Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Side 35
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994
43
Er það betra að vera feitur og reyklaus en grannur með sígarettu? Getur þú ímyndað þér Humphrey Bog-
art sílspikaðan eins og Amerikana af Vellinum.
Reykingamað -
ur hefur orðið
Nökkvi læknir hitti Snjólf
Reykjalín bókbindara á Landspít-
alalóðinni um daginn. Þeir höfðu
verið saman til sjós endur fyrir
löngu, fyrir daga kvótakónganna,
meðan ennþá var fiskur í sjó.
Snjólfur stóð á stórköflóttum brún-
um náttslopp og flókainniskóm og
reykti af áfergju við einar útidym-
ar. Hann leit iUa út, kinnfiskasog-
inn og tekinn í andliti, magur og
hokinn. Hárið var grátt og þunnt,
greitt aftur á hnakka. Þeir tóku tal
saman. Eftir kurteislegt hjal um
borgarstjómarkosningar, knatt-
spyrnu og gamla skipstjóra spurði
Nökkvi hvað Snjólfur væri að gera
á slopp á þessum guðsvolaða stað.
Snjólfur sagðist liggja inni vegna
rannsókna. „En ástæðan fyrir því
að ég stend hérna úti eins og hver
annar utangarðsmaður," bætti
hann við, reiðilegri röddu, „er sú
að við megum ekki reykja innan-
dyra nema í andstyggilegri reyks-
konsu sem minnir helst á gasklefa
frá þriðja ríkinu. Þetta er meira
fasistasamfélagið. Reykingamenn
eru ofsóttir af yfirvöldum, læknum
og alls konar forræðishði sem allt
telur sig vita og kunna. Guðrún
Helgadóttir alþingismaður er sko
mín kona þótt ég hafi aldrei fylgt
henni í póhtík. Hún hefur tekið upp
hanskann fyrir okkur reykinga-
menn í baráttunni við þessi lækna-
fífl.“ Snjólfur saug í sig reykinn
með nautnasvip. „Þetta andreyk-
ingafólk segist fá í sig of mikinn
reyk í návist reykingamanna. Ef
þetta þolir svona illa smáreyk; af
hveiju hættir það bara ekki að
anda?“ Hann hóstaði nokkmm
sinnum og sagði: „Nei, hvað væri
lífið án 20-30 sígarettna á dag.
Leiðinlegt sjónvarp
Tilveran er ekki svo skemmtileg.
Sjáðu t.d. sjónvarpið. Þar em ann-
að hvort víkingamyndir eftir Hrafn
Gunnlaugsson eða vandamála-
þættir um regnskógana í Brasilíu
og minnkandi fijósemi ánamaðka.
Er hægt að ætlast til að maður sitji
yfir þessumfjanda án þess að fá sér
reyk? Annars leiðist mér mest
þetta kjaftæði um peningana sem
ég er búinn að eyða í sígarettur.
Einu sinni hitti ég andreykinga-
postula sem sagðist vera búinn að
reikna út hversu miklu ég heföi
eytt í tóhak á 25 árum. Hann sagöi:
Ef þú hefðir ekki reykt ættirðu 2
BMW bíla og eitt einbýlishús. Jæja,
vinur, svaraði ég. Átt þú kannski 2
BMW bíla. Mér sýnist þú alltaf vera
á gömlu Lödunni? Hann snarþagn-
aði, pilturinn sá.“ Snjólfur hló
gleðivana hlátri, hóstaði og saup
hveljur en hélt síðan áfram. „Svo
leiðist mér afskaplega mikið þetta
kjaftæöi um minnkaðar lífslíkur
reykingamanna. Ég þekki mann
sem er 85 ára og hefur reykt í 45
ár og lifir enn. Eða allt bullið um
Á læknavaktínm
úthaldsleysi reykingamanna. Ég
get farið allra minna ferða þrátt
fyrir reykingarnar.
Hættulegt að hætta
Um daginn gekk ég eina 400
metra í einum rykk án þess að
stoppa. Ég get meira að segja geng-
ið upp stiga og reykt um leið. Svo
þarf sæmilegt úthald til að hósta
eins mikið og ég geri. Annars er
stórhættulegt að hætta að reykja.
Fjölmargir hafa fitnað og fengið
hamborgararass vegna þess. Er
það betra að vera feitur og reyklaus
en grannur með sígarettu? Getur
þú ímyndað þér Humphrey Bogart
sílspikaðan eins og Ameríkana af
Vellinum. Einn vinur minn hætti
að reykja eftir að hafa reykt í 30
ár. Eftir 2 mánuði lenti hann í bil-
slysi og dó. Ekki borgaði það sig
fyrir hann að hætta að reykja."
Snjólfur tók sér málhvíld, kveikti
sér í nýrri rettu og hélt áfram.
„Einu sinni hætti ég að reykja út
af öllu helvítis röflinu um peninga-
eyðslu, úthaldsleysi og veikindi.
Það er ekki mikil kúnst. Eftir 4
klukkutíma uppgötvaði ég að þetta
var tómt bull og byijaði aftur. Þetta
sannaði fyrir mér að ég get hætt
hvenær sem er.“ Snjólfur tók upp
sígarettupakka og velti honum
milli handa sér. „Hvað ertu að gera
héma?“ sagði Nökkvi, hikandi.
„Það eru einhveijar breytingar á
lungunum á mér sem þeir eru að
rannsaka," sagði Snjólfur dauflega.
„En það er örugglega ekki vegna
reykinga heldur mengunar í and-
rúmsloftinu. Auk þess er verið að
rannsaka æðaþrengsli í fótunum.
Það er sennilega vegna þess að ég
hef alltaf gengið í þröngum sokk-
um.“ Hann þagnaði en bætti svo
við: „Að mínu viti eru reykingar
bæði hollar og gagnlegar. Öll þessi
veikindi mín í lungum og æðum
stafa sennilega af mengun, matar-
æði og þrálátu kvefi. Auk þess var
víst mamma mikið með kvef meðan
hún gekk með mig. Þeir vilja meina
læknamir að þetta stafi allt af
reykingum en ég segi eins og Guð-
rún Helgadóttir: Þetta eru noma-
veiðar. Allar þessar greinar um
skaðsemi reykinga eru sennilega
lygaþvættingur og læknahroki."
Nökkvi kastaði á hann kveðju og
fór leiðar sinnar. Eftir stóð Snjólfur
með sígarettuna sína og taldi sjálf-
um sér áfram trú um nytsemi þess
sem var að leggja hann í gröfma.
Allir fá frfan bol
í dag frá ki. 10.00-17.00
sem kaupa gallajakka
hjá okkur.
Verð kr. 3.900-4.900.
Ath. Kvengallabuxur
kr. 1.000.
Verslunin Greinir
Skólavörðustíg 42, sími 621171
Lausafjáruppboð
Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, ýmissa
lögmanna og stofnana fer fram nauðungarsala á ýmsu lausafé, bifreiðum
o.fl. laugardaginn 11. júní nk. kl. 13.30 i uppboðssal í Tollhúsinu við
Tryggvagötu (hafnarmegin).
Eftir kröfu Tollstjórans ótollaðar vörur, m.a. skófatnaður, alls konar fatnað-
ur, Calsium Cloride, rafmagnsvörur, snyrtivörur, skothylki, ca 2.300 stk.,
leikfangaþrautir, bómullarvörur, búsáhöld, örbylgjuofn, stólar og borð, um-
búðir fyrir fisk, 1100 kg, skrúfur og boltar, alls konar húsgögn, alls konar
varahlutir, geisladiskar, vefnaðarvara, eldhúsinnréttingar, plastprófílar, 1 pl.
Lift-Vans, 8346 kg, leiktæki, ca 900 kg, vatnsbyssur, ca 1300 kg, vöðlur, 4
pl. plast, ca 12.000 kg, 1 gm. dekk, ca 11.000 kg, stálvír, ca 780 kg, borð-
búnaður, alls konar húsgögn, teppi, lampar, koparplötur, fiskvinnsluvél, 2
cl krani, 2700 kg, bifr. Plymouth Volaré, árg. 1978, Citroen BX19, árg.
1984, Camping Trailer, ca 500 kg. Eftir kröfu ýmissa lögmanna, Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík, banka, sparisjóða og fl. Bifr. KC-880 Ford, árg. 1986,
6 víxlar, hver að fjárhæð kr. 220.000, með gjalddögum 12.10.'94,12.11 .'94,
12.12.'94, 12.1 .'95, 12.2.'95, 12.3.'95, allir útg. 11.6.'93 af Ester Antons-
dóttur til greiðslu af Þorbirni Pálssyni og ábektir af Karli Pálssyni, sjónvarps-
tæki, hljómflutningstæki, alls konar húsmunir og tæki, málverk, alls konar
skrifstofutæki, fatnaður og margt fleira. Ávísanir ekki teknar gildar sem
greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við
hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN I REYKJAVÍK
Deildarsérfræðingur
Tímabundin ráðning
Verkefni: Námskrár- og námsefnisgerð, eftirlit með
ökunámi (að nokkru leyti kvöldvinna), gerð prófa,
prófdæming, önnur verkefni á starfssviði Umferðar-
ráðs.
Skilyrði: Menntun í uppeldis- og kennslufræðum eða
sálfræði, reynsla af gerð námskrár, námsefnis eða
prófa, ökukennararéttindi, þekking á tölfræðilegri
úrvinnslu og tölvum. Reynsla af fjölmiðlun eða út-
gáfustarfsemi æskiieg.
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Á. Jóhannesson
deildarstjóri í síma 91 -622000 eða 91 -676603
(heima).
Skriflegar umsóknir berist fyrir
hádegi 20. júní nk. á eyðu-
blöðum sem hér fást.
150 Reykjavík
If
UMFERÐAR
RAÐ
Styrkir til
markaðssetningar
á EES-svæðinu
Ríkisstjórnin veitir á þessu ári styrki til útflytjenda til
sértækra markaðsaðgerða á hinu Evrópska efnahags-
svæði (EES). Starfshópur á vegum utanríkisráðu-
neytis annast úthlutun. Ekki verða veittir styrkir vegna
almennra launa starfsmanna, vöruþróunar, fjárfest-
inga í aðföngum, vélum eða tækjum.
Um styrki geta sótt fyrirtæki, einstaklingar eða stofn-
anir. Umsækjendur skulu leggja fram umsóknir á þar
til gerðum eyðublöðum sem fást hjá utanríkisráðu-
neytinu og hjá Útflutningsráði islands. Gert er ráð
fyrir að styrkirnir geti að jafnaði numið um þriðjungi
af kostnaðaráætlun hvers verkefnis, þó aldrei meiru
en helmingi og ber umsækjendum að gera grein fyr-
ir því hvernig þeir hyggjast frjármagna mismuninn.
Utanríkisráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum
um ofangreinda styrki.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk. og umsóknum skal
skilað til utanríkisráðuneytisins, viðskiptaskrifstofu,
Hverfisgötu 115, 105 Reykjavík, bréfasími 624878
eða Útflutningsráðs islands, Hallveigarstíg 1, 101
Reykjavík, bréfasími 17222.