Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1994, Síða 30
42
LAUGARDAGUR 26. MARS 1994
íþróttir
DV ræðir við Petr Baumruk, Tékkann í handboltaliði Hauka:
Gæti ekki hugsað
mér að leika með
neinu öðru félagi
Það var fyrir fimm árum sem Hauk-
ar komu auga á þennan snjalla leik-
mann. Viggó Sigurðsson, sem þá
þjálfaði Hauka, sá Baumruk í leik
með Tékkum gegn íslendingum í
Laugardalshöllinni í febrúar 1989.
Strax eftir leikinn hafði Viggó tal af
Baumruk og ræddi þann möguleika
að hann kæmi til félagsins. Baumruk
tók sér góðan tíma til að gera upp
hug sinn, enda með íleiri tilboð upp
á vasann, en að lokum tók hann þá
ákvörðun að koma til íslands. Hann
lék fyrst með Haukum í úrslita-
keppni 2. deildar í ágúst 1989 þar sem
Haukar tryggðu sér 1. deildar sæti
og eftir það hefur leiðin legið upp á
við hjá félaginu.
„Avidesa á Spáni og Essen í Þýska-
landi töluðu einnig við mig en eftir
langa umhugsun ákvað ég að taka
tilboði Haukanna og sé ekki eftir
því. Mér hefur liðið einstaklega vel
hjá Haukum og ég gæti ekki hugsað
' mér að leika meö neinu öðru félagi,“
sagði Baumruk í spjalli við DV. Hann
býr ásamt konu sinni Jaroslövu
Baumruk í Hafnarfirði. Þau eiga
saman tvær stúlkur, Petreu, 8 ára,
og Katarinu, 5 ára, og á mánudaginn
eignuðust þau þriðja bamið þegar
Jaroslava fæddi myndarlegan dreng
á faeðingardeild Landspítalans.
„Ég var sjö ára gamall þegar ég
byijaði að æfa handbolta og lék þá
með liði sem heitir Shclovosice. 17
ára gamall komst ég í unglinga-
landsliðið. Þegar ég var 18 ára gekk
ég í herinn og þar æfðum við hand-
bolta. Stóru félögin í Tékklandi fylgd-
ust með strákum í hemum og það
var þá sem Dukla Prag kom auga á
' mig. Ég gekk til hðs við félagið og lék
með því í níu ár,“ segir Baumruk.
Hann vann sér fljótlega sæti í tékk-
neska landsliðinu og var þar fasta-
maður í mörg ár. Hann á að baki 145
landsleiki og hann lék með landslið-
inu á tvennum ólympíuleikum. í Se-
oul í Kóreu 1988 og í Barcelona 1992
og eftir leikana í Barcelona hætti
hann í landsliðinu. Barda, sem nú
er landsliðsþjálfari Tékka, haföi
samband við Baumruk ekki alls fyrir
löngu og bað hann að leika með
landsliðinu mikilvægan leik gegn
Slóvenum í Evrópukeppninni en
' Baumruk gaf ekki kost á sér.
Baumruk fékk mikla viðurkenn-
ingu á ferli sínum árið 1989 en þá var
hann valinn íþróttamaður Tékkósló-
vakíu.
Eins og ein
stór fjölskylda
„Mér og fjölskyldunni hefur liöið
- Óhætt er að segja aö Tékkinn Petr
Baumruk hafi verið mikill hvalreki
á fjörur handknattleiksdeildar
Hauka þegar hann gekk til liðs við
félagið fyrir fjórum árum. Þessi
kraftmikli leikmaður hleypti strax
nýju blóði í Haukaliðið og frá því að
vera miðlungslið á íslenskan mæli-
kvarða eru Haukamir nú með eitt
albesta lið landsins og á dögunum
hampaði liðið bikar í fyrsta sinn í
rúm 40 ár þegar Haukar urðu deild-
armeistarar.
Á þessum fjórum árum hefur
Baumruk leikið stórt hlutverk með
Haukaliðinu. Hann hefur stjórnað
varnarleik liðsins af festu og skorað
mikið af mörkum og það er á engan
hallað að segja að Tékkinn hafi verið
kjölfestan í leik Hauka.
Stolt fjölskylda á fæðingardeildinni. Petr Baumruk, kona hans Jaroslava Baumruk, Petra og Katarina eru hér ásamt nýja fjölskyldumeð-
limnum á fæðingardeild Landspítalans í vikunni. DV-mynd Brynjar Gauti
mjög vel á íslandi. Hér er gott að
búa, loftið hreint og tært og fólkið
vingjarnlegt, en það sem helst er
hægt að setja út á er veðrið og dýrtíð-
in. Strákamir í Haukum og allir for-
ráöamenn félagsins hafa tekið okkur
einstaklega vel og félagið er eins og
ein stór fjölskylda. Allir hafa keppst
um að hjálpa okkur. Það hefur kom-
ið til tals hjá okkur að setjast að á
íslandi og þá að sækja um íslenskan
ríkisborgararétt og ég hef rætt við
Þorgeir Haraldsson, formann hand-
knattsleiksdeildarinnar, um þau
mál.“
Jaroslava kona Baumruks vinnur
á röntgendeild Landspítalans, Petra
er í skóla og Katarina í leikskóla og
tala þær allar mjög góða íslensku.
Baummk hefur hins vegar verið lat-
ur við að læra málið en nú horfir
allt til betri vegar þvi á æfingum
hefur Jóhann Ingi fyrirskipaö að
aðeins megi tala íslensku við
Baumruk. Baumruk starfar hjá
handknattleiksdeild Hauka og þjálf-
ar yngri flokka félagsins. Hann
stundaði nám í íþróttafræðum í rúss-
neskum skóla í Tékklandi og Haukar
hafa verið mjög ánægðir með störf
hans.
Hef áhuga á að
þjálfa Haukana
Haukar hafa haft góða þjálfara í sín-
um herbúðum undanfarin ár. Nú
þjálfar Jóhann Ingi Gunnarsson liðiö
og á undan honum var Viggó Sig-
urðsson við stjómvölinn. Jóhann
Ingi er með samning út þetta keppn-
istímabil og mun að öllum líkindum
framlengja samning sinn til eins árs.
Eftir það er allt óljóst en óneitanlega
hefur nafn Petr Baumruks komið
upp þegar rætt er um þjálfara. En
hefur hann sjálfur áhuga á því?
„Já, ekki neita ég því að ég hefði
áhuga en í dag er of snemmt að ræða
þetta. Ég einbeiti mér núna 100% að
því að spila handbolta og meðan ég
er í góðu formi ætla ég að halda
áfram í handboltanum á fullu."
- Hvernig finnst þér handboltinn á
íslandi standa?
„Aðalvandamálið í íslenskum
handknattleik að mínu mati er að
menn nenna eöa vilja ekki spila vöm.
Sóknarleikurinn er góður en ætli
menn sér að ná langt verður að bæta
varnarleikinn. Ég hef séð miklar
framfarir í handboltanum hér á landi
síðan ég kom hingað fyrst og nú em
8-10 mjög góð lið hér á landi þar sem
munurinn á þeim er ekki svo mikill.
Heima í Tékklandi er breiddin ekki
svona mikil því þar em einungis 2-3
hð sem em sterk. Ég sé mikinn mun
á íslenska landsliðinu hér heima og
í leikjum erlendis. Liðið spilar vel á
heimavelli en getur leikið mjög illa á
útivöllum. Mér finnst mjög raunhæft
að segja að ísland geti orðið í 4.-5.
sæti á HM hér á landi 1995.“
Haukar og Selfoss
leika til úrslita
- Nú liður að úrslitakeppninni.
Hverju spáir þú um leikina þar?
„Það er mjög erfitt að spá fyrir um
hvaða hð verður íslandsmeistari.
Mér sýnist að allir leikirnir í 8-liða
úrslitunum verði mjög spennandi.
Ég spái þó að við vinnum Aftureld-
ingu, Víkingur vinni FH, Selfoss
vinni KA og að Valur vinni Stjörn-
una. í undanúrslitunum vinnum við
Víking og Selfoss tekur Val og th
úrshta um titihnn leika Haukar og
Selfoss. Það er alltaf erfitt að leika
gegn hðum eins og Selfossi, Val og
FH og þetta eru yfir höfuð erfiðustu
andstæðingamir."
- Geturðu nefnt einhverja leikmenn
á íslandi sem eru öðrum fremri?
„Það eru margir góðir leikmenn á
íslandi og breiddin er ahtaf að auk-
ast. Valdimar Grímsson og Sigurður
Sveinsson koma svona fyrst upp í
hugann, þar eru toppleikmenn á ferð.
Þeir eru afburðasóknarmenn en eins
og fleiri eru þeir ekki góðir varnar-
menn. Mér fannst Kristján Arason
frábær leikmaður í sókn sem vörn
þegar hann var heih. Annars finnst
mér þessir eldri leikmenn hér á ís-
landi yfir höfuð mjög góðir og get þá
nefnt menn eins og Sigga Sveins,
Alfreð og Pál Ólafsson. Þá em marg-
ir ungir og efnilegir strákar í hand-
boltanum hér, og þá get ég nefnt
mann eins og Dag Sigurðsson í Val,“
sagði Baumruk.
Gefhonum
toppeinkunn
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari
Hauka, var inntur áhts á Petr
Baumruk.
„Baumruk er alveg einstakur
íþróttamaður og er atvinnumaður í
hugsun. Hann leggur sig 100% fram
á hverri æfingu, hann setur aldrei
út á störf þjálfara og það er alveg
sama hvað það er. Þó svo að ég léti
strákana í bahett myndi Baumruk
segja það vera rétt þvi það er þjálfar-
inn sem ræður. Hann er greinilega
ahnn þannig upp, er samviskusamur
og er sannur íþróttamaður. Hann var
mjög sterkur fyrst þegar hann kom
th Haukanna fyrir fjórum árum en
síðan var hann aðeins farinn að dala
á þriðja árinu. Síðan kom hann mjög
sterkm- upp í fyrra, skoraði þá mjög
mikið, en í ár hefur hann verið hðs-
hehdarmaðurinn og verið sérlega
sterkur að undanfórnu. Hann er kjöl-
festan í vamarleiknum og hefur ver-
ið mjög vaxandi sem sóknarmaður.
Baumruk og fjölskylda hafa aðlag;
ast mjög vel hér á landi og hann hef-
ur verið að skha mjög góðu starfi sem
þjálfari hjá félaginu. Eg sé alveg fyr-
ir mér í náinni framtíð að hann taki
við Haukahðinu þegar fram hða
stundir. Ég gef honum því alveg topp-
einkunn bæði sem íþróttamanni og
rnanni."
Ég sé ekkert
fararsnið á honum
Þorgeir Haraldsson, formaður hand-
knattsleiksdehdar Hauka, tekur
undir orð Jóhanns: „Við vorum ofsa-
lega heppnir að fá Baumruk og höf-
um átt mjög góð samskipti við hann
og fjölskyldu hans. Hann hefur unnið
einstaklega gott starf hjá okkur og
ég tel aö hann eigi mjög stóran þátt
í gengi Haukaliðsins í vetur. Störf
Viggós og Jóhanns Inga ásamt komu
Baumruks eru grunnurinn að þess-
ari velgengni- Ég sé því ekkert farar-
sniðáhonum." -GH
* ý
Get vel hugsað mér að
setjast að á f slandi