Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994
Dagur í lífl Ara Trausta Guðmundssonar jarðfræðings:
unnið ráðgjafarstörf, og þurfti að
ræða við Andrés Amalds út af verk-
efnum. Loks fór ég aftur í tölvuna til
að svara Pólveija sem hefur verið
að skrifa mér. Hann ætlar yfir Vatna-
jökul í sumar og þarf fullt af upplýs-
ingum. Þá var kominn tími til að
hjálpa Helgu með heimanámið en
hún átti að teikna myndir í vinnu-
bók.
Klukkan fjögur sótti ég konuna í
vinnuna. Við gátum spjallað yflr
kaffibolla áður en ég rauk aftur upp
á Stöð 2. Þar þarf ég að vera mættur
klukkan fimm. Þá tekur við ákveðin
rútína: athuga efnið frá Veðurstof-
unni og læra utan að. Ég hef nefni-
lega ekki lesskjá. Síðan þarf að raða
táknum upp á kortin. Ef tími vinnst
til fær maður sér eitthvað í svang-
inn. Loks koma allir sem eiga að fara
í útsendingu saman í sminkinu og
spjaUa saman meðan förðunar- og
hárgreiðslumeistarar vinna. Einnig
þarf að koma fyrir sendihljóðnemum
á okkur. Ég notaði tækifærið þegar
það gafst til að athuga hver myndi
heimsækja mömmu á spítalann en
hún liggur á sjúkrahúsi um þessar
mundir. Þá athugaði ég einnig klippi-
tíma fyrir pistla, fróðleiksmola um
Veðurstofuna, sem ég ætla að koma
inn í nítján nítján á næstu dögum.
Rabb á milli veðurs
Á milli þess sem ég hleyp og segi
veðurfréttir rabba ég við Eirik Jóns-
son, Arnar hárgreiðslumeistara,
sminkuna eða einhveija aðra. Þor-
geir Ástvaldsson kom og tók við mig
viðtal fyrir morgunþáttinn sinn og
ég náði að vera kominn heim um
níuleytið. Þá þurfti að afgreiða eitt
eöa tvö símtöl. Ég eyddi kvöldinu
síðan fyrir framan sjónvarpið en fór
þó tiltölulega snemma í rúmið enda
dagurinn erilsamur. Ég gaf mér þó
tíma til að glugga aðeins í bækur sem
Uggja á náttborðinu.
Ég vaknaði klukkan fimmtán mín-
útur yfir sjö. Um þessar mundir
starfá ég sjálfstætt þannig að vinnu-
tíminn er sundurshtinn og oft þarf
ég að fara á marga staöi. Starfið felst
í ritstörfum, dagskrárgerð og ráðgjöf
ýmiss konar. Ég byijaði daginn á að
keyra konuna mína, Maríu, í vinn-
una. Þar sem ég nota bíUnn miklu
meira en hún lendir það á mér að
vera bílstjóri á morgnana. Hún vinn-
ur sem vaktstjóri hjá þjónustuíbúö-
um aldraðra og mætir eldsnemma í
vinnuna.
Þegar ég kom heim aftur var kom-
inn tími til að koma ungunum í skól-
ann. Helga Sigríður er átta ára en
einnig á ég átján ára son sem er í
Menntaskólanum við Sund og þarf
að koma þeim báðum af stað skól-
ann. Einnig er í húsinu listaspíra
með kærastanum en þau sjá um sig
sjálf en hún fer í Handíða- og mynd-
Ustarskólann. Þegar þessu öUu var
lokið þurfti að viðra hundinn en við
eigum fjögurra mánaða hvolp.
Ég held að klukkan hafi verið að
verða níu þegar ég lauk við að koma
í mig skyrinu og kom mér því næst
upp á Stöð 2. Þar átti ég að vera
mættur níu til að klippa tvö innslög,
eitt í fréttirnar um nýuppgötvaðan
jarðhita í HofsjökU en þangað fór ég
um síðustu helgi. Einnig þurfti ég
klippa innslag í þáttínn Visa-sport
en það var um leiðangur á fáfarinn
tind á HofsjökU miðjum sem er nafn-
laus. Þetta tók um þijá tíma en þá
gafst mér tími til að ræöa við Ingva
Hrafn um viðbót við veðurfregnirnar
á Stöð 2. Viö ætlum að bæta þjónustu
þar og lögðum línur í því.
Sústuttavill
beikon og egg
Það var kappsmál mitt að vera
kominn heim klukkan eitt því þá
kemur Helga Sigríður úr skólanum
og ég þarf að taka á móti henni.
Uppáhaldshádegisverður hennar er
Ari T rausti gengur frá málverkum eftir föður sinn, Guðmund Einarsson frá Miðdal, ásamt bróður sínum, Agli Má.
DV-mynd Brynjar Gauti
beikon og egg. Aftur þurftí svo að
viðra hundinn.
Það biðu mín skilaboð að hringja í
Saga-Film en ég hef verið að vinna
kynningarefni um myndir sem fyrir-
tækið framleiðir. Það þurfti að búa
tíl enska kynningu með tveimur
myndum sem eiga að fara á erlendan
markað, um hvalaskoðun undan
Hornafirði og jöklaferðir og mynd
um Þjórsárver. Einnig þurftí að
skipuleggja fund um nýtt verkefni
sem er í uppsiglingu. Þá þurftí ég að
kíkja í tölvuna og laga myndatexta í
óútkomna bók hjá Vöku-Helgafelli.
Þaö er bók sem ég er að vinna, reynd-
ar önnur af tveimur, um eldvirkni á
íslandi.
Aldarafmæli
undirbúið
Um tvöleytið þurfti ég að vera kom-
inn upp í Grafarvog að hitta bróðir
minn en þar biöu kassar með mál-
verkum eftir foður okkar, Guðmund
Einarsson frá Miðdal. Við þurftum
að ganga frá myndunum sem voru á
leið á sýningu í Listasafni Akur-
eyrar. Það er byrjunin á mörgum
sýningum sem verða næsta tvö árin.
En faðir okkar hefði orðið eitt hundr-
að ára árið 1995.
Skrifað til Pólverja
Þegar ég kom heim aftur hringdi
ég í Landgræðsluna, en þar hef ég
Málverkum pakkað niður
Finnur þú fimm breytingar? 250
Nafn:
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefiir
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar, sem eru í
verðlaun, heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og
Banvæn þrá. Bækumar em gefnar
út af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 250
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavfk
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fertugustu og áttundu get-
raun reyndust vera:
1. Guðrún Lísbet Níelsdóttir,
Garðarsvegi 22,
710 Seyðisfirði.
2. Steinþór G. Stefánsson,
Brú 2,
701 Egilsstaðir