Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994
41
Það verður erfitt fyrir dómarana að velja ur þessum glæsilega hópi.
Einn keppendanna, Arnfríður Arnardóttir, var fjarverandi þegar DV leit
inn á æfingu en hinar heita, talið frá vinstri, Marianna Hallgrimsdóttir,
Svava Kristjánsdóttir, Hafrún Ruth Backmann, Sigurbjörg Kristin Þor-
varðardóttir, Ingibjörg Nanna Smáradóttir, Bryndís Fanney Guðmunds-
dóttir, Valgerður Björg Jónsdóttir. Neðri röð, frá vinstri, Harpa Másdótt-
ir, Margrét Skúladóttir, Birna Bragadóttir, sem sigraði í fyrirsætukeppni
Ford og DV 1991, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Sara Guðmundsdóttir og
Unnur Guðný Gunnarsdóttir. Fyrir framan þær er danshópurinn Battú
sem tekur þátt í uppsetningu á söngleiknum Grease krýningarkvöldið.
DV-myndir VSJ
Fegurdardrottning Reykjavíkur:
Undirbún-
mgura
lokastígi
Það var mikið um að vera á svið-
inu á Hótel íslandi þegar DV leit
þar inn í vikunni. Þrettán glæsileg-
ar stúlkur dönsuðu um sviðið í
sundbolum og hefðu líklega margir
karlmenn viljað taka að sér starf
blaðamannsins þetta kvöld. Þær
voru að undirbúa sig fyrir keppn-
ina um titilinn ungfrú Reykjavík
sem fram fer annan í páskum.
Nú er búið að krýna fegurðar-
drottningar Vesturlands, Noröur-
lands, Suðurlands, Suðurnesja og í
kvöld er komið að fegurðardrottn-
ingu Austurlands.
Það eru fjórtán stúlkur sem taka
þátt í keppninni Ungfrú Reykjavík
að þessu sinni. Að sögn Estherar
Finnbogadóttur, framkvæmda-
stjóra Fegurðarsamkeppni íslands,
byijaði hún strax í október að svip-
ast um eftir stúlkum fyrir keppnina
en vahnu lauk ekki fyrr en um
mánaðamótin janúar-febrúar.
Um leið og búið var að velja hóp-
inn hófu stúlkumar strax að æfa
hkamsrækt í World Class auk þess
sem Unnur Amgrímsdóttir kenndi
þeim framkomu og göngu á sviði.
Á krýningarkvöldinu, sem fram
fer á Hótel íslandi, kemur th meö
að ríkja Grease-stemning því Hel-
ena Jónsdóttir er því sem næst
búin að setja upp söngleikinn með
aðstoð söngvaranna Eyjólfs Krist-
jánssonar og Sigríðar Beinteins-
dóttur og dansflokksins Battú.
Stúlkumar sem taka þátt í keppn-
inni verða þó ekki aðgerðalausar á
meðan á sýningunni stendur því
þær ætla að taka sporið með dans-
flokknum og er það nýjung í keppni
af þessu tagi.
Þegar búið er að velja ungfrú
Reykjavík má segja að púhð byrji
fyrir alvöru, því þá koma stúlkum-
ar utan af landi og undirbúningur-
inn fyrir sjálfa aðalkeppnina fer á
fulla ferð. Fegurðardrottning ís-
lands 1994 verður svo vahn þann
20. maí á Hótel íslandi. Fegurðar-
drottning íslands 1993, Svala Björk
Arnardóttir, veröur reyndar ekki
viðstödd krýningu arftaka síns þar
sem hún verður fuhtrúi íslands í
keppninni um Miss Universe sem
fram fer í Manilla á Filippseyjum
daginn eftir.
-HMR
Stúlkurnar æföu allt mánudagskvöldið á sundbolum og háhæluðum
skóm en á þessari mynd eru þær að æfa síðustu innkomu sína þar sem
þær verða klæddar síðkjólum.
íslenskt sælgæti,
bækur og kirkjukaffi
rDV lítur inn í Jónshús í Kaupmannahöfn
Rakel Matthiasdóttir, til vinstri, ásamt syni sínum Daníel Haukssyni og Stef-
aniu Ómarsdóttur hálfsystur sinni sem vinnur í veitingastofunni. í Jónshúsi
fer fram fjölbreytt menningqrstarfsemi og þjónusta viö íslendinga búsetta
í Kaupmannahöfn og Dani sem vilja svala fróðleiksþorsta sínum um land
og þjóð.
Það eru ahtaf einhverjar sýningar
í gangi aht árið og kostar ekki nema
100 krónur danskar á mánuði að
leigja sahnn, eða um ehefu hundruð
krónur íslenskar og við skiptum um
sýningu mánaðarlega,“ segir Rakel
Matthíasdóttir, starfsmaður í veit-
ingasölunni í Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn, en þangað sækja íslend-
ingar sem búsettir eru í borginni til
að sýna sig og sjá aðra landa sína.
Veitingasalan í Jónshúsi er að nafn-
inu th rekin af Rut Ragnarsdóttur
en hún er móðir Rakelar sem sér um
reksturinn fyrir móður sína.
Margireigaerfítt
með að finna Jónshús
„Flestir sem koma hingað í veit-
ingastofuna eru íslenskir námsmenn
í Kaupmannahöfn. Þeir koma th að
spjalla og líta í íslensku blööin sem
hest eru send hingað. Einnig er
nokkuð um að hér hti inn feröamenn
sem stoppa tímabundið í borginni.
Það hefur hins vegar verið vandamál
að margir eiga í erfiðleikum með að
finna staðinn," segir Rakel.
Jónshús stendur við Östervoldgade
12 og th að komast aö því er tekinn
strætisvagn númer 1 eða 6 frá Ráð-
hústorginu og farið úr honum við
lestarstööina í Österport og er þá
ekki eftir nema þriggja mínútna
gangur að „Islands kultur hus“, eins
og Jónshús kallast upp á dönsku.
Þennan mánuðinn er í gangi sýn-
ing á verkum konu frá Kalkútta á
Indlandi, Aahyah Gupta, en hún er
gift íslenskum manni og hefur oft
komið th íslands og málaö myndir
héðan.
Veitingastofan í Jónshúsi er opin
íjóra daga vikunnar; á sunnudögum
frá klukkan 2-6 síðdegis, á miðviku-
dögum frá kl. 3-8 og fhnmtudaga og
fóstudaga kl. 5-8. Auk þess er hægt
að leigja veitingasalinn undir einka-
samkvæmi. Á sunnudögum er hoðið
upp á kaffihlaðborð og auk þess er
kirkjukaffl síðasta sunnudag í hverj-
um mánuði eftir íslendingamessu í
St. Poulskirkju sem stendur spöl-
kom frá Jónshúsi.
Auk almennrar veitingasölu er selt
góðgæti frá íslensku sælgætisverk-
smiðjunum og er þaö vinsælt hjá
landanum sem ekki hefur séð ís-
lenskt sælgæti svo mánuðum skiptir.
Fjölbreytt menningar-
starfsemi í Jónshúsi
En kaffihúsið er ekki nema brot af
fjölbreyttri starfsemi sem fram fer í
húsinu sem er á fjórum hæðum og í
eigu íslenska ríkisins. Þar er rekin
menningar- og upplýsingamiðstöð
sem Helga Guðmundsdóttir veitir
forstöðu. Miðstööin heldur uppi fjöl-
hreyttri þjónustu við íslendinga bú-
setta í borginni svo og alla þá sem
þurfa á einhveijum upplýsingum að
halda um ísland. Þar er íslendingafé-
lagið með aðstöðu og þar hefur ís-
lendingapresturinn í Kaupmanna-
höfn, séra Lárus Þorvaldur Guð-
mundsson, íbúð og starfsaðstöðu, en
hann er auk þess umsjónarmaður
hússins og minningarsafns Jóns Sig-
urðssonar sem er á þriðju hæð húss-
ins. Auk þessa er í húsinu bókasafn
með íslenskum bókum sem opið er
tvo daga vikunnar, sunnudaga og
miðvikudaga.
Starfsemin í Jónshúsi er blómleg á
vetuma en á sumrin færist værð yfir
húsið. Þannig er lítiö um að vera í
júlímánuði og veitingasalan lokuð
enda fólk í sumarleyfuin og íslenskir
námsmenn heima á klakanum að
vinna sér inn vasapeninga fyrir
næsta vetur.
Texti og myndir: Jón Þórðarson
Góðir skór í páskaferðalagið
GOTT VERÐ
ecco
Laugavegi 41 - sími 13577
PÓKÐAK
geeðí; Oíjp pjÓYUAútCK'
KIRKJUSTRÆTI8
S ÍM I 1 4 1 B 1
Eruð þið orðnir þreyttir á margendurteknum sprunguviðgerðum. Talið við okkur því við höfum
lausnina. Síðan árið 1981 höfum við klættyfir 500 hús víðs vegar um landið meðlSPO-MÚR.
ISPO-MÚR er góður og ódýr kostur.
/SPO-klæðning er mun ódýrari en þú heldur. Gerum föst verðtUboð þér að kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3, 210 Garðabæ, sími 658826, fax 658824
Húseigendur