frá Trygginga-
stofnun ríkisins yfir á tryggingar-
félögin. Þetta er sú hækkun,“ seg-
ir Jón Þór Gunnarsson, deildar-
sfióri í bifreiðatryggingum hjá
VÍS. -pp
Akureyri:
Kærðirfyrirað
tefja umferðina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuteyri:
Lögreglan á Akureyri er farin
að taka haröar á þeim ósið
margra ökumanna þar í bæ að
stöðva bifreiöar sinar úti á miðri
götu og taka upp samræður við
kunningja.
Þetta háttalag hefur löngum
vakið athygli t.d. aðkomumanna
i bænum þvi margir ökumenn
hafa óhikað stöðvað bifreiðar sín-
ar ef þeir hafa mæst og tekiö upp
samræður, jafnvel þótt þeir væru
með langar bílalestir fyrir aftan
sig og teföu þannig umferö. Að
sögn varðstjóra lögreglunnar er
nú farið að taka harðar á þessum
málum og t.d. voru þrír ökumenn
kærðir fyrir það um helgina að
tefia umferö á þennan hátt
Enn engirpróf-
kjörstilburðir
Lúövig Thorberg, DV, Tálknafiidi:
Ekkert bólar á prófkjörstil-
burðura i Tálknafiarðarhreppi.
Sjálfstæðismenn hafa verið með
þrjá fulltrúa af fimm síöustu tvö
kjörtímabil og óháðir tvo.
Heyrst hefur að í deiglunni sé
stofhun þverpólitiskra samtaka
með framboð til hreppsnefndar-
kosninga að markmiði en þær
þreifingar hafa látið lítið yflr sér
ennþá.
• „Það tók fimmtán minútur að landa laxinum, hann var 4,5 pund,“ sagði Guðmundur Þór Vilhjálmsson með
bikarinn sinn. DV-mynd G.Bender
Árshátíð Strauma:
Fékk glæsilegan bikar
fyrir maríulaxinn sinn
• Verðlaunahafar á árshátiö Strauma á laugardagskvöldið, Garðar Sig-
urðsson, Dagur Garðarsson, Guðmundur Þór Vilhjálmsson og Magnea
Hjálmarsdóttir með verðlaun sín og rós.