Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994 11 Úr sjónvarpsmyndinni sænsku, Aldur ókunnur. Sænsk verðlaunamynd í Sjónvarpinu: Reynt að spoma gegn ellihrömun Næstkomandi miðvikudag hefur Sjónvarpið sýningu á sænska verð- launamyndaflokknum Aldur ókunn- ur, eða Álder okand, eftir Richard Hobert. Hann hefur áður hlotið margar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars fyrir myndina Tólf mánaða sumar sem fjallaði um loftslagsbreytingar á jörðinni. Sú mynd var útnefnd besta sjónvarpsmyndin á BANFF-kvik- myndahátíðinni í Kanada 1989. I Aldur ókunnur er einnig tekið á mjög umræddu og umdeildu efni því hún fjallar um tilraunir til að hægja á ellinni. Vísindamönnum hefur tek- ist að finna hina líffræðilegu klukku sem tifar í hveijum manni. í fram- haldi af því fara þeir að gera tilraun- ir með nýtt lyf sem þeir nefna GDF en þaö á að hægja á ellihrörnun. Sagan gerist á einkareknu heilsu- hæh á afviknum stað en í skjóli starf- seminnar þar fara fram umfangs- miklar tilraunir á mannslíkaman- um. Þær eiga eftir að hafa ófyrirsjá- anlegar afleiðingar þegar þær eru einu sinni komnar af stað. Peter Wall læknir fær upphringingu frá fyrrverandi starfsbróður sínum sem verður til þess að hann hraðar sér á umrætt heilsuhæli. Þar er verið að gera tilraunir á fólki. En skyndilega fer eitthvað úrskeiðis og mikil hætta er á ferðum. Hópur mjög hæfra rann- sóknaraðila er kallaður til aðstoðar og beðinn um að finna það sem fór úrskeiðis og koma þar með í veg fyr- ir stórkostlegt líffræðilegt slys. Höfundur og leikstjóri er Richart Hobert og í helstu hlutverkum eru Sven-Bertil Taube og Harriet Ander- son. Fyrsti þátturinn verður sýndur klukkan 21.45 á miðvikudag. m Parketirá kr. 2.590 re af áUómtsekium m.a. Wlikið urva 31900 st9r charo 14" sjónvarp _ kr 19.900 Panasonicsamst « ^ kr,55.80t «• PioneetN50sa"<stæð“ .. ■ - «innn„,.. ‘PJae^"°ka,a0k NETRÓ Reykjavík Akureyri Akranesi Isafirði í Mjódd og Lynghálsi 10 Furuvöllum 1 Stillholt 16 Mjallagötu 16 .* ...* , . .. 670050 675600 96-12780 93-11799 944644 ‘ IHlðStOð heimilatma Guó gjuj 3B7n gepuj Gjafabréfís Nú geta œttingjar og abrir velunnarar gefib fallegt gjafabréf frá íslandsbanka en þab er gjöf sem gefur arb. Gjafabréfib er tilvalin gjöfsem leggurgrunn ab framtíbar- sparnabi fermingarbarnsins, afmœlisbarnsins, stúdentsins, brúbhjónanna og allra hinna. Upphœbinni rœbur gefandinn og fœst gjafabréfib í nœsta útibúi íslands- banka. Hafbu gjafabréf frá íslandsbanka í huga nœst þegar þú vilt gefa tœkifœrisgjöf sem gefur ávöxt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.