Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 21

Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 21
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 21 tíma til að halda áfram. Ég ákvað að fara til Vínar vegna þess að þar fékk ég tæpt ár af dýralækna- náminu metið inn í læknisfræði- námið, sem ekki hefði verið hægt hér á landi. Einnig hafði það sitt að segja að þar fékk ég tækifæri til að nema söng í virtum tónlist- arskóla, en söngnám var gamall draumur sem ég hafði ekki haft tækifæri til að láta rætast. Ég sá mér leik á borði að gera hvort- tveggja og reyndar leit ég svo á að söngurinn væri kærkominn til að bæta upp frekar þurrt læknis- fræðinámið. og við höfum rétt til að ákvarða líf þeirra og dauða með vissum skilyrðum. Hin eru takmarkaðir fjármunir sem við erum tilbúin að leggja til dýralækninga. Af þessum ástæðum meðhöndlar dýralæknir aldrei erfiðustu sjúk- dómana hjá sínum skjólstæðing- um. Þetta léttir óneitanlega dýra- læknisstarfið, en hitt kemur á móti að dýrategundirnar eru margar, dýralæknirinn þarf að vera allt í einu; lyflæknir, skurð- læknir, kvensjúkdómalæknir, augnlæknir o.s.frv. Hann getur sjaldnast sent frá sér sjúklinga, að leysa dýralækni af næsta sumar. Það er viss hvíld frá spítalavinnunni að grípa í dýra- lækningarnar. Bæði finnst mér gaman að eiga við dýr og ekki síður að hitta bændur og koma í öðruvísi samfélag." Vín er falleg borg Eins og áður sagði stundaði Hróbjartur Darri nám í söng í Vínarborg jafnhliða læknisfræði- náminu. Hann gerði lítið úr þessu áhugamáli og sagðist hafa farið í söngnámið fyrst og fremst ánægjunnar vegna. Með þessu Hross á báðar hendur. Hróbjartur Darri segist örugglega eiga eftir að stunda dýralækningar tímabundið í framtíð- inni. „Þegar kollegarnir fara í golf, fer ég sjálfsagt út í sveit að sprauta kýr og lækna hesta!“ Læknisfræðinám í Vínarborg er mjög svipað og hér heima, en vegna þess að ég ætlaði að starfa fyrstu læknisárin mín á íslandi, fékk ég leyfi til að taka bróður- partinn af verklegu námi læknis- fræðinnar hér heima við lækna- deild Háskóla íslands.“ Faglegur samanburður er erfiður Uppbygging dýralæknanámsins í Hannover og læknisfræðinámsins í Vínarborg var að sögn Hró- bjarts Darra ekki ósvipuð. „Munurinn á manni og æðri spendýrum er í læknisfræðilegu tilliti afskaplega lítill. Líffærin eru þau sömu og uppbyggingin í stórum dráttum hin sama, að öðru leyti en því að flest dýr standa á fjórum fótum en við tveim. Hins vegar er tekið á veik- indum manna og dýra á mjög mismunandi hátt af ýmsum ástæð- um. Sjálfsagt vega þar tvær ástæður þyngst. Önnur er sú að dýr- in eru okkar eign og á okkar ábyrgð sem hann ræður ekki við að með- höndla, til annarra dýralækna." Sáttur við að hafa farið þessa leið „Það verður áreiðanlega styrkur fyrir mig sem lækni að vera dýra- læknir og það er styrkur fyrir mig sem dýralæknir að vera læknir,“ sagði Hróbjartur Darri. „Ég hef öðlast reynslu í dýralækningum sem á eftir að nýtast mér í læknis- starfinu og öfugt. Til dæmis hef ég skorið á bilinu 50 til 60 keisara- skurði og ýmsa aðra uppskurði á dýrum. Tæknin við uppskurði er sú sama hjá okkur og dýrunum, þó skurðstofan og aðstaðan sé yfirleitt önnur. Ég er mjög sáttur við að hafa farið þessa leið, þó ég mæli ekki með henni fyrir þann sem ætlar sér að verða læknir. Þessi leið er óþarflega löng. En ég á örugg- lega eftir að stunda dýralækning- arnar tíinabundið í framtíðinni. Þegar kollegarnir fara í golf, fer ég sjálfsagt út í sveit að sprauta kýr og lækna hesta! Ég býst við hafi hann látið gamlan draum rætast. „Ég hefði auðvitað ekki þurft að fara til Vínar til að læra að syngja, en hún varð fyrir val- inu vegna þess að þar gat ég sleg- ið tvær flugur í einu höggi. Svo langaði mig að búa í Vín. Þetta er afskaplega skemmtileg borg. Þar er geysilegt framboð af alls- kyns músík og menningu og mik- ið um að vera. Hins vegar reynd- ust Vínarbúar ekki eins skemmti- legir og borgin þeirra er falleg, ég kynntist mest öðrum Austurrík- ismönnum en Vínarbúum." Hróbjartur Darri hefur ekki lagt sönginn á hilluna. Hann sæk- ir söngtíma hjá Michaeli Jóni Clarke við Tónlistarskólann á Akureyri og syngur auk þess í Kór Akureyrarkirkju. Hróbjartur Darri verður aðstoðarlæknir á F.S.A. að minnsta kosti til næsta sumars. Síðan býst hann við að afla sér meiri reynslu í eitt eða tvö ár hér á landi og að því loknu er líklegt að leiðin liggi aftur út í lönd í sér- nám í læknisfræði. Enn skal numið. óþh Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Verslið þar sem úrvalið er. Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina, starfsmanna og annarra landsmanna með þökk fyrir árið sem er að líða. FLUGLEIÐIR Innanlandsflug Óskum viðskiptamönnum og landsmönnum öllum gledilegra jóla og gleðilegs nýárs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Tölvufræðslan Akureyri hf. Glerárgötu 34 • Sími 27899 Bestu jóla- og nýársóskir sendum við öllum viðskiptavinum okkar Þökkum viðskiptin. HA6KAUF

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.