Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Síða 5
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
5
pv Fréttir
Jón heims-
meistari í
einmenningi
Jón Baldursson bridgespilari varö
meistari á stóru móti sem n.efnt hefur
veriö óopinbert heimsmeistara-
keppni í einmenningi í París í gær.
Jón var með forystu á mótinu á
fimmtudag en féll niður í annað sæt-
ið á tímabili í gær. Jón náði síðan
forystunni á ný og hélt henni þar til
yfir lauk. Árangur Jóns telst frábær
ekki síst í ljósi þess að á mótinu voru
margir heimsþekktir spilarar. Jón
var eini íslendingurinn sem var boð-
ið að fara á mótið en skilyrði til þess
að fá að vera með er að hafa unnið
til verðlauna á heimsmeistara- eða
Evrópumóti.
Jón hlaut 1.350,6 stig í gær. í öðru
sæti varð Frakkinn Mari með 1.347,9
stig, í þriðja sæti varð Frakkinn
Westerhof með 1,321,8 stig, Frakkinn
Roudinesco varð í fjórða sæti með
1.317 stig, ítalinn Vertsace í fimmta
sæti með 1.315 stig og í sjötta sæti
hinn þekkti Chagas frá Brasilíu með
1.311,1 stig.
Hæstiréttur:
Flugmaður í
skilorðsbund-
ið varðhald
Flugmaður Flugfélags Norður-
lands hefur verið dæmdur í Hæsta-
rétti til að sæta varðhaldi í þrjá mán-
uöi vegna gáleysis og ónógrar að-
gæslu við stjórn flugvélar sem hann
lenti á utan flugbrautar á Ólafsíjarð-
arflugvelli haustið 1992. Dómurinn
er skiiorðsbundinn til tveggja ára.
Flugbrautin á Ólafsfjarðarflugvelli
er malarbraut. Meðfram henni er
svokallað öryggissvæði, jafnbreitt
flugbrautinni, gróið gulleitu órækt-
argrasi. Lenti flugstjórinn vélinni
með 18 farþegum á þessu svæði og
hélt sig vera að lenda á flugbrautinni.
Þegar flugstjórinn var í aðflugi var
birtan hratt dvínandi og umhverfið
allt mjög dökkt eða nánast dimmt.
Taldi dómurinn, og studdist þar við
lokaorð skýrslu Flugmálastjórnar og
Flugslysanefndar, að flugstjórinn
hefði átt að hætta aðfluginu og
hverfa frá og halda til dæmis til Ak-
ureyrar. Hann hefði hins vegar lent
vélinni þótt hann greindi ekki flug-
brautina framundan og tekið mikla
áhættu að ástæðulausu.
Hæstiréttur klofnaði í afstöðu sinni
og vildu tveir dómaranna svipta
hann flugréttindum, líkt og héraðs-
dómur hafði dæmt.
íslandsbankabréfin:
Gengi hluta-
bréfa lækkaði
„Hafi verið blásin upp blaðra á
fimmtudaginn þá sprakk hún í dag,“
sagði einn verðbréfasali við DV í gær
um sölu á hlutabréfum í íslands-
banká. Lokagengi bréfanna í gær var
0,89 eða 7% lægra en lokagengi
fimmtudagsins. Sem kunnugt er
ruku bréfin upp í verði á fimmtudag
um nær 20%.
Viðskipti meö hlutabréf íslands-
banka voru upp á rúmlega 15 mfllj-
ónir króna í gær. Um hádegisbil stóð
gengið í 1,03 eða rúmlega nafnvirði
bréfanna. Eftir því sem leiö á daginn
lækkaði gengið stöðugt og endaði í
0,89 eins og áður segir.
ja g **
K I^ í |
BLJB ™Sí &sfzæ£ ú
notuðum
bílum
Á FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG
LAUGARDAG HELDUR GÓÐIR BÍLAR
A GOÐU VERÐI REYNDAH A ÞETTA VIÐ UM ALLA AÐRA DAGA LlKA ► U ÆTTIR AD TA VfROLAUN TVRlR AO QtTA 111« — ( TTA
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL KL. 18 OG LAUGARDAGA KL. 10-17.
ÖRFÁ SÝNISHORN AF NOTUÐUM BÍLUM AF ÝMSUM GERÐUM Á SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐI
MMC Lancer GLSi '91, sjálfsk., m/od.,
ek. 33.000. V. 890.000.
BMW 520i '89, sjálfsk., ek. 59.000.
V. 1.490.000.
MMC Galant GLSI '88, sjálfsk. m/od,
ek. 84.000. V. 790.000.
Lancia 410, árg., 87, 5 g., ek. 55.000.
V. 170.000.
Toyola Corolla XL ’91,5 g., ek. 75.000.
V. 590.000.
Subaru Legacy GL, '91, ek. 43.000,
sjálfsk., 4x4. V. 1.290.000.
SÝNISHORN AF ÚRVALINU AF NOTUÐUM DAIHATSU OG VOLVO BÍLUM MEÐ G MÁNAÐA ÁBYRGÐ
Volvo 740 GL, '87, ek. 71.000, 5 g.
V. 890.000.
FAXAFENI8 • SÍMI91-68 58 70
Volvo 240 GL, '88, ek. 81.000, sjálfsk.
V. 870.000.