Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Page 9
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994
9
DV Sviðsljós
Priscilla
Presley nýt-
ur lífsins
Priscilla Presley, sem er orðin 48
ára gömul, segist loksins finna fyrir
því að hún standi ekki lengur í
skugga fyrrum eiginmanns síns, El-
vis Presley. Eftir að hafa búið með
Elvis í fjórtán ár var það nær ómögu-
legt fyrir Priscillu að lifa eigin lífi.
Almenningur vildi ekki að hún væri
neitt annað en frú Presley, jafnvel
eftir skilnað þeirra árið 1973. Þegar
Elvis féll frá árið 1977 var hún jafnan
kölluð ekkjan hans.
Priscilla telur að kvikmyndimar
Naked Gun, sem hún hefur leikið í,
hafi hjálpað henni til að skapa sér
eigið nafn. „Þessar bíómyndir hafa
gefið fólki nýjar hugmyndir um
mig,“ segir hún. „Það sér að ég er
ekki postulínsdúkka."
Þriöja Naked Gun-myndin er nú
sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum.
Priscilla leikur eitt hlutverkiö og hún
hefur samþykkt að vera með í fjórðu
Naked Gun-myndinni. Hún byijaði
leikferil sinn sem Janna í Dallasþátt-
unum og eftir að hafa unnið við þá
í fimm ár fékk hún fyrsta kvik-
myndatilboðið um leik í fyrstu
Naked Gun-myndinni.
Priscilla hefur einnig verið að
koma með á markað snyrtivörur og
Omvatn undir eigin nafni. Auk þess
þénar hún vel á Elvis og hefur keypt
verslanir og veitingahús nálægt
Graceland, sem var heimili þeirra
Elvis, en þangað streyma milijónir
ferðamanna á hveiju ári.
Elvis og Priscilla áttu saman eina
dóttur, Lisu Marie, en síðan hefur
Priscilla eignast son sem nú er sjö
ára. Hún býr með barnsfóöur sínum,
Marco Garibaldi, sem er tíu árum
yngri en hún sjálf.
Priscilla segir að það sé auðvelt að
sameina starfið og móðurhlutverkið.
„Ég vakna klukkan sex á morgnana,
keyri síðan soninn í skólann og vinn
síðan á skrifstofu minni sex tíma.
Eftir skólatíma er ég með syninum,"
segir hún.
I haust ætlar Priscilla að leika í
gamanmyndaflokki fyrir sjónvarp
sem þá verður hafin framleiðsla á.
Hún hefur því nóg að gera og þarf
vart að kvíða framtíðinni.
Opið virka daga
kl. 13-18.
ARMASUPRA
sérverslun með
hermannafatnað
Hverfisgötu 64a
Sími 622322.
WWW EBSB8
I
I
Er HALFT AR I BILPROFIÐ
- eða um það bil?
Samkvæmt umferðarlögum má ökunám hefjast sex mánuðum áður en
nemandi hefur aldur til að fá ökuskírteini til að aka bifreið eða bifhjóli.
Dómsmálaráðherra hefur nú jafnframt nýtt heimild í lögunum og breytt
reglugerð um ökunám á þá leið að nú geta foreldrar eða aðrir nákomnir
tekið þátt í undirbúningi fyrir ökupróf. Um er að ræða akstursþjálfun sem á
að koma til viðbótar hefðbundinni ökukennslu.
HVERNIG FER ÞETTA FRAM?
Nemandi og leiðbeinandi kynna sér þá möguleika sem fyrir hendi eru í
ökunámi og velja ökukennara sem kennir undirstöðuatriði góðs aksturs.
Þegar ökukennarinn telur tímabært getur þátttaka leiðbeinanda hafist.
Umsóknareyðublað um leyfi til leiðbeinandaþjálfunar fæst hjá ökukennara
(eða á lögreglustöð). Umsókn er skilað til lögreglustjóra ásamt vottorði
ökukennara um færni nemanda og staðfestingu tryggingafélags.
Lögreglustjóri kannar akstursferil þeirra sem vilja leiðbeina og gefur út leyfið
ef allt er í lagi, að jafnaði til níu mánaða.
Skilyrði leyfisveitingar:
• að leiðbeinandi hafi náð 24 ára aldri og hafi gild ökuréttindi
til að stjórna þeim flokki ökutækja sem æfa á akstur með og
a.m.k. fimm ára reynslu af slíkum akstri,
• að leiðbeinandi hafi ekki á undangengnum 12 mánuðum
verið án ökuskírteinis vegna ökuleyfissviptingar eða verið
refsað fyrir vítaverða aksturshætti.
Þegar leyfið er fengið fær leiðbeinandinn bækling Umferðarráðs
Leiðbeinandaþjálfun í ökunámi sem hann notar við æfingaaksturinn
og merki hjá ökukennaranum til þess að setja á bílinn
ÆFINGAAKSTUR
Þegar æfingatímabilinu lýkur og ökupróf nálgast tekur ökukennarinn við að
nýju og lýkur undirbúningi.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umferðarráði í síma (91)-622000.
MINNUMST ÞESS AÐ VARKÁR VEL ÞJÁLFAÐUR
ÖKUMAÐUR BREGST
BETUR VIÐ ÓVÆNTUM AÐSTÆÐUM í UMFERÐINNI.
ÞAÐ ER KJARNI MÁLSINS.
MEIRI ÞJÁLFUN - BETRI ÖKUMAÐUR.
Auglýsing sem
hagkvæmt
L getur verið A
k að Æ
mgeyma!/ '
æfingaaksturs
nemanda í atetni
:öferðis þegar
(leiöbeinandi
Lögreglustjórinn
Auglýsing sc
hagkvæmt
il
UMFERÐAR
RÁÐ
150 Reykjavík
I