Dagur - 18.12.1992, Síða 12
12 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
Sendum viðskiptavinum og starfsfólki okkar
bestu jóla- og nýársóskir
Farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103 • Sími 23399
Óskum viðskiptavinum okkar
svo og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og tarsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin.
Skipagötu 18 • Sími 23504
F élag aldraóra á Akureyri
óskar félags- og stuðningsmönnum sínum
gleðilegra jóla, þakkar störfin og allan
veittan stuðning á árinu 1992.
Stjórnin
£
Óskum starfsfólki, viðskiptamönnum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Jólaliátíðm og keppnisíþróttmiar:
,JJræðilegur tími íyrir þjálfarau
- segir Alíreð Gíslason, handknattleiksþjáLfari
„Þrátt fyrir að íþróttamenn séu í góðu keppnisformi þá geta þeir tapað því
niður á hálfum mánuði,“ segir Aifreð Gíslason.
Orðatiltækið „að liggja á melt-
unni“ á sennilegast aldrei bet-
ur við en einmitt um jólahátíð-
ina. Fólki er misjafnlega um
það gefið að sleppa sér lausu
í hlaðborð jóladaganna en
sennilegast teljast handknatt-
leiksmenn til þess hóps sem
spara verður við sig enda ber
jólahátíðina upp á mitt keppn-
istímabil þeirra. Okkur lá for-
vitni á að vita hvernig þeim
gangi að halda keppnisforminu
yfir þennan tíma og leituðum
því til Alfreðs Gíslasonar,
han d kn at tlciksma nns.
„Þetta er hræðilegur tími fyrir
þjálfara,“ sagði Alfreð, sem er
þjálfari 1. deildarliðs KA á Akur-
eyri, þegar við lögðum þá spurn-
ingu fyrir hann hvernig væri að fá
hátíð eins og jólin inn í mitt
keppnistímabilið. „Það er hætt
við að menn éti sig niður úr öllu
formi en ég mun ekki gefa frí
nema aðfangadag og jóladag að
þessu sinni. Reynslan í fyrra var
sú að menn voru orðnir leiðir á
að hanga heima í fjölskylduboð-
um og hringdu sig saman um að
fara á æfingu. Ég vona þess
vegna að engin stórvandræði
hljótist af þessu,“ sagði Alfreð.
Af löngum keppnisferli þekkir
hann vel til þjálfunar og segir
staðreynd að þrátt fyrir að
íþróttamenn séu í góðu keppnis-
formi þá geti þeir tapað því niður
á hálfum mánuði með því að
leggja árar í bát í þjálfuninni.
„En við erum heppnir hjá KA að
því leyti að við erum með ungan
hóp, stráka sem hafa ekkert ann-
að að gera en æfa en þetta er erf-
iðara fyrir fjölskyldumennina yfir
jólahátíðina. Og ég get sagt fyrir
sjálfan mig að mér líður illa ef ég
hreyfi mig ekki í tvo eða þrjá
daga,“ bætti Alfreð við.
Á handboltaferlinum hefur
Alfreð leikið bæði í Þýskalandi
og á Spáni og hann var spurður
hvernig jólahaldið í þessum lönd-
um hafi komið honum fyrir
sjónir.
„Jólahaldið á Spáni var allt
einhvern veginn miklu minna en
hér heima. Stemmningin var
miklu minni en hér heima og
sama má segja um Þýskaland.
Það er ekki lagt eins mikið upp úr
jólahaldinu, kaupæðið er minna
sem sést til dæmis á því að aug-
lýsingar fara hér á fulla ferð strax
í byrjun desember en úti skellur
þetta yfir viku fyrir jól.“
- En hvað þá með jólahaldið
hjá þér, þú hefur ekki smitast af
jólahaldinu erlendis?
„Nei, nei. Maður verður að
gera þetta fyrir börnin. Ég held
því dæmigerð íslensk jól og kon-
an sér um að halda uppi aga á því
sviði,“ sagði Alfreð Gíslason
hlæjandi í lokin. JÓH
Reikningur
- frá Oluf Larsen málarameistara
til ldrkjunnar í Skrave, Danmörku
Tveimur boðorðum breytt og öll boðorðin tíu
olíuborin kr. 2,24
Nýtt nef sett á ræningjann og hann gerður fingralengri kr. 1,02
Pílatus hreinsaður og olíuborinn aftan og framan. Loðkraginn endurnýjaður kr. 17,09
Gabríel hreinsaður og settir á hann nýir vængir kr. 3,00
Nýjar tennur settar í munn Sankti Pétri og fjaðrirnar á honum lagaðar kr. 1,30
Himinninn víkkaður og talsvert sett upp af nýjum stjörnum. Hreinsunareldurinn endur- bættur og ásjóna Djöfulsins lagfærð kr. 1,09
Heilög Magdalena (sem var hreint ónýt) gerð upp kr. 5,00
Silfurpeningar Júdasar húðaðir. Farið yfir forsjálu meyjarnar og dyttað að þeim á nauð- synlegustu stöðum kr. 1,08
Hárið á jómfrú Súsönnu endurnýjað ásamt skeifunum á hesti Elíasar. Mjói vegurinn breikkaður smávegis kr. 3,24
Gáfulegri svipur settur á Jósep. Kona Pótifars olíuborin. Heimsendir lengdur ofurlítið, þar eð hann var helst til stuttur kr. 3,19
Allur flugnaskítur hreinsaður úr Rauðahafinu kr. 3,07
Samtals Greitt 13. mars 1790, Oluf Larsen (sign) kr. 41,32
Hvaðhét
húnmóðir
hansJesús?
Einu sinni voru tvœr kerlingar
á bœ, og hófst önnur þeirra
upp úr eins manns liljóði um
jólaleytið eí’tir lestiu og sagði
við hina kerlingmia: „Hvað hét
hún móðir hans Jesús?“
„Og hún hét Máríá,“ sagði hin.
„Og ekki hét hún Máríá.“
„Og hvað hét hún þá?“ sagði
hin.
„Og veiztu ekki, hvað móðir
hans Jesús hét? Hún hét Finna.“
„Finna?“ sagði hin.
„Víst hét hún Finna. Heyrðirðu
ekki, hvað sungið var í sálmin-
um: í því húsi ungan svein og
hans móðir finna. Hét hún þá
ekki Finna?“
Kerlingin lét aldrei af sínu
máli, að hún hefði heitið Finna,
og séu þær ekki dauðar, eru þær
að deila um þetta enn í dag.
Þjóðsaga.