Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 5
Víðigerði í Víðidal, verslun, veitingar, gisting og verkstæði.
Myndir: sþ
Víðidalur:
Sveitalífið stendur undir voiiiun
- talað við Agnar og Rannveigu í Víðigerði
Hjónin Agnar E. Jónsson og Rannveig Stefánsdóttir í Víðigerði.
í Víðigerði í Víðidal hefur ver-
ið rekin þjónusta við ferða-
menn um langt skeið. Staður-
inn er við vegarkantinn á þjóð-
vegi númer eitt og því hand-
hægt fyrir ferðlúna að staldra
þar við og njóta veitinga og
gista. Og bili bíllinn er gert við
hann á verkstæðinu á staðn-
um. Þau Rannveig Stefáns-
dóttir og Agnar E. Jónsson eru
nýtekin við rekstrinum í Víði-
gerði.
Ég tók hús á þeim nýlega til að
spyrjast fyrir um hvernig þeim
líki vistin, en þau hafa búið í|
Reykjavík um árabil. Þar vann
Rannveig í Bjarkarási, heimili
fyrir þroskahefta, en Agnar rak
bílaverkstæði ásamt fleirum. Þau
eru þó ekki innfæddir Reykvík-
ingar, Agnar er ættaður frá Þor-
finnsstöðum í Víðidal og því nán-
ast heimamaður. Rannveig er
hinsvegar frá Snæfellsnesi,
Vatnsholti í Staðarsveit. Þau eru
því bæði sveitafólk að ætt og upp-
runa og segjast ákaflega ánægð
með að búa í sveit og einskis
sakna frá Reykjavík.
Margvísleg þjónusta
- Hvað er langt síðan þið
fluttuð?
Rannveig: „Við fluttum um
miðjan mars alkomin, en við tók-
um við hérna 14. desember í
fyrra. Þangað til var þetta
fjarstýrt, við fórum á milli um
hverja helgi.“
- Sá þá einhver um þetta fyrir
ykkur?
Agnar: „Já, sá sem er á verk-
stæðinu sá um þetta. Það var allt
lokað nema bensínið.“
Þau segja fremur lítið að gera
að vetrinum, hins vegar sé bæði
opið fyrir veitingar og gistingu.
Agnar segir nýtingu á gistingunni
síðastliðið sumar ekki hafa verið
neitt sérstaka.
„Við höfum ekki tekið neitt
saman í prósentur. Nýtingin var
minni en við bjuggumst við.“
Rannveig tekur undir þetta og
kveðst hafa haldið að nýtingin
yrði mun meiri. Gistirými er fyrir
17 manns í svefnpokaplássi, eða
uppbúnu rúmi og möguleiki á að
börn geti sofið á dýnu inni í her-
bergjum með foreldrum.
„Maður missti kannski fólk
með börn út, af því að þau vildu
hafa eldunaraðstöðu. Við erum
komin með hana núna. Fólk get-
ur hitað sér kaffi og létta máltíð,“
sagði Rannveig. Þau töldu ekki
að auglýsingum væri ábótavant,
það væri ekki orsökin. Að mati
Agnars mætti þó kynna svæðið
betur. Svo vantaði t.d. aðstöðu
eins og tjaldstæði. Hvað sumarið
Yiðtal:
Sigríður Þorgrímsdóttir
varðar segja þau að veðrið hafi
sett strik í reikninginn. „Fólkið
hvarf,“ segir Agnar.
Síðastliðið sumar unnu tvær
stúlkur hjá þeim og svo vinnur
maður á verkstæðinu allt árið.
Þar er sinnt almennum bílavið-
gerðum og vélaviðgerðum fyrir
bændur.
Meiri þátttaka í félagslífi
- Hvað kom til að þið fluttuð
út á land?
Agnar: „Við vorum að hugsa
um þetta. Við fórum oft hingað
norður. Þetta var til sölu og eru
hlutir sem maður hefur verið að
fást við.“
Rannveig: „Ég held að sveita-
barnið hafi blundað dálítið lengi í
rnanni."
- Stendur þetta undir vonum
ykkar?
Agnar: „Já. Þetta er náttúru-
lega mikil vinna sem fylgir þessu.
Ég held að þetta sé svipað og við
bjuggumst við.“
Þau hjónin eru með tvær
stelpur, fjögurra og tíu ára og
þær eru mjög ánægðar í sveitinni
að sögn. Agnar: „Það er öðru vísi
í skólanum, krakkarnir taka
miklu meiri þátt, í öllum
skemmtunum og svoleiðis. Þetta
er miklu almennari þátttaka. Og
eins tekur maður sjálfur meiri
þátt í því sem er um að vera.“
- Ber reksturinn sig?
Agnar: „Það sem jafnar þetta
út hjá okkur er verkstæðið. Við
ætlum að breyta hérna fyrir næsta
sumar, auka verslunarplássið og
laga veitingasalinn.“
- Eruð þið bjartsýn á fram-
haldið?
Rannveig: „Já, já, það þýðir
ekkert annað.“
Veitingasalurinn í Víðigerði.
Okkar bestu óskir um
gleðileg jól
og farsæld á komandi ári.
Bæjarverk
Rauöumýri 22 • Sími 22992
Við sendum okkar bestu
jóla- og nýdrskveðjur
til viðskiptavina okkar og landsmanna.
Þökkum viðskiptin á árinu.
acohf
Skipholti 17, Reykjavík,sími 91-27333
Bestu jóla- og nýdrsóskir
sendum við öllum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum.
Þökkum viðskiptin á árinu.
BLIKKRAS HF.
Hjalteyrargötu 6 • Sími 26524
Bestu jóla- og nýdrsóskir
sendum við starfsfólki okkar
og þökkum gott samstarf á árinu.
HAGKAUP
Sendum öllum viðskiptavinum okkar
svo og öllum landsmönnum bestu
jóla- og nýárskveðjur
Þökkum viðskiptin á árinu.
TRÉSMIÐJA
Réttarhvammi 3 • Sími 11188