Dagur - 18.12.1992, Side 27
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 27
Pétur Atlason vaknaði. Hann
teygði úr sér og nuddaði stír-
urnar úr augunum. Honum
fannst hann ennþá vera
þreyttur. Best að ég hvíli mig
aðeins lengur, hugsaði hann.
Það birtir svo seint á þessum
árstíma. Dagurinn ætlar aldrei
að koma. Og Pétur Atlason lá
um stund á hliðinni. Fljótlega
varð honum kalt þótt hann
hnipraði sig saman.
Eg ætla að líta aðeins fram,
sagði hann við sjálfan sig.
Hann reis á fætur og læddist
út á ganginn. Best að fara
hljóðlega til að vekja ekki
mömmu og pabba. Þau eru
stundum dálítið morgunsvæf
og Pétri Atlasyni leiddist að
bíða eftir að þau vöknuðu á
morgnana. Þess vegna ákvað
hann hann að fara inn á
baðið. Hann gerði það oft
þegar enginn var kominn á
fætur. Hann horfði í kringum
sig og leit því næst yfir bað-
karsbrúnina og niður í bað-
karið. Hann sá að það var
froða í baðkarinu. Þegar hann
þefaði út í loftið fannst honum
hann finna lykt af sápu eða
sjampói. Þessa einkennilegu
lykt, sem alltaf kom þegar
einhver fór í bað. Og það var
froða í baðkarinu, sem orðið
hafði eftir þegar vatnið rann
úr því.
Þetta er skrýtið, sagði Pétur
Atlason við sjálfan sig.
Venjulega fer enginn í bað á
nóttunni. Ætli hafi verið
gestir? spurði hann sjálfan sig
og fór inn í stofuna. En þar
var allt á sínum stað. Þar voru
engin ummerki eftir gesti.
Engin aska í öskubökkunum.
Þeir voru alveg eins vel
hreinsaðir og þeir höfðu verið
kvöldið áður, þegar hann var
að horfa á sjónvarpið með
mömmu og pabba.
Enginn hefur verið hér,
sagði Pétur Atlason við sjálf-
an sig. Þau hafa líklega farið í
bað áður en þau fóru að sofa
og froðan ekki runnið niður
úr baðkarinu. Og það er nótt
ennþá. Það birtir hvort sem er
svo seint og erfitt að vita
hvort er kominn dagur. Best
að ég leggi mig og bíði eftir að
þau vakni. Og Pétur Atlason
skreið í bólið sitt og steinsofn-
aði.
Pétur Atlason var úti. Það
var afskaplega heitt og hann
var rennandi sveittur. Sólin
skein líka beint í augun á
honum. Þegar hann fór fram
með húshornunum fannst
honum að hann sæi ekki neitt.
Sólin var svo björt. Hann
hljóp áfram upp götuna. Við
og við leit hann upp í glugga
til að gæta að hvort það væru
gluggarnir heima. Hann hafði
aldrei hugsað um að svo langt
gæti verið heim. Hann hljóp
og hljóp, framhjá hverju hús-
horninu á eftir öðru. Loksins
þekkti hann gluggana. Bláu
gluggatjöldin hennar mömmu
voru vandlega dregin fyrir.
Og þegar hann læddist inn
fannst honum eins og matar-
lykt kæmi á móti sér. Þó
þekkti hann ekki þessa lykt.
Hann hafði aldrei fundið hana
áður. Samt var hún eins og
matarlykt. Og hún var góð.
Þetta hlaut að vera góður
matur. Og hann flýtti sér inn í
eldhúsið. En þá leit hann upp.
Honum var kalt. Glugginn
hlaut að vera opinn. Og hann
var orðinn verulega svangur.
Ég hlýt að hafa sofið lengi,
hugsaði Pétur Atlason. Best
að ég fari og athugi hvort
mamma og pabbi eru vöknuð.
Hann læddist inn í svefnher-
bergið. Fyrst rak hann haus-
inn inn um dyragættina. Svo
fór hann alveg inn og hoppaði
upp í rúmið. Hann var vanur
að hoppa upp í rúmið og
leggjast niður á milli þeirra.
Sérstaklega þegar honum var
kalt á nóttunni. Honum var
fljótt að hlýna þegar hann
hreiðraði um sig í hlýrri og
mjúkri sænginni.
En hvað var nú þetta? Eng-
inn var í rúminu. Pétur Atla-
son þreifaði á sængurfötun-
um. Þau voru köld. Það hefur
enginn sofið hér nýlega. Hvar
geta þau verið? Þau eru vön
að vera heima hjá sér á nótt-
unni. Nema þegar þau fara í
frí. Eða til útlanda. Þá er ég
alltaf hjá frænda mínum,
hugsaði Pétur Atlason. Þau
láta mig ekki vera einan
heima í marga daga. Hvað
ætti ég þá að borða?
Pétur Atlason ráfaði um
stund um íbúðina. Hann sá
engan. Hvorki í stofunni né í
eldhúsinu. Ekki heldur í
svefnherberginu eða á bað-
inu. Þetta var skrýtið. Og
hann var svo svangur. Enginn
matur í eldhúsinu. Tvær tóm-
ar kaffikrúsir stóðu á eldhús-
borðinu. Pétur Atlason gægð-
ist inn í ísskápinn. Hálftóm
mjólkurferna og biti af
agúrku blöstu við honum.
Ekkert annað og hann varð
svengri og svengri með hverju
augnabliki.
Eg verð víst að fara út og
kaupa eitthvað í matinn,
sagði Pétur Atlason við sjálf-
an sig. Ætli sé búið að opna
búðirnar? Og hann smeygði
sér út. Hann stóð á götunni og
leit í kringum sig. Það var
orðið bjart og kaldur stormur
þaut fram með húshornunum.
Tvær stelpur gengu framhjá.
Kuldalegar og með langa
trefla vafða marga hringi um
hálsinn. Önnur leit til hans
þar sem hann stóð ráðvilltur
og dálítið aumingjalegur á
götunni. Greyið kallinn, sagði
hún um leið og hnykkti höfð-
inu til og vafði treflinum betur
um hálsinn.
Þetta er undarlegur morg-
unn, hugsaði Pétur Atlason.
Venjulega var dimmt þegar
hann fór á fætur og mamma
og pabbi fóru í vinnuna. En
nú var bjart. Eins og um miðj-
an dag. Pétur Atlason lagði af
stað niður götuna. Hann varð
að kaupa eitthvað í matinn.
Hann gekk framhjá sjoppu.
Það fæst ekkert gott hér,
hugsaði hann. Mamma kaupir
bara sígarettur í þessari búð.
Ég reyki ekki og ekki get ég
borðað sígarettur. Hann gekk
áfram og fylgdist vel með
hverjum glugga.
Eftir dálitla stund fann
hann matarlykt og vatnið
streymdi fram í munninn á
honum. Lyktin kemur héðan,
hugsaði hann þar sem hann
stóð við stóra bláa, hurð.
Hann beið um stund og þegar
hurðin opnaðist skaust hann
inn. Fyrir innan voru margar
hillur. Alls kyns dósir og
pakkar voru í hillunum. Þetta
er ekki matur, hugsaði Pétur
Atlason þegar hann gekk
framhjá hillum með hreinsi-
efni og snyrtivörum. Matar-
lyktin var næstum horfin og
nú fann Pétur Atlason sömu
lyktina og var á baðinu um
morguninn. Hann flýtti sér til
baka. Framhjá hillum með
margs konar vörum. Matar-
lyktin nálgaðist aftur og
munnvatnið fór að renna fram
í munninn á honum á nýjan
leik.
En Pétur Atlason fann eng-
an mat. Hann fann bara lykt.
Hann fann alls konar lykt.
Hvert sem hann fór í búðinni
fann hann lykt og alls staðar
voru kassar og dósir. Og lykt-
in var mismunandi eftir því
hvers konar myndir voru á
kössunum og dósunum.
Það hlýtur að vera matur í
einhverju af þessum dósum,
hugsaði hann og nú var munn-
vatnið farið að renna út um
munnvikin á honum. Mamma
kemur stundum heim með
mat í dósum. Ég ætla að prófa
eitthvað af þessu, hugsaði
hann um leið og hann rak
andlitið upp að nokkrum
hillum.
Hann athugaði dósirnar
mjög vel. Allt í einu sá hann
dósir með mynd sem hann
þekkti. Mynd sem hann
þekkti mjög vel. Hann þekkti
hana svo vel að hann varð
hræddur. Hver borðar þetta?
Pétur Atlason hafði aldrei vit-
að að neinn borðaði þannig
mat. Hann gat ekki betur séð
en mynd af honum sjálfum
væri á dósunum. Nei, þetta
gat ekki verið. Hvar ætli mað-
urinn í búðinni fái þennan
mat? Kannski þegar við kom-
um inn og ætlum að kaupa í
matinn? hugsaði Pétur Atla-
son.
Ég verð að forða mér. Ég
vil ekki verða settur ofan í dós
til þess að einhver kaupi mig.
Ég vil ekki verða matur sem
einhver á að borða. Pétur
Atlason flýtti sér að finna úti-
dyrnar. Þegar þær opnuðust
hentist hann út og hljóp upp
götuna.
Hann hljóp sem fætur tog-
uðu. Heim, heim - ég verð að
komast heim, var það eina
sem hann gat hugsað. Hann
gleymdi að líta upp í gluggana
meðan hann þaut framhjá
hverju húshorninu eftir öðru
og vetrarvindurinn blés á móti
honum.
Þegar hann stansaði undir
glugganum með bláu glugga-
tjöldunum hennar mömmu
stóð einhver við útidyrnar.
Það var mamma. Hún var að
koma heim og hafði lagt tvo
poka frá sér til að opna. Það
var komið langt fram á dag.
Nú skyldi Pétur Atlason
hvernig í öllu lá. Nú skildi
hann af hverju var orðið
bjart. Nú skildi hann af
hverju enginn var í rúminu í
svefnherberginu. Hann hafði
„Hvert sem hann fór í búðinni fann hann lykt og alls staðar voru kassar og dósir. Og lyktin var mismunandi eftir
því hvers konar myndir voru á kössunum og dósunum...“
Þeúar Pétur Atlason fór
kanpa jólamaönn
- jólasaga fyrir yngri lesendnma
vaknað snemma í morgun. En
hann hafði sofnað aftur og
sofið yfir sig. Ekki vaknað
fyrr en um miðjan dag. Ef
hann hefði ekki sofnað aftur
þá hefði hann ekki dreymt svo
illa. Ekki dreymt allan þenn-
an hita og sól, sem stakkst í
augun á honum þegar hann
fór framhjá húshornunum. Þá
hefði hann heldur ekki orðið
svona svangur.
Mamma var farin að taka
upp úr innkaupapokunum.
Hún tók nokkra kaffipakka,
mjólkurfernur, kjöt og græn-
meti upp úr pokunum. Hún
tók líka nokkrar dósir upp úr
þeim. Með baunum og spag-
hetti og einnig öðruvísi dósir.
Pétur Atlason horfði á dósirn-
ar. Hann hrökk aftur á bak.
Þarna var dós með mynd af
honum - eða einhverjum sem
var alveg eins. Hvað ætlar
mamma að gera með hana?
Var hún farin að borða...?
Nei, það gat ekki verið.
Mamma, sem var alltaf svo
góð við hann. Nei, það gat
ekki verið. Og hjartað í Pétri
Atlasyni var farið að berjast
um.
Pétur minn, sagði manna.
Ertu ekki orðinn svangur? Þú
varst sofandi þegar við fórum
í morgun og hefur því ekki
fengið neitt í allan dag. Hann
hætti sér aðeins nær. Hægum
skrefum og steig svo létt niður
að enginn hefði getað heyrt
fótatakið. Hann gat treyst
mömmu. Hún myndi ekki
setja hann niður í dós og
borða hann. En hvað ætlaði
hún þá að borða? Hvað var í
þessari dós?
Hún náði í dósahnífinn og
opnaði dósina með myndinni,
sem var eins og af Pétri Atla-
syni. Og allt í einu fann hann
lykt. Hann fann lykt þegar
dósin opnaðist. Hann hafði
áður fundið þessa lykt. Hann
þekkti þessa lykt. Hann
þekkti hana úr draumnum í
morgun. Þetta var sama
lyktin.
Mamma hellti úr dósinni á
diskinn hans. Hann færði sig
nær. Skref fyrir skref. Lyktin
var svo góð og nú streymdi
munnvatnið fyrir alvöru út
um munnvikin á honum.
Hann lét fyrsta bitann upp í
sig. Þetta var gott. Þetta var
besti matur sem hann hafði
nokkru sinni fengið. Hann leit
á mömmu og lét annan bita
upp í sig. Hann gleymdi sér
við að borða. Þegar hann var
búinn af disknum mundi hann
fyrst eftir myndinni á dósinni.
Pétur Atlason hrökk við.
Myndin af mér, hugsaði hann.
Svo rann ljós upp fyrir
honum. Myndin þýðir auðvit-
að að þetta er matur fyrir mig
en ekki matur búinn til úr
mér.
Mamma kom til hans og
strauk honum. Ég keypti
þetta handa þér því jólin eru
að koma. Á jólunum eiga allir
að fá betra að borða. Pétur
Atlason fór inn í svefnher-
bergið og stökk upp í rúmið.
Hann lagðist niður í sængina.
Honum leið vel. Hann hugs-
aði um dósirnar sem voru
með mynd eins og af honum.
Hann hugsaði um þennan
góða mat. Ég vildi að jólin
væru alltaf að koma sagði Pét-
ur Atlason við sjálfan sig. Og
hann malaði um stund í sæng-
inni og hvarf svo inn í
draumalandið.