Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994 11 Nýir framhaldsþættir á Stöð 2: Hvemig er best að nálg- ast heim óper- unnar? Þriðjudaginn 7. júní hefst á dagskrá Stöðvar 2 athyglisverður framhalds- þáttur sem nefnist Harry Enfield og heimur óperunnar. Þessi breski grín- isti og Emmy-verðlaunahafi opnar áhorfendum nýjan heim í sex þátta röð um margar af þekktustu óperum heims. Er óhætt að segja að þessir þættir sameini það tvennt að vera í senn fróðlegir og fyndnir. Enfield segist einkum hugsa þætt- ina fyrir þá sem elska geisladiskinn með tenórunum þrem, Carreras, Pavarotti og Domingo. Þessi hópur óperuaðdáenda veigri sér nefnilega oft við því að sitja í þrjá tíma í óperu- húsi og hafi ekki hugmynd um hvað sé að gerast á sviðinu þar sem allt fari þar fram á einhveiju gjörsam- lega óskiljanlegu tungumáh. Hvemig á að byrja? í fyrsta þætti fjallar Enfield um það hvemig hest sé að nálgast heim óper- unnar. Hann greinir einnig frá því hvað hafi orðið til þess að vekja áhuga hans á óperum og kynnir kafla úr einstökum óperuverkum. í öðrum þætti veltir hann því fyrir sér hvort það gæti ekki verið nytsam- legt fyrir fólk að kynna sér sögu- þráðinn áður en rokið er til og keypt- ir miðar í óperuna. í þriðja þættinum fjallar hann um þau ólíku raddsvið sem söngvarar búa yfir. Hann fær þau June Anderson og Leo Nucci sér til aðstoðar. í fjórða þætti tekst Enfield ferðalag á hendur. Hann er nú kominn ásamt fylgdarliði sínu til Ítalíu, lands óperutónlistarinnar. Þar heimsækir hann fæðingarstaði Puccinis og Ver- dis, auk þess sem hann nýtur óper- unnar Aidu undir berum himni með 20 þúsund öðrum gestum. í fimmta þættinum ræða þau Joan Sutherland, José Carreras og Placido Domingo við Enfield, auk þess sem sýndir verða stuttir kaflar með Call- as og Caruso. í síðasta þætti gefa þau Joan Sutherland, June Anderson, John Tomhnson og Placido Domingo góð ráð um það hvemig best sé að hefla inngönguna inn í heim óper- unnar og Elvis Costeho hefur hka ýmislegt til málanna að leggja. Þessir þættir eru hálftíma langir og hefst sýning hins fyrsta klukkan 22.25 þann 7. júní. býður sérstakt kvöldverðartilboð í tilefni sjómannadagsins Hvítvínssoðinn humar með pastablöndu og hvítlauksoliu eða rjómalöguð kjörsveppasúpa °g ristuð grisafiðrildasteik með ávaxtasalati og rauðvínssósu eða sitrónugljáð smálúðuflök með tómat-congassi sósu og vanilluís með heitri súkkulaðisósu ferskum ávöxtum og rjómatoppi Borðapantanir í síma 67 99 67 avegi 83 EINSÁRS -1AFMÆLISSKAPI BARCELONA Flug ogbíll 2 í bíl, verð frá 4 í bíl, verð frá 1 vika 37.540 kr.ámann 34.140 kr.ámann 2 vikur 44.340 kr. ámann 27.540 kr. ámann Flug og bíll - skemmtilegur ferðamáti til að kynnast Katalóníu, einu fegursta og fjölbreyttasta héraði Spánar. Barnaafsláttur er 9.500 kr. fyrir börn undir 12 ára. Innifalið er flug, bíll, ótakmarkaður akstur, skattur og flugvallagjöld. Flug og gisting i Barcelona í eina viku Verð frá 51.240 kr. á mann I tvíbýli. Innifalið er flug, gisting, morgunverður og flugvallaskattur. Barcelona kemur þér skemmtilega á óvart. Beint flug vikulega frá 17. júní Flug og gisting i Sitges i eina viku Verð I tvíbýli frá 59.230 kr. á glæsilegu hóteli í skemmtilegum strand- bæ örstutt frá Barcelona. Menningin og stórborgarlifið er aðeins i hálftima fjarlægð. Innifalið: flug, gisting, morgunverður - allir skattar og gjöld. Barnaafsláttur 2ja tii 11 ára kr. 9.500. Pantaðu í síma FERÐASKRIFSTOFA R71ZLQÍ1 2é reykjavíkur UL I I llU Aðalstræti 16 - simi 62-14-90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.