Dagur - 18.12.1992, Qupperneq 20
20 B - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
Okkar bestu óskir um
gleðileg jól
og farsæld á komandi ári.
■fU-SAMlÆR HF
VII/ Myndtxanda- og kvikmyndagerd
• SJÓNVRRP
RKURCVRI
Grundargötu 1 • Sími 27400
Sendum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum bestu
jóla- og nýárskveðjur
HUH|jMVER
Glerárgötu 32 • Akureyri • Sími 23626
;
%
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Kæliverk hf.
Frostagötu 3b • Akureyri • Sími 24036
BBQBBniiBI
Kaupfélag Skagfirðinga
sendir félagsmönnum sfnum,
starfsfólki, svo og öðrum
viðskiptavinum
bestu óskir um
gleðileg jól
og farsœld á komandi ári
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM^
Hróbjartur Darri Karlsson, aðstoðarlæknir á FSA,
fór „lengri leiðina“:
Læknar bæði meirn og dýr
Hróbjartur Darri Karlsson er
annar tveggja íslenskra lækna
sem hafa lært dýralækningar
og síðan innritast til náms í
læknisfræði. Hróbjartur Darri
hefur frá því í júní sl. unnið
sem aðstoðarlæknir á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
En þrátt fyrir það hefur hann
ekki lagt dýralækningar á hill-
una og býst fastlega við að
stunda þær í afleysingum
næsta sumar.
Hróbjartur Darri er 31 árs
gamall, fæddur á suðvesturhorn-
inu og uppalinn í Mosfellssveit,
sem núna heitir Mosfellsbær, en
var í sveit í nokkur sumur austur
á Rangárvöllum. „Nei, áhuginn á
dýralækningum kviknaði ekki í
sveitinni,“ útskýrði Hróbjartur.
„Ég ákvað að verða læknir löngu
fyrir fermingu, en þegar líða tók
á menntaskólagönguna fór lækn-
isfræðiáhuginn og áhuginn fyrir
dýrum að renna saman í eitt og
það varð úr að ég fór í dýra-
lækningar. Ég hafði reyndar
kynnst dýralækningum lítilshátt-
ar hjá dr. Karli Kortssyni, dýra-
lækni á Hellu. Hann leiddi mig í
sanninn um starfið og hvatti mig
til námsins og seinna varð hann,
þegar leið á námstímann,
lærifaðir minn um margt.“
Nám í Þýskalandi
og Austurríki
Hróbjartur Darri innritaðist til
náms í dýralækningum í Hannover
í Þýskalandi og var þar næstu sex
árin. „Þetta nám var í raun mjög
svipað uppbyggt og læknisfræði-
nám hér heima. Fyrstu tvö árin
voru kennd grunnfög eins og Iíf-
færafræði, eðlisfræði, efnafræði,
frumulíffræði, fósturfræði, líf-
efnafræði og lífeðlisfræði. Síðan
bættust við meinafræði, röntgen-
fræði, lyfjafræði, landbúnaðar-
fræði og fóðurfræði. Þrjú síðari
árin voru svokölluð klínísk ár,
þar sem sjúkdómar mismunandi
dýrategunda voru teknir fyrir,
auk matvælafræði, sýklafræði og
fleiri faga,“ sagði Hróbjartur.
Að námi loknu vann hann um
nokkurra mánaða skeið við
afleysingar í dýralækningum á
Fróni, en fór síðan til Suður-
Ameríku og flakkaði þar um
tíma. Snéri síðan aftur heim og
vann í hálft annað ár við dýra-
lækningar. „Ég fór í læknisfræði
. til Vínarborgar árið 1988. Ástæð-
an var ekki sú að mér félli ekki
við dýralækningar, heldur miklu
fremur að áhuginn á læknisfræði
lét mig aldrei alveg í friði. Ég
lauk dýralæknanáminu 24 ára
gamall og fannst ég hafa nægan