Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 4
4 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
oðskapur englanna á Betlehemsvöllum var persónulegur-. „yÖur er í
dag Frelsari fæddur..." En Ipetta var ekki aðeins fyrir jpá sem heyrðu
boðskapinn f>essa nótt. Allir menn geta fengið hlutdeild íþessari gleði.
Jesús Kristur kom til að frelsa alla menn. Þegar hann dó á krossinum
tók hann á sig syndir alls heimsins (jpínar og mínar syndir), en jpað
sem hann gerði, verður fyrst lifandi staðreynd, jpegar við tökum per-
sónulega á móti honum í líf okkar. Trúin á Krist
og að gefast honum, er lykillinn að hinni sönnu
gíeði.
Hirðarnir báðu ekki um neitt se'rstakt tákn, en
jpeir fengu jpað samt. Þeir áttu strax að fara til
Betlehems og finna ungbarn, reifað og lagt í jötu.
Hugsanir Guðs eru æðri hugsunum mannsins,
jpegar um er að ræða jpað sem gefurfrið, öryggi og
gleði. Það er ekki spurning um mátt eða vald,
ríkidæmi eða jpjóðfélagslega stöðu. Hirðarnir
fundu barn.
Jesús Kristur gefur hina sönnu gleði, vegna
þess að hann er sjálfur uppspretta gleðinnar. Það
er hægt að mæta honum á persónulegan hátt, og
jpá umbreytist líf okkar. Hann hefur miklu meira
að bjóða en fágaðar og fallegar athafnir og messur og stórhátíðir. í
hversdagslífinu er hann vinur, friðarhöfðingi, rekur burtu óttann og
fyrirgefur syndir. Hann gengur jpér við hlið, erjpín björgun.
Hinirfyrstu, sem flytja áttu jpennan gleðiboðskap um jörðina, voru
nokkrir fátækir hirðar á Betlehemsvölium. Á þessum tímum voru
fjárhirðar jpeir lægstu í jpjóðfélaginu. Þð svo að nokkrir affremstu leið-
togum gamla tímans hafi verið hirðar, var litið niður á fpetta starf.
Hirðarnir voru settir á stall með útigangsmönnum, og þess vegna
voru þeir ekki hæfir, meðal annars, til að bera vitni fyrir rétti. Menn
álitu að ekki væri hægt að treysta þeim.
En þegar Guð þurfti að nota vitni að þeim stærsta atburði sem
hingað til hafði gerst á jörðunni, valdi hann þá sem enginn reiknaði
með, það sem heimurinn gat ekki notað, það sem ekkert var í augum
manna, það valdi Guð.
Guð þarf á öllum að halda til að flytja þennan gleðiboðskap, en
boðberarnir þurfa fyrst að hafa upplifað hina miklu og sönnu gleði í
sitt líf. Hún fæst með því að trúa á hann, taka við
honum, sem fæddist - Jesús Kristi.
Nóg er af jarðneskri gleði, en hún fölnar í
samanburði við þá himnesku. Það er ekki einu
sinni hægt að líkja þeim saman. Himneska gleðin
varir, þegar aðrar gleðilindir tæmast. Hún er
hrein og heilög og sýrist ekki. Það sem gerði þessa
gleði svo mikla við að Jesús Kristur kom í
heiminn, er að Guð varð hold (maður). Fyrirheit
Guðs rættust, frelsari fæddist! Það var svarta
myrkur yfir Betlehemsvöllum þegar englarnir
birtust, en þetta svartnætti varð bjartara en á sól-
ríkasta degi, þegar boðskapurinn um frelsarann
var kynntur. Honum var ekki aðeins ætlað að
fjarlægja myrkrið, sem grúfði yfir Betlehems-
völlum þessa nótt. Heldur reka burtu myrkrið úr hverri einustu sál á
þessari jörðu, sem opnarhjarta sitt fyrir þessu himneska Ijósi.
jesús kveikir Ijós í hinum myrkustu hjörtum enn í dag. E/ þú,
lesandi góður, sem ekki hefur opnað hjarta þitt fyrir honum, gerir það
núna, munt þú upplifa himneska jólahátíð. Hann sem kveikir Ijósið
innra með þér, er eilífur, og þvímunt þú eignast eilíft líf með honum.
Gleðilega jólahátíð íjesú nafni.
Höfundur er lorsíóhmadur Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri.
Vörður L. Traustason.
Vörður L. Traustason.