Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994 23 Þokki frá Bjarnanesi fékk landsmótseinkunnir í dómum á Fornustekkum. Knapi er Rúna Einarsdóttir. DV-mynd E.J. Þrír stóðhestar á Austurlandi á landsmót Kynbótahrossadómarar voru á ferö á Austurlandi nýlega aö dæma kynbótahross. Þorkell Bjarnason, Jón Finnur Hansson og Valdís Ein- arsdóttir sáu um dóma á Fornu- stekkum en Anna Bryndís Tryggva- dóttir kom í stað Valdísar í Stekk- hólma. Þrír stóöhestar náöu lágmarki fyrir landsmót en engin hryssa. Fornustekkar Þokki frá Bjamanesi var eini stóö- hesturinn sem fékk fullnaðardóm á Fornustekkum. Hann er undan Stormi frá Bjarnanesi og Glámu frá Eyjarhólum og er í eigu Olgeirs Ól- afssonar á Höfn. Þokki fékk 8,10 fyrir byggingu, 7,99 fyrir hæfileika og 8,04 í aðaleinkunn. Þrettán sex vetra hryssur voru full- dæmdar og átta þeirra fengu 7,50 eöa meira. Röst frá Kálfafelli fékk hæstu aðaleinkunn sex vetra hryssnanna, 7,77. Ein fimm vetra hryssa, Dimma frá Skálafelh, var fulldæmd og fékk 7,62 í aðaleinkunn. Stekkhólmi Fjórir stóðhestar voru fulldæmdir í Stekkhólma. Tveir þeirra fengu yfír 7,75, reyndar báðir yfir 8,00. Hrannar frá Höskuldsstöðum, und- an Ófeigi frá Flugumýri og Drottn- ingu frá Fremri-Hvestu, fékk 8,10 fyr- ir byggingu, hæfileika og í aðalein- kunn. Hann er sjö vetra og í eigu Mariettu Maissen á Höskuldsstöðum í Breiðdal. Hjörvar frá Ketilsstöðum, fimm vetra foh undan Otri frá Sauðárkróki og Hugmynd frá Ketilsstöðum, fékk 7,80 fyrir byggingu, 8,23 fyrir hæfi- leika og 8,01 í aðaleinkunn. Þrjátíu hryssur voru fulldæmdar og fengu sautján þeirra 7,50 í aðalein- kunn eða meira. Snegla frá Eyrarlandi stóð efst sex vetra hryssnanna með 7,96 í aðalein- kunn. Hún er undan Kjarval frá Sauðárkróki og Litlu-Jörp frá Eyrar- landi og er í eigu Hjördísar Sveins- dóttur á Eyrarlandi. Melódía frá Torfunesi stóð efst fimm vetra hryssnanna með 7,76 í aðaleinkunn og Gæla frá Úlfsstöðum fékk hæstu aðaleinkunn fjögurra vetra hryssna, 7,70. -E. J. ífmú TILBOÐ (/ á verkfærum Borvél, 700 W, me& stiglausum rofa, 2 gírar, í stáltösku m/fylg ihlut. Kr. 10.900. Beltaslípivél (skri&dreki), 1100 W. Kr. 8.900. Hitablásari, 1600 W, 2ja hra&a stiglaus rofi. Kr. 4.125. Vatnsdælur me& jöfnunarkút. Kr. 16.800. Háþrýstidælur, 120 bar, verð frá kr. 18.200. 150 bar, kr. 54.200. Vatnsdælur meö þrýstirofa. Kr. 17.400. Opi& laugardaga frá kl. 10-14 Faxafeni 9 • Sími 67Z332 Langt milli hrossa áVest- fjörðum Kristinn Hugason og Guð- mundur Sigurðsson fóru í yfir- reið um Vestfirði nýlega að dæma kynbótahross, Fai'ið var víða en einungis ell- efu hryssur voru fulldæradar. Sex þeirra fengu 7,50 eða meira í aöaleinkunn. Enginn sást stóð- hesturinn. Efst sex vetra hryssnanna er Snælda frá Þingeyri með 7,76 í aðaleinkunn. Efst flmm vetra hryssnanna er Spilfing frá Miðbæ Illb meö 7,72 í aðaleinkunn. -E.J. Þrjú þúsund kí ló - metra reiðtúr frá Danmörku til Spánar Undanfarin ár hefur áhugi vina ís- lenska hestsins aukist á ferðalögum. íslenski hesturinn þykir traustur, fótviss og þolinn og því vinsæll til ferðalaga. Mikið er af íslenskum hestum í Danmörku og hugmyndir Dana um langferðir eru nokkuð háleitar. í fyrra varð Paul Rask að hætta við ferðalag sem hann hóf í Danmörku og átti að enda í Kína. Rask var kom- inn til Úkraníu þegar að hann ákvað að hætta vegna ástandsins í landinu. Nú er annar Dani, Carsten Norden- hof lagður af stað með Dagfara sinn, sex vetra, til Spánar. í nýjasta hefti Tölts ritar Nordenhof um upphaf ferðalagsins. Þrjú þúsund kílómetra leið Ferðina hóf Nordenhof í Græsted á Norður-Sjálandi og ætlar sér að ríða einhesta til Santiago de Compostella á Norðvestur-Spáni. Þangað munu vera um þrjú þúsund og þrjú hundr- uð kílómetrar, en ekki er alltaf riðið beint af augum svo leiðin er töluvert lengri. 1. apríl voru 1.275 kílómetrar að baki, en samkvæmt áætlun verða þeir komnir til Spánar um miðjan júh. Þeir félagar fara sér hægt, yfirleitt um 25 kílómetra á dag. Riðið er í um það bil þijú korter en svo teymir Nordenhof Dagfara annað eins. Svo er riðið á ný í þrjú korter og tekið hlé. Þannig hður dagurinn. Móttökur hafa ahs staðar verið frá- bærar og fólk vill allt fyrir þá félaga gera. Það er hka eins gott, því farang- urinn er ekki mikill. Hann rúmast í tveimur töskum og er um það bil 25 kíló. Farangurinn ítveimurtöskum Að mörgu er að hyggja, meðal ann- ars járningunni. Skeifurnar eyðast tiltölulega fljótt svo vissara er að fylgjast vel með. Dagfari hefur reynst góður fuhtrúi íslenskra hesta. Hann er vissulega þreyttur á kvöldin en strax að morgni eru eyrun sperrt fram og þeir félagar leggja af stað í rólegheit- um. -E.J. Loftpressur, 320 I á minútu, 100 I kútur. Kr. 49.200. i'l i Stálhillur, 1 80x70x30 cm, 6 hillur. Kr. 3.850. Lóðbyssa, 100 w. Kr. 1.050. Viðgerðar-beddar Kr. 1.800. Verkfæraskápur me& 48 skúffum. Kr. 4.750. 2 tonna hjólatjakkur. Kr. 3.450. Tré-rennibekkur, 100 cm, 4ra hra&a, * ha, 800x2500 snún. Kr. 11.200.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.