Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1994, Síða 36
44 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994 Sviðsljós Þau Jackie og John voru sannarlega fulltrúar hlns raunverulega amer- íska draums, ung, glæsileg og rík. 33ja ára ekkja meö tveimur ungum börnum yfirgefur Hvíta húsið á leið til jarðarfarar. Jackie til hægri ásamt móður sinni Janet og systur Lee. Myndin var tekin þegar Janet var enn gift föður Jackie, Black Jack. Jacqueline Kennedy Onassis er fallin frá aðeins 64 ára að aldri og heims- blöðin keppast við að minnast þess- arar einstæðu konu sem bandaríska þjóðin dáði. Jackie kærði sig aldrei um sviðsljósið og hefur ekki gefið viðtal í 25 ár þannig að blöðin hafa fátt eitt skrifað um hana í einkalíf- inu. Hins vegar hefur Jackie aldrei gleymst og myndir af henni hafa birst reglulega í blöðum, sérstaklega þar sem hún er á gangi í Central Park í New York en þar tók hún sér heilsugöngu upp á hvern dag. Jackie bjó einmitt skammt frá garðinum við Fimmtu breiðgötu og hafði útsýni yfir hann úr gluggum íbúðar sinnar. Flestir þekkja sögu hennar. Jackie fæddist með silfurskeið í munninum á Long Island 28. júlí 1929. Hún var dóttir John Vemou Bouvier III og Janet Lee Bouvier. Þau hjónin skildu árið 1940 en móðir hennar giftist aft- ur tveimur árum síðar Hugh Auc- hincloss. Eftir menntaskólanám hélt Jackie til Parísar þar sem hún stundaði frönskunám í eitt ár. Hún útskrifað- ist frá George Washington háskólan- um í Washington DC áriö 1951. I starfi sínu sem blaðamaður kynntist hún ungum stjórnmála- manni, John Fitzgerald Kennedy. Þegar þau gengu í hjónaband í New- port Rhode Island í september 1953 var hann 36 ára en hún 24ra. Jackie gekk með fyrsta barn þeirra árið 1956. Barnið, sem var stúlka, fæddist andvana. Jackie fæddi aðra dóttur í nóvember 1957, Caroline. Hún var aðeins þriggja ára þegar faðir hennar varð forseti Bandaríkjanna. Sonur- inn John John fæddist þremur vik- um eftir að John F. Kennedy varð forseti. Enn varð Jackie barnshaf- andi og í ágúst 1963 ól hún son, Patrick Bouvier Kennedy, en hann lést tveimur dögum eftir fæðingu. Þegar Jackie varð forsetafrú í Hvíta húsinu breyttist ýmislegt þar. Hún lét „yngja“ upp útlit hússins auk þess sem hún bauð sjónvarpsmönn- um í heimsókn en það var í fyrsta - og því er lítið vitað um einkalíf henncir skipti sem sjónvarpsútsending var frá einkaíbúð forsetans. Það þarf ekki að rifja upp hinn eft- irminnilega dag í nóvember 1963 í Dallas þegar John F. Kennedy var myrtur. Um þann atburð hafa verið gerðir ófáir sjónvarpsþættir og bíó- myndir. Jackie olli Bandaríkjamönnum verulega miklum vonbrigðum þegar hún gekk í hjónaband með gríska auðkýfingnum Aristotle Onassis í október 1968. Hjónaband þeirra var hins vegar varla meira en á pappír- unum. Onassis lést árið 1975 og eftir það lifði Jackie rólegheitahfi langt frá sviðsljósinu. Hún lagði mikið upp úr fjölskyldulífi. Börn hennar og barnabörn voru mikið hjá henni. Jackie kaus að vinna úti þó hún ætti næga peninga til að gera ekki neitt. Hún starfaði hjá bókaútgáfunni Do- ubleday í New York um langt skeið og gaf út að minnsta kosti fimmtíu bækur þar á meðal bók um Michael Jackson. Helsti vinur hennar til margra ára var viðskiptajöfurinn Maurice Tempelsman sem var fæddur í Belg- íu árið 1929. Hann var ellefu ára þeg- ar foreldrar hans flúðu til Bandaríkj- anna undan nasistum. Faðir hans átti viðskipti með demanta og Maurice tók við fjölskyldufyrirtæk- inu. John Kennedy yngri er ókvæntur en hefur verið kenndur við leikkon- una Daryl Hannah. Carohne og eig- inmaður hennar Ed Schlossberg eiga þrjú börn, Rósu, sem er fimm ára og skírð í höfuðið á 104 ára langömmu sinni, Tatiana sem er 4ra ára og John Bouvier Kennedy sem er ársgamall. Jackie Kennedy kaus að deyja heima hjá sér. Hún hafði háð erfiða baráttu við krabbamein í eitlum og læknar gátu ekkert meira fyrir hana gert. Hún var jarðsett viö hlið fyrri eiginmanns, Johns F. Kennedys og barna þeirra tveggja. Myndirnar hér á síðunni lýsa best sérstæöu lífshlaupi þessarar glæsi- legu konu. Síðasta myndin sem tekin var af Jackie Kennedy Onassis. Myndin var tekin i Central Park en meö henni er vinur hennar, Maurice Tempelsman, dóttir- in Caroline og sonur hennar, John. Brúðhjón Jackie og John F. Kennedy voru gefin saman 14. sept- ember 1953. Jackie og John ásamt börnum sín- um tveimur, Caroline og John John. Ólyginn ... að leikkonan Drew Barry- more, sem er 19 ára, hefði gifl sig fyrir stuttu. Sá lukkulegi mun vera Jeremy Thomas, 31 árs. Drew sló rækilega I gegn I kvik- myndinni E.T. á sínum tíma, að- eins sjö ára, en peningarnir sem hún þénaði fóru aflir i fíkniefni og áfengi. Leikkonan fór í með- ferð vegna ofneyslu þessara efna aðeins þrettán ára. Hún skrifaði bók um lif sitt fjórtán ára. ...að leikkonan Mia Farrow hefði mikinn áhuga á að fjárfesta á írlandi með þvi að kaupa sér hús eftir að hún starfaði þar við kvikmyndaupptökur. Umhverfið á írlandi gerði henni gott eftir alla erfiðleikana f sambandí við skifnaðinn við Woody Allen. ... leikkonan Kim Basinger hefði mikið sólarexem og yrði því að forðast sólina svo mikið sem hægt er. Þegar hún er að leika í sólskini lætur hún starfs- fólk halda sólhlíf fyrir sig svo hún sé i skugga. Auk þess verður leikkona að bera þykkt lag af sólarvörn á sig. ... að leikkonan Whoopi Gold- berg hefði nú ákveðið að giftast sínum heittelskaða sfðará þessu ári en hann mun heita Lyle Trac- htenberg. Ástarsambandi henn- ar og leikarans Teds Dansons lauk fyrir skömmu en ekki leið á löngu áður en Whoopi var orðin ástfangin á nýjan leik enda geng- ur þetta þannig fyrir sig i Holly- wood. ... að prins Guíllaume, sonur stórhertogans af Lúxemborg, hefði trúlofast fyrlr stuttu. Sú heppna er hln franska Sibillia Welller, 26 ára, en hún er af borgaralegum ættum. Guillaume er þriðji sonur hertogans og sá síöasti þeirra sem gengur í hjónaband. Hin dáða Jackie: Gaf ekkert viötal í 25 ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.