Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Side 8
I tilefni þjóðhátíðar
höfum við iokað laugard. 18. júní
Aðra laugardaga í sumar verður
verslun okkar opin milli kl. 10 og 13
Bílavörubú6in
FJÖÐRIN
Skeifan 2 • Sími 812944
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994
Stuttarfréttir
Uflönd
Sérfræðingur í opinberum rétti um Svalbarðasvæðið:
Norsk lög um f isk
veiðar eiga ekki við
Norsk stjómvöld ætla áfram aö
bregðast hart við skipum sem þau
telja að stundi ólöglegar veiðar á fisk-
vemdarsvæðinu við Svalbarða og
munu framfylgja rétti sínum.
„Við vonum að trollklippingamar
og viðvörunarskotið hafi verið nægi-
leg aðvörun þannig að þessir atburð-
ir endurtaki sig ekki,“ sagði Björn
Tore Godal, utanríkisráðherra Nor-
egs, eftir fund hans í gær með Eiði
Guðnasyni, sendiherraíslands í Nor-
egi, um Svalbarðadeiluna. „Bilið
milli íslendinga og Norðmanna er
ekki eins mikið og óttast var,“ sagði
hann.
Godal vísaði á bug þeim orðum ís-
lendinga að aðgerðir norsku strand-
gæslunnar væru jafn harkalegar og
raun bæri vitni vegna þess að réttar-
staða Noregs væri veik. Hann sagði
að trollklippingar og viðvörunarskot
væm eðlilegur framgangsmáti í
slíkri aöstöðu og lagaleg staða Nor-
egs væri sterk.
Norsk stjómvöld em hins vegar
mjög treg til að svara þeirri spurn-
ingu íslenskra yfirvalda hvers vegna
togaramir séu ekki færðir til hafnar
og dómstólum fengið málið til úr-
skurðar.
Norska fréttastofan NTB reyndi að
fá svar við þessu í gær en var vísað
úr einu ráðuneytinu í annað án þess
að verða nokkuð ágengt.
Norskir lögspekingar segja ein-
falda ástæðu fyrir því að ákveðið
hafi veriö að skera á troll í stað þess
að færa meinta landhelgisbrjóta til
hafnar.
„Norsk lög og fyrirmæh um stjóm-
un fiskveiða í efnahagslögsögunni
gjlda ekki á fiskverndarsvæðinu við
Svalbarða. Þess vegna yrði erfitt að
fá skipstjóra dæmdan fyrir veiðar á
fiskverndarsvæðinu," sagði Geir Ul-
stein, sérfræðingur við stofnun um
opinberan rétt við Óslóarháskóla.
Ulstein sagði að dómstóllinn yrði
að dæma eftir norskum lögum og
þegar þau væru ekki til gæti svo far-
ið að landhelgisbrjótar fæm fijálsir
ferða sinna. Hins vegar yrði sjálfasgt
auðveldar fyrir norsk stjómvöld að
vinna svona mál fyrir Alþjóðadóm-
stólnumíHaag. ntb
HittastíLoiidon
Sáttasemjarar helstu stórveld-
anna ætla að hittast í London til
að reyna að ná sáttum í Bosníu-
deilunni.
HertilRúanda
Þjóöir Evrópu og Afríku íhuga
að senda herlið til Rúanda ef
fjöldamorðum linnir ekki og ekki
næst vopnahlé.
Aðgerðir gegn N-Kóreu
Bandaríkja-
menn birtu
uppkast að
ályktuninni
varðandi refsi-
agerðir gegn
N-Kóreu á
sama tíma og
Jimmy Carter,
fyrmm Bandaríkjaforseti, fór til
N-Kóreu til að reyna að miðla
málum.
Standaásinu
Chnton Bandaríkjaforseti segir
að Bandaríkjamenn muni standa
fast á sinu varðandi refsiaðgerðir
gegn N-Kóreu.
Skotið á Aden
N-Jemenai' skutu þremur flug-
skeytum að Aden þrátt fyrir að
að hafa sýnt vilja til að koma á
vopnahléi.
Oiian hækkaði
Fundur ráöherra OPEC-ríkj-
anna og spennan á Kóreuskaga
olli hækkun á olíu.
Látnir lausir
14 starfsmenn SÞ í Súdan, sem
rænt var fyrir viku, hafa verið
látnir lausir.
Tónleikumfrestað
Breski tón-
listarmaðurinn
Peter Gabriel
hefur frestaö
tónleikum sín-
um sem halda
átti í Kaíró í
Egyptalandi
vegna tækni-
legra örðugleika.
Fangarlátnirlausir
ísraelar segjast ætla að láta
annan hóp palestínskra fanga
lausan.
Dæmdirífangelsi
Herréttur í Marokkó dæmdi sex
Marokkóbúa og tvo Alsírbúa í
5-20 ára fangelsi fyrir að útvega
múslímskum öfgasinnum vopn.
Lockerbie-siysið
Bretar verða að rannsaka yfir-
lýsingu Palestinumansins sem
sagðist hafa staöið að Lockerbie-
slysinu.
Miklareldingar
Mikiar eldingar i Alaska hafa
valdið því að eldar hafa víða brot-
ist út í skóglendi.
YfirAtlantshafið
Englendingur sem ætlaði að
verða fyrstur til að fara á brim-
bretti yfir Atlantshafið varð að
snúa við eftir aðeins klukkutíma.
KreQastendurbóta
Leiðtogar
Rómönsku
Ameríku kreíj-
ast þess að Fid-
el Castro, for-
seti Kúbu, geri
gagngerar end-
urbætur hvaö
varöar efnahag
og stjómmál á Kúbu.
Efnahagsbati
Fjármálaráðherra Bretlands,
Kenneth Clarke, segist sjá hægan
en góðan eíhahagsbata.
Reuter
Færeyingar hefja
olíuleit fyrir aivöru
Rannsóknir eru nú hafnar á þvi
hvort olíu sé hugsanlega aö finna á
hafsbotni innan færeyskrar lögsögu.
Rannsóknarskipið Sea Star frá
bandaríska fyrirtækinu Western
Geophysical Corporation sigldi inn í
lögsöguna í gær og mun stunda
mælingar með aðstoð skjálftatækni
umhverfis allar eyjarnar í sumar.
Góðar líkur eru taldar á að olia
finnist á færeyska hafsvæöinu þar
sem Bretar hafa á síðustu árum
fundið mikla olíu viö Hjaltlandseyj-
ar, aðeins örfáa kílómetra utan fisk-
veiðilögsögunnar milh eyjanna.
Fyrst verður því hafist handa um
að rannsaka hafsvæðið í átt aö Hjalt-
landseyjum, og einnig verður rann-
sökuð borhola á Suðurey. Rannsókn-
imar nú eiga að leiöa í ljós hvort
grundvöllur er fyrir tilraunaborun-
umolíufélaga. Ritzau