Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Side 10
10
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994
Guðmundur Stephensen, 11 ára, íslandsmeistari í borðtennis:
Byrj aði að
spila þriggja ára
- stefnir á atvinnumennsku í útlöndum í framtíðinni
Guðmundur á hundrað og þrjátíu verðlaunapeninga fyrir borðtennis og fótbolta og sautján bikara. Hér er nýjasti bikarinn sem hann hlaut um síðustu
helgi þegar hann varð yngsti íslandsmeistari landsins i meistaraflokki.
Guðmundur ásamt móður sinni, Sigríði Sigurðardóttur, og bræðrum, Ólafi
og Matthíasi. Faðir Guðmundar, Pétur Stephensen, var fjarri góðu gamni
en allir karlmennirnir á heimilinu eru miklir borðtennisaðdáendur. Sigriður
segist hins vegar ekki snerta við iþróttinni. DV-myndir Brynjar Gauti
„Það er góð tilfmning að vera orð-
inn íslandsmeistari. Ég hef stefnt að
þessu,“ segir Guðmundur Stephen-
sen, 11 ára, íslandsmeistari í borð-
tennis í samtali við DV. Guömundur
hefur vakið mikla athygli að undan-
fömu fyrir leikni sína í borðtennis
en hann hefur leikið með landslið-
inu. Guðmundur á 130 verðlauna-
peninga og sautján bikara fyrir frá-
bæra frarhmistöðu sína á undanförn-
um árum þótt ekki sé hann hár í loft-
inu.
„Ég hef eiginlega alist upp með
borðtennisnum. Pabbi spilar borð-
tennis og einnig eldri bróðir minn,
Ólafur, sem er sextán ára. Við eram
með borðtennisborð á heimilinu og
því var auðvelt að grípa spaðann. Ég
náði varla upp á borðröndina þegar
ég var byrjaður að spila," segir Guð-
mundur og segist hafa veriö aðeins
þriggja ára gamall þegar hann var
búinn að ná valdi á íþróttinni.
„Það er mikiil borðtennisáhugi í
ættinni og þess vegna vaknaði áhugi
minn snemma,“ segir hann. Guð-
mundur er í Víkingi í borðtennis en
spilar fótbolta með Fram. „Ég er
Frammari,“ segir hann, „en Fram er
ekki með borðtennis."
Það tekur mikinn tíma að verða
snjall í borðtennis. Guðmundur æfir
fimm sinnum í viku í TBR og auk
þess æfir hann með landsliðinu þar
fyrir utan. Þetta er því timafrekt.
Þegar menn hafa mikinn áhuga á
fótbolta líka og spila í fimmta flokki
er varla mikill tími eftir fyrir annað.
Enda segist Guðmundur ekki hafa
mikinn áhuga á sjónvarpi eða bíói.
Hann tekur þó skólanámið alvarlega
og þykir gaman að læra, sérstaklega
stærðfræði.
Betri en pabbinn
Guðmundur byijaði upphaflega í
Víkingi þegar hann fór að fara með
fóður sínum, Pétri Stephensen, á
æfingár. Pétur hefur verið öflugur
borðtennisleikari og hefur keppt í
eldri flokkum með góðum árangri.
Sonurinn er þó mun sterkari og er
yngsti íslandsmeistari í meistara-
flokki hér á landi. Útlendingar hafa
þegar komið auga á þennan sterka
borðtennismann. Hann sigraði til
dæmis sér mun eldri Svía fyrir stuttu
en Svíar eru meðal þeirra fremstu í
heiminum í borðtennis.
Á fimmtudag hélt Guðmundur
ásamt landsliðinu til Birmingham í
Englandi þar sem hann tekur þátt í
Evrópumóti landshða. Guðmundur
er yngsti keppandinn á mótinu. Móð-
ir hans, Sigriður Sigurðardóttir, var
að þvo af honum þegar helgarblaðið
leit í heimsókn til þeirra. „íþróttirnar
taka mikinn tíma hjá Guðmundi.
Hann er bara svo yfirvegaður og ró-
legur yfir þessu. Það virðist ekkert
raska ró hans,“ segir Sigríður.
Yngri bróðir Guðmundar, Matthías
8 ára, spilar líka borðtennis og hefur
gaman af. Hann segist vera mjög
stoltur af bróður sínum og fylgist
með honum. Hann gat þó ekki horft
á íslandsmeistarakeppnina um helg-
ina vegna þess að hann lá í flensu.
Það þótti htla bróður heldur súrt í
brotið.
Góðir skólafélagar
Guðmundur er í sjötta bekk í Laug-
amesskóla. Hann segist fá mjög já-
kvæð viðbrögð hjá skólafélögunum
og frægðin hafi ekki áhrif í skólan-
um. Sigríður segir að Guðmundur
eigi góða og vandaða skólafélaga
þannig að hann hafi aldrei orðið fyr-
ir áreitni heldur þvert á móti hafi
þeir samglaðst honum.
Þegar Guðmundur er spuröur hver
•sé leyndardómurinn á bak við vel-
gengni hans er hann fljótur að svara:
„Æfingin." Hann er þó lítið fyrir að
tala um velgengnina og fer undan í
flæmingi þegar hann er spurður
hvort fjölskyldan sé ekki montin af
honum. „Jú, jú,“ segir hann lágt.
Þar sem Guðmundur býr í Laugar-
ásnum er glæsilegt útsýni yfir Laug-
ardalinn. Bræðumir þrír og Pétur
pabbi þeirra horfa þó ekki á knatt-
spyrnuleiki út um gluggann, eins og
vel væri hægt, heldur fara ævinlega
á völhnn. Pétur er Hafnfirðingur og
kunnur FH-ingur, situr m.a. í stjórn
FH og er þekktur stuðningsmaður
hðsins. Það eru því þrjú íþróttafélög
sem skipta máh á þessu heimili; Vík-
ingur, Fram og FH.
Valdner er
átrúnaðargoðið
Guðmundur, sem veröur tólf ára í
júní, segist ætla að veria íslands-
meistaratitil þann sem hann hefur
nú hlotið og reyna að halda honum.
Atvinnumennska í borðtennis í út-
löndum er draumurinn sem hann
vonast th að rætist í framtíðinni.
- En hvert er þitt átrúnaðargoð í
borðtennis?
„Það er Svíi, Valdner. Hann er at-
vinnumaður og mjög góður,“ segir
Guðmundur og er fljótur til svars.
Guðmundur segir að menn geti
orðið mjög ríkir á atvinnumennsku
í borðtennis og Valdner sé einn af
þeim sem hafa auðgast á íþróttinni.
Guðmundur segist fylgjast með
íþróttinni úti í heimi í gegnum mynd-
bandsspólur sem hann skoðar.
Strákar á þessum aldri eru miklir
aðdáendur bandarísku körfuknatt-
leiksdeildarinnar, NBA og svo er
einnig með Guðmund. Hann segist
fylgjast með NBA þótt hann æfi ekki
körfuknattleik.
- En á íslandsmeistarinn sitt eigið
borðtennisborð?
„Fjölskyldan á saman gamalt borð
sem við spilum á hér heima.“
í apríl fer fram aldursskipt íslands-
meistaramót þar sem Guðmundur
ætti að keppa í unghngaflokki. Hann
keppti með meistaraflokki um síð-
ustu helgi þar sem hann vann ís-
landsmeistaratitilinn. Guðmundur
segist einnig mega spila upp fyrir sig
á íslandsmeistaramótinu í apríl
þannig að hann er ekki einvörðungu
bundinn við sinn flokk. Hann segist
ekki vera búinn að ákveða með
hvaöa flokki hann æth að leika en
að sjálfsögðu stefnir hann á að verða
íslandsmeistari í annað sinn.
Páskar í Birmingham
Guðmundur er langyngstur í
landsliðinu í borðtennis sem nú
keppir í Birmingham. Vafalaust
verður tekið eftir þessum unga og
efnilega leikmanni þar. „Ég ætla að
reyna að standa mig eins vel og ég
get,“ segir hann. Guðmundur mun
njóta páskanna í Englandi því ferðin
tekur tólf daga. Faðir hans ætlar með
sem fararstjóri þannig að Guðmund-
ur verður ekki alveg aðskihnn frá
fjölskyldunni.
Guðmundur hefur áður keppt í út-
löndum því hann fór með A-landshð-
inu til Möltu. Einnig tók hann þátt í
landsleik við Fæeyinga í Færeyjum
fyrir stuttu þar sem íslendingarnir
báru sigur úr býtum. „Það verða
allnokkur mót í sumar sem ég mun
taka þátt í þannig að það verður nóg
að gera,“ segir Guðmundur. Án efa
verða margar fréttir af þessum unga
meistara á næstunni og spennandi
aðfylgjastmeðhonum. -ELA