Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 9
í starií kennara og leiðtoga í kristilcgu unglingastarfí hafa ntargir dagar í lífi
Björgvins liðið með börnum. Ungi maðurinn á myndinni, sem tekin var fyrir
nokkrum árum, heitir Guðmundur Axelsson.
samkvæmt lögum KFUM urðu
drengir að hafa náð 17 ára aldri
til að teljast fullgildir félags-
menn. Þeir drengir, sem Björg-
vin starfaði með í Borgarnesi
voru flestir yngri, en að sögn
hans vildu þeir kalla sig KFUM-
félaga. Á vegum þess félagsstarfs
fór Björgvin á hverju ári með
drengjahóp úr Borgarnesi í
sumarbúðirnar í Vatnaskógi og
dvaldi þar sjálfur með þeim í
vikutíma. Þá annaðist hann
einnig sunnudagaskóla í sex vet-
ur af þeim átta sem hann starfaði
við kennslu í Borgarnesi.
Fenginn til að koma
drengjastarfí á fót
Þegar Björgvin Jörgensson kom
ásamt Bryndísi konu sinni til
Akureyrar árið 1946 var nokkurt
kristilegt félagsstarf á meðal
stúlkna í bænum. Ekkert drengja-
starf hafði hins vegar verið þar
um hríð, því starfsemi KFUM-
félags, er stofnað var nokkrum
árum áður hafði lagst niður. Með
komu Björgvins sköpuðust
möguleikar á kristilegu drengja-
starfi að nýju og kom Jóhanna
Þór, formaður Kristniboðsfélags
kvenna fljótt að máli við hann og
ræddi um hvort hann vildi taka
drengjastarfið að sér.
Björgvin kvaðst hafa sagt
henni að hann hefði hug á að
stofna KFUM-félag á Akureyri
en slík félagsstofnun þyrfti nokk-
urn aðdraganda vegna 17 ára
aldurstakmarksins. Vinna þyrfti í
nokkurn tíma með yngri drengj-
um áður en þeir næðu tilskildum
aldri til formlegrar félagsstofnun-
ar.
Farið að huga að
stofnun félags
Björgvin hóf þegar undirbúning
að félagsstarfinu og strax fyrsta
haustið á Akureyri var hann tek-
inn til starfa með nokkrum
drengjum á grundvelli KFUM.
Fyrsti formlegi fundur eða sam-
verustund þeirra var haldin 1.
desember 1946 og kvaðst Björg-
vin hafa valið fullveldisdaginn
vegna þess að þá er frí í skólum.
Björgvin byggði fundina upp á
svipaðan máta og hann hafði
kynnst í starfi KFUM í Reykja-
vík og unnið eftir í Borgarnesi.
Strax árið eftir voru drengirnir í
félagsstarfinu orðnir það margir
að hann skipti félagsstarfinu í
tvær deildir - yngri og eldri.
Á næstu árum eflist félagsstarf-
ið verulega og árið 1950 er farið
að ræða í alvöru um stofnun
formlegs félags er yrði innan
vébanda KFUM á íslandi.
Oumdeilanlegt
formannsefni
Stofnfundur KFUM á Akureyri
var haldinn 1. desember 1951. í
fyrstu hafði verið áformað að
stofna formlegt félag árið áður -
1950 og hafinn undirbúningur að
því. Á fundi nokkurra undirbún-
ingsaðila 10. febrúar 1950 var þó
tekin ákvörðun um að fresta
stofnun félagsins því talið var
heppilegra að fleiri félagar bætt-
ust í hópinn. Félögum fjölgaði og
á haustdögum 1951 var ákveðið
að tímabært væri að stofna form-
legt félag. Björgvin Jörgensson
hafði allan tímann eða í um fimm
ár verið í fararbroddi þeirra er að
undirbúningnum unnu og var því
óumdeilanlegt formannsefni.
Stofnfundurinn var haldinn í
Kristniboðshúsinu Zíon og voru
stofnfélagar 45 að tölu. Næsti
fundur hins nýstofnaða félags var
haldinn 8. janúar árið 1952 og á
þeim fundi var fyrsta stjórn
KFUM á Akureyri kjörin. í
henni áttu sæti auk Björgvins
Jörgenssonar, Anton Kristjáns-
son og Reynir Valdimarsson.
Lilja Sigurðardóttir
og KFUK
Þótt nokkurt kristilegt stúlkna-
starf hafi átt sér stað var ekki um
formlegt KFUK-félag að ræða.
En með stofnun KFUM var
brautin rudd og aðeins spurning
um hvenær ráðist yrði í stofnun
stúlknafélags. Björgvin sagði að
um þetta leyti hafi ung kona,
Lilja Sigurðardóttir flust til
Akureyrar. Hún hafi kynnst
Kristilegum skólasamtökum á
námsárum sínum í Reykjavík og
tekið þátt í kristilegu félagsstarfi.
Eftir að hún kom til Akureyrar,
haustið 1949 hafi hún farið að
starfa að kristilegum félagsmál-
um og verið ein aðaldriffjöðrin í
stofnun KFUK. Félagið var síðan
stofnað 15. nóvember 1952 og
gengu 24 konur í félagið á stofn-
fundinum.
Hólavatn og Sunnuhlíð
Þegar Björgvin Jörgensson var
inntur eftir hver hafi verið
stærstu verkefni félaganna á
þessu 40 ára tímabili er hann
fljótur að nefna stofnun og starf-
semi sumarbúðanna við Hóla-
vatn. Margir hafi lagt hönd á
plóginn til að gera þessa starf-
semi mögulega. Björgvin sagði
að fyrsta árið hafi aðeins verið
unnt að taka á móti 14 barna
hópum en með tilkomu bættrar
svefnaðstöðu geti um 30 börn
dvalist í sumarbúðunum hverju
sinni. Hann benti á að eftir því
sem tímar liðu hafi þörfin fyrir
sumarbúðastarfið farið vaxandi
og aldrei hafi verið eins mikil
aðsókn að Hólavatni og síðustu
sumur. Líf Björgvins er einnig
mjög samofið starfinu að Hóla-
vatni því hann veitti drengjastarf-
inu þar forstöðu allt frá upphafi
þar til fyrir tveimur árum.
Björgvin nefndi einnig byggingu
félagsheimilisins í Sunnuhlíð.
Lengi hafi verið draumur félag-
anna að eignast eigin aðstöðu til
félagsstarfsins er hafi ræst með
tilkomu Sunnuhlíðarinnar. í
Sunnuhlíð mun sameinað félag
KFUM og KFUK eiga sér
athvarf í framtíðinni.
Með komu Björgvins Jörgens-
sonar til Akureyrar og stofnun
KFUM og síðar KFUK-félags
var hleypt af stokkunum félags-
starfi á grundvelli kristindómsins.
Þess hafa margir unglingar notið
og ekki síst þeir er eiga dvöl í
sumarbúðunum við Hólavatn að
baki. Sumarbúðaþörfin er vax-
andi þáttur í þjóðlífinu og eflaust
eiga margir eftir að ganga þann
veg í framtíðinni er Björgvin
Jörgensson hefur staðið fremstur
í flokki við að ryðja. ÞI
'if
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
'^BlónmhúMn 4?
AKURS
Kaupangi v/Mýrarveg • Símar 24800 & 24830
Sendum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum bestu óskir um
gleðirík jól
og farsæld á komandi ári.
HF
N
wlSli
f&£3