Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994
Dagur í lífi Grétars Hrafns Harðarsonar, héraðsdýralæknis á Hellu:
Lömbunum
bjargað í heiminn
Þaö er fimmtudagsmorgunn og
vekjaraklukkan gellur að venju
klukkan 7.20. Ég var þungur á fætur
þennan morgun því að um miönættið
var komiö með kind í burðarerfið-
leikum. Um var aö ræða gemsa með
tveimur lömbum sem ætluðu að
komast i heiminn samtímis. Höfuðið
á öðru lambinu og afturfæturnir á
hinu kíktu út og allt stóö fast. Með
því að ýta höfðinu aftur inn í legið
tókst að greiða úr þessari flækju.
Auglýstur símatími á morgnana er
milli klukkan 8 og 9.30. Ég reyni því
að vera búinn að fara í sturtu og fá
mér morgunmat fyrir kl. 8. Vinnu-
staðurinn er á neðri hæð íbúðarhúss-
ins. Þar er ég með skrifstofu, lyfjalag-
er, aðgerðastofu fyrir gæludýr og bíl-
skúrinn hef ég innréttað til móttöku
á hestum og sauðfé.
Keisaraskurður
Mikið var hringt þennan morgun,
ýmist til að biðja um vitjanir eða til
aö fá ráðgjöf um minni háttar vanda-
mál. Fyrsta verk eftir símatíma var
að skjótast upp í hesthús, sem er hér
á Hellu, og gefa hestunum okkar sem
eru sex á húsi í vetur. Næst var farið
í alifuglasláturhúsið Ásholt hf. en
þar sá ég um daglegt eftirlit með
slátrun og vinnslu á kjúklingum.
Fjögur alifuglasláturhús eru á land-
inu og sláturhúsið á Hellu þeirra
stærst. Slátraö er um 3000 fuglum
daglega og eru innleggjendur víða af
Suður- og Suðvesturlandi. Á meðan
ég var við störf í sláturhúsinu tók
konan mín, Sigurlína Magnúsdóttir,
viö ósk um aðstoð frá Kjartani Magn-
ússyni í Hjallanesi. Veturgömui ær
átti erfitt með burö og ég fékk skila-
boð um að Kjartan væri á leiðinni
með kindina. Viö skoöun kom í ljós
að lambið bar ekki rétt að og vegna
þrengsla var ekki hægt að lagfæra
það. Eina úrræðið var aö skera kind-
ina keisaraskurð. Á hveiju ári er
þónokkuð um keisaraskurði. Ég nota
halothane-svæfingu og skurðurinn
er gerður á vinstri síðu. Árangur
þessarar aðgeröar er mjög góður og
ærnarjafna sig ótrúlega fljótt. í þessu
tilfelli reyndust lömbin vera tvö og
aðeins annað lifandi. Þegar hér var
komið sögu var klukkan að verða
eitt og seinni símatími dagsins, 13 til
13.15, að byrja. Ég gleypti í mig tvær
brauðsneiðar og skyr og hraðaði mér
niður á skrifstofu. Nokkrar vitjanir
lágu fyrir eftir hádegi en fyrst fór ég
í stórgripasláturhús Hafnar-Þrí-
hymings hf. á Hellu. Þar var verið
aö slátra svínum og nokkrum naut-
gripum. Héraðsdýralæknirhefureft-
irlit með heilbrigði sláturgripa og
hreinlæti við sláturstörf. Leiðin lá
næst að Sumarliðabæ til Davíðs Sig-
fússonar. Þar var kýr sem át illa.
Kýrin bar fyrir þremur vikum og
hafði mjólkað vel en var nú að missa
lystina. Hún reyndist'vera með svo-
kallaöan súrdoöa sem er efnaskipta-
sjúkdómur og orsakast af neikvæðu
orkuástandi, þ.e. kýrin nær ekki að
éta í samræmi við mjólkurmagn og
gengur þess vegna of hratt á eigin
forða. Næst var farið aö Kvíarholti,
til hryssu sem hafði komist undir
graðhest án vilja eiganda og var fóst-
urvísinum eytt með lyfjameðhöndl-
un.
Hrossunum gefið
Klukkan 15 þennan dag hafði ég
verið boðaður á fund heilbrigðis-
nefndar Hellulæknishéraðs og mætti
ég þar, að vísu tuttugu mínútum of
seint. Verkefni þessa fundar var að
kynna nýja mengunarvarnareglu-
gerð og ræða um verkefni heilbrigð-
isfulltrúa.
Að loknum fundi lá fyrir að fara
að Þúfu og líta á hryssu áem hafði
kastað fyrr um daginn en ekki losnað
við hildimar. Hryssan og folaldið
voru hin hressustu og eftir að fylgjan
haföi verið fjarlægð var þeim sleppt
út í haga. Og enn bárust inn vitjana-
beiðnir. Nú lá kýr í bráðadoða hjá
Páh Sigurjónssyni á Galtalæk, sem
er efsti bær í Landsveit. Bráðadoði
getiu- verið hættuiegur og betra að
hafa hraðan á. Til stóð að sækja fund
Rotaryklúbbs Rangæinga þetta
kvöld en sú áætlun raskaðist. Nokk-
uð var liðiö á kvöld þegar svo heim
var komið og nú kom örbylgjuofninn
sér vel til að hita upp matinn sem
beið mín.
Eitt verkefni var þó eftir og þaö var
að fara upp í.hesthús til að gefa hest-
unum. Við þau verk nýt ég aðstoöar
barnanna og í þetta skipti kom Björk,
sem er 9 ára, með mér en Styrmir,
sem er 12 ára, var farinn aö hjálpa
til við sauðburðinn hjá frændfólki
okkar í Hólmum í A-Landeyjum.
Hildir fjarlægðar úr hryssunni Hrafnkötlu að Þúfu í V-Landeyjum, en þaðan
er hinn landsfrægi Orri frá Þúfu.
Finnur þú fimm breytingai? 260
Það var vínið sem átti að vera árgangur 1975 - ekki kjötið!
Nafn:........
Heimllisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta Qölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugarreikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar, sem eru í
verðlaun, heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri Qölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 260
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fimmtugustu og áttundu
getraun reyndust vera:
1. Lilja Björk Jónsdóttir,
Borgarheiði 4,
810 Hveragerði.
2. Hólmfríður Traustadóttir,
Kirkjubraut 18,
780 Höfti.
Vinningarnir verða sendir
heim.