Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Page 20
20 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ1994 Kvikmyndir John Travolta leikur glæpamanninn Vincent. Cannes 1994 og svo Peter Medak með Romeo is Bleeding sem er spáð miklum vin- sældum. Góð undirstaða Það má segja að Tarantino hafi gefið tóninn að þessum stíl sínum í myndinni Reservoir Dogs, þar sem harkan var í fyrirrúmi og miskunnarlaust ofbeldi notað til að ná meiri raunveruleikablæ í mynd- inni. Myndin fjallaði um hóp glæpamanna sem tóku að sér að fremja demantarán. Þeir þekkjast ekki neitt og nota þvi dulnefni og höfðu verið ráðnir til verksins af alræmdum glæpamanni. En lög- reglan kemur að þeim í miðju rán- inu sem endar með miklum skot- bardaga þar sem mannfail varð á báða bóga. Þeir sem komast af fara að velta fyrir sér hvað fór úrskeið- is og hvort einhver úr þeirra hópi hafi kjaftað í lögregluna. Myndin True Romance hefur verið auglýst mikið að undan fornu því hún var að koma út á myndbandi. Það sem líklega fæstir vita er að Quentin Tarantino skrifaði handritið að myndinni og þegar myndbandið er skoðaö kemur vel í ljós áðurgreind- ur stíll hans. Myndin er ástarsaga í blóðugu umhverfi þar sem byssur eru látnar tala í stað orða. Þessi saga hefði sómt sér vel í hvaða hasartímariti sem er. Þrjár sögur Pulp Fiction er byggð á þremur aðskildum sögum sem birtust á sín- um tíma í tímaritinu Black Mask. Tarantino tengir saman þessar sög- ur í myndinni auk formála og eftir- mála. Fyrsta sagan íjallar um ná- unga sem býður út konu sem er gift stórglæpamanni í mafíunni. Hann verður hrifínn af henni og þá er fjandinn laus. Þessi saga hef- ur verið sögð á hvíta tjaldinu mörg hundruð sinnum en alitaf er hægt að koma upp með nýja fleti. Önnur sagan fjallar um Imefaleikakapp- ann Butch. Hann er skapmikill maður sem nær sínu í gegn með yfirgangi og hörku. Undantekning- in er vinkona hans Fabian sem hann elskar og dáir og vill allt fyr- ir gera. Hann fær borgað fyrir að tapa í mikilvægum kappleik og þegar hann ákveður að svíkjast undan merkjum og vinna leikinn Þá er hinni árlegu kvikmyndahátíð í Cannes lokið en þetta var í 47. skipti sem hún var haldin. Að venju var veittur fjöldi verðlauna fyrir hin ýmsu afrek á sviði kvik- myndagerðar og þar á meðal gull- páiminn fyrir bestu kvikmyndina. Það er séstök dómnefnd sem velur verðlaunahafa en í forsæti þetta árið var sjálfur Clint Eastwood en auk þess voru með honum í nefnd- inni rithöfundar, leikstjórar, fram- leiðendur, blaðamaður og leikarar en þar á meðai var franska leikkon- an Catherine Deneuve. Að þessu sinni voru valdar 23 myndir í keppnina frá flölda landa. Þar mátti sjá myndir frá Taívan, Pól- landi, Kína, HongKong, Bandaríkj- unum og Frakklandi svo einhver lönd séu nefnd. Áður en verðlauna- afhendingin fór fram var tahð að keppnin myndi aðallega standa á milh þeirra Krzysztof Kieslowsky með mynd sína Three Colors: Red og svo Zhang Yimou með mynd sína To Live. Fyrmefnda myndin er sú síðasta í þrennu sem ber heiti htanna í franska þjóðfánanum þ.e. Blár, Hvítur og Rauður. Búið er að frumsýna tvær fyrstu myndimar sem hafa sópað að sér verölaunum á erlendum kvikmyndahátíðum. Þess má geta aö Blár er sýnd þessa dagana í Háskólabíói. Ritskoðun Margir vom að vonast til þess að Yimou fengi guhpálmann sem framlag hátíðarinnar tíl að lýsa vanþóknun sinni á þeirri ritskoöun sem enn er við lýði í Kína, en myndir Yimou og margra annarra kínverskra kvikmyndagerðar- manna fást ekki sýndar í Kína fyrr en búið er að khppa burtu þau atr- iði sem em ekki þóknanleg kín- verska kvikmyndaeftirhtinu. Hér er yfirleitt ekki um að ræöa ofbeld- is- né kynlífsatriði heldur málefni sem em of viðkvæm. Þótt gull- pálminn færi annað fékk þó kín- verski leikarinn Ge You verðlaun sem besti karheikarinn í aðalhlut- verki fyrir leik sinn í myndinni meðan ítalska leikkonan Vima Lisi hlaut samstæð verðlaun fyrir leik sinn í frönsku myndinni La Reine Margot. Besti leikstjórinn var val- inn ítalinn Nanni Moretti fyrir mynd sína Dear Diary. Hins vegar kusu gagnrýnendur kanadísku myndina Exotica sem bestu mynd- ina en henni leikstýrir af Anton Egoyan. Umdeild veiting En þá er komiö að guhpálmanum. Mörgum til undmnar fór hann th bandaríska leikstjórans Quentin Tarantino fyrir myndina Pulp Fiction. Þetta val olh nokkram deilum enda Tarantino umdehdur leikstjóri, sem tahnn er af ýmsum hthlækka suma kynþætti og þjóð- arbrot í myndum sínum sem oft á tíðum em nokkuð ofbeldiskennd- ar. Við verðlaunaafhendinguna fékk Tarantino nokkur vel vahn orð frá einum gestanna sem lét óspart í ljós skoðun sína á myndum hans. Þaö var þó mál manna að val dómnefndarinnar hefði verið erfitt því það hefði Vantað fleiri bitastæð- ar myndir í keppnina. Pulp Fiction dregur nafn sitt frá tímaritum sem farið var að gefa út upp úr sl. alda- mótum og héldu vinsældum sínum fram á fimmta áratuginn. Þótt nafnið sé kennt við viðarmassann sem notaður var th að gera pappír- inn sem tímaritin voru prentuð á var það efni tímaritanna sem gerði þau sérstök. Þetta vom hrylhngs- sögur, ævintýrasögur og síðast en ekki síst leynhögreglu- og njósna- rasögur. Margt þekktra manna skrifaði reglulega í þessi tímarit eins og Raymond Chandler, Com- ell Woolrich og Mickey Spillane. Nýrheimur Sumar sögur sem birtust í þess- um tímaritum voru notaðar sem efnisviður í kvikmyndum. Þar ber líklega hæst myndimar The Malt- ese Falcon og Double Indemnity, sem vom að vísu myndir í hærri klassa en tímaritin. Þær vom hka undantekningar því flestar myndir sem voru gerðar eftir þessum sög- um flokkuðust undir svokahaðar B-myndir eða annars flokks mynd- ir hvaö varðar gæði. Hins vegar áttu þessar myndir ahtaf tryggan hóp aðdáenda og hafa sumar náð því að verða aht að því ódauðlegar meðal kvikmyndaáhugamanna. Það má því með nokkrum sanni segja að Tarantino hafi ásamt nokkrum öörum kvikmyndagerð- armönnum endurvakið á hvíta tjaldinu þennan spennu- og ævin- týraheim tímaritanna. í þessu sam- hengi verður einnig að nefna Carl Frankhn með mynd sína One False Move, Tamra Davis með Guncrazy Umsjón Baldur Hjaltason verður ekki aftur snúið. Hér er aft- ur á ferðinni söguþráður sem ætti flestum að vera kunnur. Tarantino hefur sagt að þama sé hann að sækja efni th myndarinnar Kiss Me Deadly frá 1955 sem var byggð á efni eftir Mickey Spihane. Það var Robert Aldrich sem leikstýrði og hefur þessi mynd orðiö mörgum hugleikin eins og Tarantino. Tískubólur Þriðja sagan fjallar um glæpa- mennina Jules og Vincent, en Tar- antino hefur gaman af að vitna í margar eldri myndir í Pulp Fiction,^ bæði í máh og myndum. Þeir sem hafa gaman af kvikmyndum munu átta sig á samlíkingum við myndir eins og Kiss Me Deadly, The Guns of Navarona, Dehverance, La Femme Nikita og A Flock of Sea- guhs. Þetta gefur Pulp Fiction ákveðinn ævintýrablæ í anda áður- nefndra tímarita. Það er erfitt að átta sig á hvort hér sé kominn fram einhver nýr sthl eða tískubóla í kvikmyndagerð. Myndir í þessum stíl hafa ahtaf veriö gerðar og munu einnig verða gerðar um ókomna framtíð. En það sem gerir Pulp Fiction kannski frábmgðna er sú staðreynd að hún er gerð með efni þessara tímarita sérstaklega í huga og þá menningu og hug- myndaheim sem þau skópu. Kannski tími B-myndanna sé aftur kominn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.