Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994
25
Hún er lýðveldisfósturbam íslands:
Fæddist í brennandi
stríði í Finnlandi
- segir Christel Þorsteinsson flugfreyja sem heldur upp á fimmtugsafmæli sitt á morgun og 26 ára brúðkaupsafmæli
„Þaö var brennandi stríö þegar ég
fæddist í bænum Kuusankoski í
Finnlandi 17. júní 1944. Fjölskyldan
flutti á sama sólarhringnum til
Helsinki þar sem hún býr enn,“
segir Christel E. Ahonius Þor-
steinsson ílugfreyja sem ætlar að
halda upp á fimmtíu ára afmæli
sitt sautjánda júní eins og önnur
lýðveldisbörn landsins. Christel er
finnsk en hefur búið á íslandi sl.
þrjátíu ár. Hún er gift Garðari Þor-
steinssyni framkvæmdastjóra en
þau munu einnig hafda upp á 26
ára brúðkaupsafmæli sitt á morg-
un.
„Það hefur haft mikil áhrif á líf
mitt að ég skyldi vera svo heppin
að fæðast þennan dag. Fólk hefur
alltaf rætt mikið um það. Mér
finnst mikill heiður að vera fædd
sautjánda júní og þykir mjög vænt
um það,“ segir Christel. Móðir
hennar, Beatrice Ahonius, kom
hingað til lands í tilefni afmælis
dóttur sinnar og lýðveldis íslands
og annar bróðir Christel einnig.
30 ára starfsafmæli
Christel, sem síðan á þrjátíu ára
starfsafmæli hjá Flugleiðum í júlí,
kom hingað til lands þar sem hún
var of ung til að starfa sem flug-
freyja í Finnlandi. „Það var verið
að auglýsa eftir finnskumælandi
flugfreyjum hjá Lofleiðum og ég
sótti um og fékk starfið. Ég kunni
ekki orð í íslensku þá en átti góða
samstarfsmenn sem voru fljótir að
kenna mér hana. Ég haíði líka alltaf
haft áhuga á að læra íslensku,“ seg-
ir Christel. Hún hefur þó ávallt
haldið miklum tengslum við föður-
land sitt og talar við móður sína
mörgum sinnum í viku. „Ég hef
samt aldrei haft á tilfinningunni að
ég sé.útlendingur hér á íslandi,"
útskýrir hún. „Ég hef verið mjög
heppin með það. Fjölskylda manns-
ins míns hefur tekið mér svo vel.“
Beatrix Ahonius kom frá Finnlandi til að vera viðstödd afmæli dóttur sinnar, Christel Þorsteinsson flugfreyju,
en hún er lýðveldisfósturbarn íslands. DV-mynd GVA
Ekki á Þingvöll
Christel ætlar að halda upp á af-
mæli sitt og hjónabandsins átjánda
júní að þessu sinni þar sem svo
mikið verður um að vera þann
sautjánda. „Mér fmnst alveg meiri-
háttar skemmtilegt að eiga afmæh
þennan dag,“ ítrekar hún. „Við
ákváðum á sínum tíma að gifta
okkur á afmælisdaginn minn og
þjóðhátíðardegi íslendinga. Við
giftum okkur í Finnlandi og það
var hroðalegt hneyksli því 17. júni
bar upp á mánudag. Fólk stóð á
öndinni yflr þessari ákvörðun.
Hjónabandið hefur gengið vel í 26
ár þrátt fyrir það,“ segir Christel
og hlær.
Þau hjónin ætla ekki á Þingvöll
að þessu sinni þar sem Garðar hef-
ur átt við veikindi að stríða. Christ-
el segist ætla að fylgjast með í sjón-
varpinu í staðinn. „Það fyllist alltaf
hjá mér húsið þann sautjánda og
það gerist áreiðanlega líka núna,“
segir hún.
Christel htur á sig sem bæði ís-
lending og Finna. Þó segist hún
ekki geta hug'sað sér að flytja héðan
til föðurlandsins aftur. „ísland er
partur af mér,“ segir hún. „Ég hef
þó aidrei skipt um ríkisfang enda
er mikil og góö norræn samvinna.
Mér finnst ég verða að hafa eitt-
hvað að heiman.“
Sérstökgjöf
Christel riíjar upp skemmtilega
sögu frá því hún trúlofaði sig en
þá færði hinn tilvonandi eiginmað-
ur foreldrum hennar íslenskan
fána að gjöf en á fánastönginni, sem
var úr silfri, var grafið 17. júni 1944.
„Foreldrar mínir skildu þetta ekki
og tóku það þannig að á íslandi
væri til siðs að gefa fána með fæð-
ingardegi tilvonandi brúðar,“ segir
Christel. Misskilningurinn var þó
leiðréttur og foreldrar brúðarinnar
voru heldur stoltir af fæðingardegi
dótturinnar.
Þessi fæðingardagur hefur hka
vakiö athygli í Finnlandi því í vik-
unni hringdi finnska útvarpið til
Christel og tók við hana viðtal
vegna afmælis hennar og íslenska
lýðveldisins.
Ambra
Mini Tewer
♦ 486 DX2, 66 MHz
♦ 245 MB diskur
♦ 4 MB minni, stækkanlegt í 32 MB
♦ 1 MB skjáminni
♦ VESA Local Bus skjástýring
♦ 6 lausar ISA raufar
♦ Rými fyrir 3 aukadrif
♦ Ein laus VESA rauf
♦ 2 raðtengi / 1 hliðtengi / 1 músartengi
♦ 12B KB skyndiminni
♦ "MiniTower" kassi
♦ MS DOS 6.0 og Windows 3.1
♦ 14" SVGA LR litaskjár, hnappaborð,
mús og músarmotta
A 8VI B H -A
A*einskr.
!Z£^oo^r.
<Q>
NÝHERJI
SKAFTAHLlO 24 - SlMI 69 77 00
Alitaf skrefi á undan
Þein sem fá DV í póstkassann reglulega geta
áit von á þrjátíu þúsund krána matarkörfu
Áskriftargetraun DV
gefur skiivísum
áskrifendum, nýjum
og núverandi,
möguleika á að vinna
þrjátíu þúsund króna matar-
körfu að eigin vali. Sex matar-
körfur á mánuöi eru dregnar út,
hver að verðmæti 30 þúsund
króna. Tryggðu þér DV í póst-
kassann á hverjum degi og.þar
með greiðan aðgang að lifandi og
fjölbreyttum fjölmiðli og sjálfkrafa
þátttökurétt í áskriftargetrauninni.
DV - hagkvæmt blað.
63 27 00
NÝHERJI / GP