Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ1994
27
Eggert í New York ásamt bandarískum sýningarstúlkum sem sýndu hönnun
hans á loöfeldum.
stærö. Vandamálin eru orðin gífurleg
vegna offjölgunar víða. í Suður-Afr-
íku þarf t.d. að drepa á aðra miiljón
sela á ári og öllu er hent. Þar er mik-
il fátækt og fólk sem sveltur en engu
að síður er verðmætum hent.“
Eggert segir að þrátt fyrir gífurleg-
an áróður gegn loðfeldum hafi þeir
aldrei selst jafnmikið og undanfarin
fimm ár. „Verðfall á skinnum varð
til þess að varan fór að seljast. Nú
er mikil uppsveifla og markaður og
eftirspum eru að ná jafnvægi. Ég
býst við að loðfeldir eigi eftir að
hækka mjög í verði á næstunni en
þessi uppsveifla hefur verið um alian
heim. Eg fann t.d. mjög fyrir henni
í New York. Menn eru mjög bjartsýn-
ir með framtíðina í þessari atvinnu-
grein,“ segir Eggert. Hann segir að
mjög hafi hjálpað hversu kaldir vet-
ur hafi verið undanfarið þannig að æ
fleiri konur kjósa að ganga í hlýjum
loðfeldum.
Hugað að haustinu
Nú er sumarið vonandi að ganga í
garð og þá eru loðfeldimir geymdir
inni í skáp. Það er þó nóg að gera
hjá Eggert því að hann er að und-
irbúa næsta haust. Hann fær alltaf
mikið af útlendum ferðamönnum til
sín og þeir hafa sýnt selskinnsjökk-
unum mikinn áhuga. Eggert hefur
vissulega fundið fyrir þeirri lægð
sem hefur verið í efnhagslífi á íslandi
en útlendingar bæta honum það upp.
„Selurinn er algjör nýjung á mark-
aðnum og hefur vakið verðskuldaða
athygh," segir Eggert.
Selskinnin fá sérstaka meðhöndlun
áður en þau fara á vinnuborðið hjá
Eggert. „Þau em send til Svíþjóðar
þar sem þau eru söltuð, sútuð og lit-
uð. Á Akureyri eru aðilar sem nýlega
hafa byrjað að súta selskinn en það
er ennþá í htlu magni.“
Ekki sama loðin
eða nakin skinn
Eggert fylgir tískustraumum í
hönnun sinni enda telur hann að
selskinnsjakkar og loðfeldir eigi að
fylgja tískunni. „Það er eins með
þessar fhkur og aðrar að fólk fær
leiða þegar þær hafa verið notaðar
til margra ára. Eftir tíu ár á flíkin
að vera búin að skila sínu. Þess vegna
er atriði að vera nógu duglegur að
nota flíkina meðan maður nýtur
hennar. Of margir kaupa sér dýrar
flíkur og tíma síðan ekki að nota
þær,“ segir Eggert en hann á og not-
ar selskinnsjakka.
Eggert segir að margt af því fólki
sem er að mótmæla seladrápi gangi
um á leðurskóm sem unnir eru úr
selaskinnum. „Það virðist skipta
miklu máh hjá mótmælendum hvort
hár em enn á húðinni eða hvort búið
er að taka þau af,“ segir hann.
Eggert var aðeins sautján ára þegar
hann ákvaö að verða feldskeri. „Ég
ætlaði reyndar að verða klæðskeri.
Ég fór um sumarið á sjó, var háseti
á Þormóði goða, og þegar við komum
til Bremenhaven sá ég pelsabúð í
fyrsta skipti á ævinni. Þá snerist mér
hugur og ég fór til London að læra
fagið. Þaðan lá leiðin til Svíþjóðar
þar sem ég var í rúm fimm ár,“ segir
Eggert feldskeri en pelsar hans hafa
jafnan vakið mikla athygh þegar
þátttakendur í Fegurðarsamkeppni
Islands sýna þá við upphaf keppn-
innar ár hvert.
Áskriftargetraun DV gefur skil-
vísum áskrifendum, nýjum og
núverandi, möguleika á óvenju-
lega hagkvæmum vinningum aö
þessu sinni enda eru vinningarnir
hið besta búsílag. Hvorki meira
né minna en sex körfur í
mánuði, fullar af heimilisvörum að
eigin vali, aö verömæti 30.000
krónur hver.
Júní-körfurnar koma frá verslun-
um 10-11 og verða þær dregnar
út föstudaginn 1. júlí.
ENGIHJALLA GLÆSIBÆ LAUGALÆK
BORGARKRINGLUNNI
DV styður ávallt dyggiiega við
bakið á neytendum með stöðugri
umfjöilun um neytendamál enda
er DV lifandi og skarpskyggn fjöl-
miðill jafnt á þeim vettvangi sem
öðrum. Daglega flytur DV lesend-
um sínum nýjustu fréttir
innanlands og utan. í aukablöö-
unum eru einstök málefni krufin
til mergjar og smáauglýsingar
DV eru löngu orðnar landsmönn-
um hreint ómissandi. Það er allt
að vinna með áskrift að DV.
DV hagkvæmt blað.
63 27 00