Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ1994
45
Skák
Euwe-mótið í Amsterdam:
Fyrsti sigur Kasparovs í ár
Garrí Kasparov stóö einn uppi sem
sigurvegari á minningarmótinu um
dr. Max Euwe í Amsterdam, eftir að
ívantsjúk tapaöi fyrir Timman í
lokaumferðinni. Jafntefli Kasparovs
við Short nægði honum til þess aö
komast upp fyrir ívantsjúk í fyrsta
sinn í mótinu. ívantsjúk fékk háifan
annan vinning úr tveimur skákum
sínum við Kasparov og má vel við
það una en taugamar brugðust á
lokasprettinum.
Upphaflega ætluöu Hollendingar
mótinu að vera nokkurs konar upp-
gjör meistara FIDE og PCA-samtak-
anna. Kasparov og Short, sem tefldu
um heimsmeistaratitil PCA í haust
sem leið, og Karpov og Timman - sem
glímdu á vegum FIDE - vom boöaðir
til leiks. Karpov þekktist hoðið í
fyrstu en hætti svo við og kom ívant-
sjúk í hans stað. Skákunnendur
verða því enn aö bíða eftir því að
heimsmeistaramir tveir geri upp
reikningana.
Keppendur vom aðeins þessir fjór-
ir og tefldu tvöfaldar umferðir. Eins
og áður sagði beið Kasparov lægri
hlut fyrir Ivantsjúk en betur gekk
rimman við áskorenduma tvo. Tim-
man reyndist létt bráð í báðum skák-
unum, sömuleiðis Short í þeirri fyrri,
en í lokaumferðinni lauk snarpri
skák þeirra Kasparovs með þráskák.
ívantsjúk tapaði aðeins skákinni
12. Bxd4 b5 13. Hh3! b4 14. Ra4 Bxd4
15. Dxd4 fB?
Atlaga á miðborðinu gæti virst rök-
rétt en kemur til með að hafa alvar-
legar afleiöingar þar sem svartur á
enn eftir að skipa út liði sínu á
drottningarvæng. Betra er 15. - Da5
16. b3 Bb7 og síðan 17. - Bc6 og svart-
ur hefur prýðileg gagnfæri.
16. Dxb4 fxe5 17. Dd6! Df6
Peðið á e6 er dýrmætt. Fall þess
merkir hrun svörtu stööunnar.
18. f5!!
Short hefur áreiðanlega ekki tekið
þessa snilldarlegu framrás með í
reikninginn. Ef nú 18. - exf5? 19.
Dxd5+ og vinnur, eða 18. - Dxf5 19.
Hf3 Dg4 20. Hxf8+ Rxf8 21. Rb6 og
svartur tapar liði.
Frá „heimsmeistaraeinvigi" Kasparovs og Shorts í Lundúnum sl. haust.
Kasparov fór illa með áskoranda sinn á minningarmótinu um Euwe í Amst-
erdam á dögunum.
við Timman í lokaumferðinni og
hlaut samtals 3,5 v. - hálfum minna
en Kasparov. Timman fékk 2,5 v. og
Short 2 v. Síðastnefndur hefur lítiö
haft sig í frammi eftir einvígið við
Kasparov - geldur m.a. bannfæring-
ar FIDE á hendur þeim PCA-félögum
þannig að stig hans eru ekki lengur
talin gild. Short hefur nú sest að í
Grikklandi, heimalandi eiginkonu
sinnar.
Kasparov hefur mátt standa í
skugga Karpovs það sem af er árinu
og sigur hans í Amsterdam er eflaust
þeim mun kærkomnari. Raunar er
þetta fyrsta mót ársins þar sem Kas-
parov hreppir efsta sætið. Hann
tefldi vel, eins og hans er von og vísa.
Fyrri skákin við Short var sérstak-
lega eftirtektarverð - sýnir vel
kraftmikinn stílinn sem gengur út á
flest annað en að telja peðin.
Hvitt: Garri Kasparov
Svart: Nigel Short
Frönsk vörn.
1. e4 e6
Þótt franska vömin sé meðal eftir-
lætisbyrjana Shorts beitti hann
henni aldrei í einvíginu viö Kasparov
sl. haust. Hann ætti ekki að þurfa
að iðrast þess.
2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5
6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9.
Dd2 0-0 10. 0-0-0 a6 11. h4 Rxd4
Þetta er svo sem ekki nýtt en í bók
Shorts um franska vöm er aðeins
minnst á 11. - Dc7, eða 11. - Bxd4.
18. - Dh6 + 19. Kbl Hxf5 20. Hf3! Hxf3
Eftir uppskipti á hrókum situr
svartur uppi með ónýtan liðsöfnuð á
drottningarvæng og nú opnast þar
að auki leið biskupsins að e6-peöinu.
Hins vegar var 20. - Df6 21. Hxfí
Dxf5 22. Be2 og næst 23. Hfl ekki
betra þvi að opin f-línan er hættulegi
vopn í höndum hvíts.
21. gxf3 Df6 22. Bh3 Kf7 23. c4!
Enginn friöur! Á hinn bóginn er 23
Hxd5? exd5 24. Dxd5+ Ke7 25. Dxaf
Dxh4 glapræði.
23. - dxc4
Eða 23. - d4 24. c5 og c-peðið er
komið á skrið.
24. Rc3! De7 25. Dc6 Hb8 26. Re4
Það gleður augað aö sjá skemmti-
lega samvinnu hvítu mannanna og
hve Kasparov hefur tekist að bæta
stöðu þeirra í síðustu leikjum, án
þess svartur komi vömum við. Nú
hótar hvítur 27. Bxe6+ Dxe6 28.
Rg5+ og vinna drottninguna, eða 27.
Rd6+ og þiggja biskupinn.
26. - Rb6 27. Rg5+ Kg8 28. De4 g6 29.
Dxe5 Hb7 30. Hd6 c3 31. Bxe6+ Bxe6
32. Hxe6
- Og í þessari vonlausu stöðu gafst
Short upp.
Öðlingamóti TR lokið
Halldór Garðarsson, Taflfélagi
heymardaufra, sigraði óvænt á Öðl-
ingamóti Taflfélags Reykjavíkur sem
fram fór í apríl og maí. Mótið er ætl-
Skák
Jón L. Árnason
að skákmönnum 40 ára og eldri sem
fá þar með kærkomið tækifæri til
þess aö tefla í friði fyrir máthótunum
og annarri ókurteisi barna og ungl-
inga. Meðal keppenda í ár voru
margir kunnir landsliðsmenn. Nesti
hf. gaf glæsileg verðlaun og skák-
stjóri var Ólafur Ásgrímsson.
Tefldar vom sjö umferðir eftir
svissnesku kerfi. Staða efstu manna:
1. Halldór Garðarsson 5,5 v.
2. Bjöm Þorsteinsson 5 v.
3.-5. Gunnar Gunnarsson, Kári Sól-
mundarson og Sveinn Kristinsson 4,5
v.
6.-8. Júlíus Friðjónsson, Jóhann Örn
Sigurjónsson og Bjarni Magnússon 4
v.
9.-12. Steingrímur Steinþórsson,-
Sverrir Norðfjörð, Bjami Bjarnason
og Grímur Grímsson 3,5 v. o.s.frv.
I
• Sumarblóm
• Fjölær blóm
• Tré og runnar
• Rósir
• Garðyrkjuáhöld
• Blómaker
• Áburður
• Grasfræ
Opid 10-22 alla daga
GARÐSHORN §8
v/Fossvogskirkjugarð, símar 40500 og 16541
RAFGEYMAMARKAÐUR
SÓLARRAFHLÖDUMARKAÐUR
HLEÐSLUTÆKJAMARKAÐUR
Aðeins í dag laugardag kl. 10-16.
Bíldshöfða 12