Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Page 12
12
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ1994
4t
Erlendbóksjá
Bretland
Skáldsögur:
1. Jilly Cooper:
The Man Who Made Hus-
bands Jealous.
2. John le Carré:
The Night Manager.
3. Jack Higgins:
Thunder Point.
4. Thomas Keneally:
Schindler's Ust.
B. Vikram Seth:
A Suitable Boy.
6. Jeffrey Archer:
Honour among Thieves.
7. Jackie Collins:
American Star.
8. James Clavell:
Gal-Jin.
9. Minette Walters:
The Scutptress.
10. P.D. James:
The Chitdren of Men.
Rit almenns eðlis:
1. J. McCarthy 8i J. Morrell:
Some Other Rainbow.
2. Jung Chang:
Wild Swans.
3. Alan Clark:
Diaries.
4. Blake Morrison:
And When Did You Last See
Your Father?
5. Brian Keenan:
An Evil Cradling.
6. Jill Tweedie:
Eating Children.
7. Margaret Forster:
Daphne du Maurier.
8. Nick Hornby:
Fever Pitch.
9. R. Grant 8» D. Naylor:
The Making of Red Dwarf.
10. William Dalrymple:
City of Djinns.
(Byggt á Tho Sunday Timos)
Danmörk
Skáidsögur:
1. Peter Heeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
2. Kirsten Thorup:
Den yderste graense.
3. Jorn Riel:
Satans til Higgenbottom.
4. Donna Tartt:
Den hemmelige historie.
5. Dan Turéll:
Vrangede billeder.
6. John Grisham:
Pelikan Notatet.
7. Bjame Reuter;
En rem af huden.
(Byggt 6 Polittken Sondag)
Saddam
hefnir sín
Saddam Hussein, einræðisherra í
írak, mátti lúta í lægra haldi fyrir
Bandaríkjamönnum og bandamönn-
um þeirra í Persaflóastíðinu. Ekki
er að efa að hann brennur í skinninu
að ná fram hefndum á bandarískum
stjómvöldum. En hvernig?
Eitt svar við því er gefið í nýjustu
spennusögu breska rithöfundarins
og stjómmálamannsins Jeífreys
Archers en hún er nú komin út í
enskri pappírskilju. Sagan heitir
„Honour Among Thieves" og fjallar
um hefnd Saddams og viðbrögð
bandarískra stjórnvalda.
Sjálfstæðisyfir-
lýsingunni rænt
í sögunni er áætlun Saddams í
sjálfu sér einföld. Hann hyggst láta
ræna hinni einu, sönnu sjálfstæðis-
yfirlýsingu Bandaríkjanna, sem er
einn best varðveitti þjóðardýrgripur
vestra, og brenna hana fyrir framan
sjónvarpsvélarnar á þjóðhátíðardegi
Bandaríkjamanna, 4. júlí.
Til að hrinda þessari fyrirætlan í
framkvæmd gera sendimenn Sadd-
ams samning við helstu sérfræðinga
í glæpum; bandarísku mafíuna.
Til að byrja með gengur allt sam-
kvæmt áætlun. En svo komast
bandarísk stjómvöld aö því hvaö er
um að vera og grípa til gagnráðstaf-
ana til að bjarga hinu sögufræga
skjali.
Ástæðulaust er að rekja söguþráð-
inn frekar; það gæti spillt ánægju
væntanlegra lesenda. En niðurstað-
an kemur auðvitað ekki á óvart.
Margfaldur
metsöluhöfundur
Jeífrey Archer er margfaldur met-
söluhöfundur sem fór að skrifa
Umsjón:
Elías Snæland Jónsson
spennusögur til að bjarga fiárhag
sínum. Áður leitaði hann frægðar og
frama í íþróttum og stjómmálum og
varð yngsti þingmaðurinn í neðri
deild breska þingsins áriö 1969.
Fyrstu spennusöguna, „Not a Penny
More, Not a Penny Less,“ samdi Arc-
her er þingmennsku hans lauk árið
1974. Hún varð strax metsölubók.
Þær skáldsögur og smásögur sem
Archer hefur síðan sent frá sér hafa
allar slegið í gegn í sölu þótt gagnrýn-
endur hafi látið sér fátt um finnast.
Margar þeirra hafa orðið tilefni leik-
inna sjónvarpsmyndaflokka sem
m.a. hafa sést í íslensku sjónvarpi.
Þar má nefna „Kane and Abel“ og
„First among Equals" sem fiaUar um
breskt stjórnmálalíf.
Þessi nýja saga mun hins vegar slá
öll met í sölu Archer-bóka enda
miklu til kostað af hálfu útgefend-
anna. Þegar sagan kom út innbundin
í fyrra var jafnvirði um 150 milljóna
íslenskra króna varið til að kynna
og auglýsa söguna. Saian varð í sam-
ræmi viö það.
Það kom Archer hins vegar þægi-
lega á óvart aö breskir gagnrýnendur
tóku upp á því aö hæla þessari sögu
um hefnd Saddams. Mörgum þeirra
þótti „Honour among Thieves" bæði
skemmtileg og spennandi lesning.
Einn kaUaði höfundinn „frábæran
sögumann". Archer kvaðst stein-
hissa á lofi úr svo óvæntri átt.
Og vissulega er gaman að lesa
þessa bók. Archer tekst að fá lesand-
ann til að trúa söguþræði sem þó er
afar ósennUegm-. Atburðarásin er
viðburðaríkur og hlutirnir gerast
hratt eins og vera ber hjá snjöllum
sj ónhverfingamanni.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mary Higgins Clark:
l'll Be Seeing You.
2. Patricia D. Cornwetl:
Cruel & Unusual.
3. Dean Koontz:
The Funhouse.
4. Johanna Lindsey:
Surrender My Love.
5. John Grisham;
The Client.
6. Sue Grafton:
,,J" Is for Judgement.
7. Susan Isaacs:
After All These Years.
8. James Clavell:
Gai-Jin.
9. Sandra Brown:
Where there's Smoke.
10. Barbara Kingsolver:
Pigs in Heaven.
11. Belva Plain:
Whispers.
12. Thomas Keneally:
Schindler's List.
13. Catherine Marshall:
Christy.
14. Robert Ludlum:
The Scorpio lllusion.
15. William Diehl:
Primal Fear.
Rit almenns eðlis:
1. Thomas Moore:
Care of the Sout.
2. Bailey White:
Mama MakesupHer Mind.
3. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
4. Joan W. Anderson:
Where Angels Walk.
5. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings.
6. Susanna Kaysen:
Girl. Interrupted.
7. Cornel West:
Race Matters.
8. Robert D. Kaplan:
Balkan Ghosts.
9. Deborah Laake:
Secret Ceremonies.
10. Benjamin Hoff:
The Tao of Pooh.
11. Gail Sheehy:
The Silent Passage.
12. Peter Mayle:
A Year in Provence.
13. Deborah Tannen:
You Just Don't Understand.
14. Peter Ð. Kramer:
Listening to Prozac.
15. Bernie S. Siegel:
Love, Medicine, and
Miracles.
(Byggt á Naw Vork Timas Book Review)
Vísindi
Geitur í prót-
Líftæknin lætur ekki að sér hæða:
Fallhlíf á
ínframleiðslu
Bandarískt fyrirtæki tók nýlega
í notkun geitabýli í Massachu-
settsfylki þar sem ætlunin er að
framleiða prótín til notkunar i
lyfiagerð.
Geitur, sem hefur verið breytt
með erfðatækni og mannleg gen
sett í þær, verða notaðar við
framleiðsluna. Geiturnar fram-
leiða prótínin í mjólk sinni á mun
ódýrari hátt en mögulegt er í
hefðbundnum verksmiðjum.
Að sögn fyrirtækisins er hugs-
anlegt að prótínin verði notuð viö
meðferð á MS-sjúkdóminum og
krabbameini, svo eitthvað sé
nefnt.
Veðurfarsdag-
bókin lesin
Þýska rannsóknaskipið Sonne
er um þessar mundir undan
ströndum Pakistans þar sem vís-
indamenn eru að reyna að lesa í
„veðurfarsdagbók" jarðarinnar,
ef svo má að orði komast. Vís-
indamennirnir gera sér vonir um
að geta með þessum hætti ferðast
tíu þúsund ár aftur í tímann.
Dagbókin er í raun setlög á
hafsbotni á landgrunninu. Þessi
staður var valinn vegna þess aö
þar eru lög af árframburöi sem
hefur borist í hafiö i aldanna rás
og verða lögin nú skoðuð í krók
og kring.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Frankentómatar í
amerískar verslanir
Þetta eru nú bara venjulegir tómatar en liftæknitómatarnir eru sagðir alveg
jafn góðir, ef ekki betri.
Þeir kalla hann „frankentómat",
nýja erfðatæknilega breytta tómat-
inn sem bandaríska matvæla- og
lyfiaeftiriitið, FDA, hefur lagt bless-
un sína yfir og segir að sé boðlegur
mannamatur. Meira en það, hann er
alveg jafn öruggur, ef svo má að orði
komast, og venjulegur tómatur.
Tómatur þessi kallast á amerísku
„Flavr Savr“, eöa sá sem varðveitir
bragðiö, og veröur hann fyrsti erfða-
breytti tómaturinn sem bandarískir
neytendur geta nálgast í hillum stór-
markaða vestanhafs.
Hinn nýi tómatur er látinn þrosk-
ast á jurtinni til að hann verði sem
bragðmestur og hann á að viðhalda
þroska sínum án þess að rotna.
Þannig getur hann verið lengur í
búðarhillunum. Venjulegir tómatar
eru tíndir grænir og gasi síðan dælt
á þá til aö þeir fái rauða litinn. Þeir
verða hins vegar oft harðir og bragð-
litlir fyrir bragðið.
„Frankentómaturinn" hefur mætt
andspymu frá ýmsum umhverfis-
vemdarsinnum og meistarakokkum
sem em andvigir því að verið sé eitt-
hvað að föndra við náttúrulegan mat.
Að sögn fyrirtækisins sem fram-
leiðir nýja tómatinn var tilgangurinn
sá að gefa neytendum kost á því að
fá tómata með „sumarbragði" aUt
árið um kring.
„Okkur er það mikið gleöiefni að
geta nú boðið neytendum tómata sem
þeir vita að bragðast jafn vel og nýir
tómatar," segir Roger Salquist, fram-
kvæmdastjóri framleiðslufyrirtæk-
isins.
Talsmaður hóps, sem kennir sig við
óspillt matvæh, tilkynnti hins vegar
að almenningur um landið allt yrði
hvattur til að sniðganga tómatinn
góða.
Matvælaeftirlitið segir þetta vera í
fyrsta skipti sem samþykkt sé heilsu-
fæðutegund sem framleidd er með
líftækni. FDA hafði áður leyft sölu á
erfðabreyttum mjólkurhormón til að
auka nyt í kúm og árið 1990 var veitt
samþykki fyrir hleypiefni sem notað
er til ostagerðar.
Sérfræðingar segja að á næstu sex
árum muni um fimmtíu nýjar erfða-
breyttar matvörur koma á markaö-
inn, þar á meðal kartöflur sem
drekka í sig minni fitu við steikingu
og kommeti með hærra prótínmagni
en nú er.
svifflugur
Sumir uppfinningamenn fá
bestu hugmyndir sínar þegar þeir
eru í baði en aörir þegar þeir
horfast í augun við sjálfan dauð-
ann. Þannig var þaö með Banda-
ríkjamanninn Boris Popov.
Dag nokkum lauk svifílugferð
hans með ósköpum og á meðan
véhn var aö hrapa til jaröar lof-
aði hann sjálfum sér því að finna
upp fallhlíf á flugvéhna ef hann
slyppi lifandi úr brakinu.
Verfiulegar fallhlífar henta ekki
fyrir svifílugur og aörar smávél-
ar þar sem flest slysin gerast svo
nærri jörðu að fallhlífin nær ekki
að opnast. En Popov sá við því
með því að setja failhlífina ofan
á væng vélarinnar og skjóta
henni upp með rakettu ef hún
ætlar að hrapa.
Hljóðbylgj-
umareru
óhollar
Umfangsmikil rannsókn í Ástr-
alíu hefur leitt í ljós að meiri
hætta er á að konur sem fara oft
í sónarskoðun ali börn sem vega
of lítiö við fæðinguna.
Svo virðist sem hættan á að
fóstrið verði of létt sé þriðjungi
meiri ef konan fer í fimm sónar-
skoðanir milli 18. og 38. viku
meðgöngunnar en ef hún fer í
aðeins eina skoöun.
Hljóðbylgjur þessar eru notað-
ar m.a. til aö ákvaröa hvenær
fæðingin veröur og til skoöa
fóstriö með tilliti til þess hvort
það sé vanskapað.