Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994
9
i>v . Menning
Karlakór Reykjavikur
Karlakór
Reykjavík-
uríLang-
holtskirkju
Tónleikar voru í Langholtskirkju sl. flmmtudagskvöld. Karlakór
Reykjavíkur söng. Björk Jónsdóttir, sópran, Guðlaugur Viktorsson, ten-
ór, og Jóhann Ari Lárusson, sópran, sungu einsöng. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir lék á píanó. Stjórnandi var Friðrik S. Kristinsson. Á efnis-
skránni voru ýmis sönglög, íslensk og erlend.
Þetta voru fjórðu tónleikarnir sem Karlakórinn heldur nú og var Lang-
holtskirkja full út úr dyrum. Karlakórinn hefur sýnt það fyrr í vetur að
hann er í góðu formi og lætur þá áhugi tónleikagesta ekki á sér standa.
Efnisskráin var fjölbreytt að þessu sinni og mátti heyra þarna trúarleg
lög jafnt sem veraldleg, sum alkunn og önnur minna þekkt. Inn á milli
kórlaganna, sem voru flest, var skotið einsöngslögum. Meðal laga sem
hljómuðu sérlega fallega má nefna t.d. Fyrstu vordægur, sem var flutt
með góðum styrkbrigðum og einkar skýrum textaframburði og hinn sér-
kennilega fagra madrigala Alta trinita beata, þar sem samhljómurinn
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
naut sín mjög vel. Hið tilkomumikla söngljóð Stjáni blái kom einnig mjög
vel út og sama má segja um Finlandíu. Kórinn flutti þessi verk með mjög
fallegum hljómi og vel útfærðri túlkun . Fleiri lög mætti nefna en þetta
verður látið duga hér. Einsöngvararnir Guðlaugur Viktorsson, barna-
stjarnan Jóhann Ari Lárusson og Björk Jónsdóttir áttu einnig ágætt fram-
lag. Björk söng Vilja Lied eftir Lehar með ágætum tilþrifum. Karlakórinn
getur verið ánægður með frammistöðu sín og áhuga tónleikagesta. Sé
strangasta mæhkvarða beitt getur hann þó enn bætt sig í einstökum þátt-
um. Má þar nefna kontrapunktískan söng, sem ekki var mikið af á þess-
um tónleikum, en vottaði þó fyrir ónákævæmni þar sem honum brá fyrir.
Góð hugmynd
Neshreppur utan Ennis leitar eftir hugmyndum
um nýtingu mannvirkja á Gufuskálum í Nes-
hreppi utan Ennis.
Hugmyndum skal skila til skrifstofu Neshrepps
utan Ennis, félagsheimilinu Röst, 360 Hellis-
sandi, sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma
93-66637.
Neshreppur utan Ennis
Samhjólp
Tímarit um trúmál
og mannlegt samfélag
Stofnað 1983
4 tölublöð á ári/verð aðeins kr.1620
Áskriftarsímar 91-611000 & 610477
TENNISHÖLLIN
opnuð í maí - tryggið ykkur völl
Tímapantanir í síma: 689909/38719.
Besta fermingargjöfin í ár!
Holl og heilsusamleg áskrift í tennis.
Gjafabréf- greiðslukjör
Upplýsingasími:
689909
DALSMÁR/ 9-11 200 KÓPAVOGUR SÍMI: 689909/38719
Bestu kaupin í lambakjöti á aðeins398kr./kg.
ínœstu verslun
*Leiðbeinandi smásöluverð
Verðið á 1. flokks
lambakjöti í
hálfum
skrokkum
lækkar um heil
20%. Fáðu þér
ljúffengt lambakjöt í
næstu verslun á
frábæru verði, aðeins
398 krónur kílóið.
HVERT KILO flf
LflfllBflKJÖTI
LÍEKKAR Ufl)
HCILflR QIDKROflUR