Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 10
10 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
>..... .....................
Gleðileg \ól
og farsælt komandi ár
Sendum viðskiptavinum og
landsmönnum öllum okkar bestu
jóla- og
nýársóskir
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
rf BÍNAÐARBANKI
\A/ ÍSLANDS
útibúiö Akureyri og afgreiöslan
verslunarmiöstööinni Sunnuhlíö
Skelflugin kom ájóltmum
- smásaga eftir höíund sem kýs að skrifa imdir dulnefni
Það er fyrsti sunnudagur í
aðventu og ég er 5 ára gömul.
Það er búið að setja aðventu-
krans á stofuborðið og mamma
kveikir á einu kerti á eftir þegar
það er orðið dimmt úti. Jólalögin
eru spiluð í útvarpinu. Það er að
koma jólastemmning í flesta. Ég
má opna fyrsta gluggann á daga-
talinu eftir nokkra daga.
Ég finn ekki fyrir þessari til-
hlökkun og gleði sem flestir
finna, ekki mamma mín heldur.
Það er lítið til af peningum til
daglegra nota svo ekki verður
hægt að versla mikið fyrir jólin,
en það er allt í lagi svo framar-
lega sem skelflngin komi ekki
þetta aðfangadagskvöld og verði
fram á nýtt ár eins og öll hin
jólin. Það er allt í lagi að fá bara
venjulegan mat, lítið eða ekkert
jólatré, en það verða að vera
epli.
Ég er með verk í þindinni og
mér er óglatt. Af hverju tekur
Jesús ekki skelfinguna burt á jól-
unum? Hann á jú afmæli. Ég hef
alltaf beðið bæhirnar mínar og
mér þykir svo vænt um Jesú.
Hann er eini vinur minn. Hann er
alltaf til staðar og alltaf er hægt
að tala við hann svo ég skil þetta
ekki.
Mamma hefur breyst. Henni er
líka illt í maganum. Skelfingin
kemur til hennar líka. Við segj-
um ekki neitt, erum bara
hræddar. Það er jú búið að
kveikja á einu kerti. Vikan líður
alltof hratt. Ég er farin að opna
glugga á dagatalinu mínu. Það er
vont. Stundum vil ég ekki opna
glugga í þeirri von að geta stopp-
að tímann en það dugir ekki því
þá þarf að opna tvo daginn eftir.
Mamma bakar smákökur. Þær
eru beiskar og erfitt að kyngja
þeim því það stendur eitthvað
fast í hálsinum.
Nú er búið að kveikja á tveim-
ur kertum. Jólasveinarnir eru að
koma til byggða. Það er svo skrít-
ið með mömmu þeirra, hún bak-
ar alveg eins kökur og mamma
mín. Þær standa líka fastar í háls-
inum.
Mamma gerir hreint svo hún er
upptekin allan daginn. Hún er
svo skrítin á svipinn. Alveg eins
og hún sé bæði hrædd og reið í
einu. Hún verður mjög ströng.
Það má lítið leika sér og nánast
ekkert gera. Mamma segir að jól-
in komi ekki ef ég er ekki góð.
Ég er góð. Samt segir hún þetta.
Mamma er að sauma á mig jóla-
kjól. Hann er víst mjög fallegur,
hvítur með blúndu, svo fæ ég
undirkjól. Mér finnst vont að
vera í kjólnum þó ég sé mjög fín.
Þetta er mjög skrítinn kjóll. í
hvert sinn sem ég þarf að máta
hann fæ ég svo mikinn veríc um
allan magann og svíður inni í,
mér, langt inni í mér þar sem
hjartað er, alveg eins og þegar
kveikt er á kerti númer fjögur.
Það er komin Þorláksmessa.
Við mamma förum í bæinn. Ég
er eitthvað lasin. Mig langar ekki
til þess að vera í bænum. Mig
langar til þess að fara langt, langt
í burtu. Til Jesú, hann er góður
við börnin. Mamma eldar skötu.
Það er ógeðslegt. Hann kom ekki
í kvöldmat. Við biðum lengi.
Klukkan 22 sýður mamma hangi-
kjöt. Hún þorir ekki að henda
skötunni því hann gæti komið
heim og heimtað skötu.
Við eigum lítið jólatré. Það er
mjög fallegt. En þetta er bara lít-
ið barn. Stóru trén eru fullorðin.
Ég vorkenni þessu barnatré. Það
var höggvið niður og tekið frá
mömmu sinni. Ég ætla að vera
góð við það og skreyta það fal-
lega. Ég þori ekki að segja því frá
skelfingunni sem kemur á
morgun. Þá líður því svo illa og
fær illt í magann og svíður í
hjartað.
Ég ætla að biðja bænirnar
tvisvar í kvöld og biðja Jesú um
að passa þetta litla, einmana
barnatré svo skelfingin taki það
ekki á morgun. Ég get ekki
sofnað. Ég hrekk við í hvert
skipti sem bíll keyrir fram hjá
eða einhver gengur fram hjá. En
sofna loksins.
Ég vakna mjög snemma. Hann
er ekki kominn ennþá. Um
hádegið er ég orðin eitthvað veik
í maganum. Það er eins og ég
hafi borðað of mikið af steinum.
Samt hef ég eiginlega ekkert get-
að borðað lengi. Ég á mér felu-
stað í litlum skáp undir stiganum.
Ég fer þangað eftir hádegið. Þar
er gott að vera. Að vísu eru alls
konar pöddur þar sem ég er
hrædd við en verkurinn í magan-
um og hjartanu er ekki jafn
slæmur þegar ég er þar.
Mamma er byrjuð að elda jóla-
steik. Ég vildi óska að hún gerði
það ekki. Þá kæmi skelfingin
kannski ekki. Ég er sett í bað og
í jólakjólinn. Mamma skilur ekki
að hann meiðir mig í maganum
og hjartanu. Hún segir að það
geti ekki verið því hann sé svo
víður. Hún skilur ekki neitt. Ef
það væri enginn matur, ekkert
jólatré eða jólakjóll þá kæmi
skelfingin kannski ekki.
Klukkan er 18.00. Jólabjöll-
urnar hringja inn jólin. Mamma
Sendum öllum viðskiptavinum bestu
jóla- og nýársóskir
Þökkum viðskiptin á árinu.
Kranaleiga Benedikts Leóssonar
Lögbergsgötu 5 • Símar 24879 & 985-23879
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
ÁSGEIR EINARSSON H.F.
Engjateig 3 ■ Reykjavík • Sími 91-680611
Stærri-Árskógskirkja:
Leiðalýsiiig til
styrktar sjóndöprum
Aðventukvöld var haldið í
Stærra-Árskógskirkju á
Árskógsströnd sunnudags-
J kvöldið 6. desember sl. að við- | helgileiki, lesin var jólasaga af
stöddum um 130 hreppsbúum sóknarprestinum, sr. Huldu
| á öllum aldri. Börn fóru með | Hrönn Helgadóttur, og Bryn-
Hluti af kirkjukórnum ásamt organistanum, Guðmundi Þorsteinssyni.