Dagur - 18.12.1992, Page 29
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - B 29
Bestubæjarböm vlð jólaundirbúning:
„Við viljum halda
í þetta gamla, góðau
J. Stefánsdóttir, leikskólastjóri
— segir Helga
Það leyndi sér ekki að jólin
voru í nánd er blaðamaður
Dags kom við á Leikskólanum
Bestabæ á Húsavík, fyrsta
föstudag í aðventu. Það var
komið þetta eftirvæntingarblik
í augu barnanna, enda var
sameiginlegum jólaföndurdegi
barna, foreldra og starfsfólks
að ljúka. Sum barnanna voru
búin að setja jólaföndurdótið
upp á hillu og farin að dunda
við raðmyndir eða leika sér af
krafti við húsbyggingar úr
dýnum.
Helga J. Stefánsdóttir, leik-
skólastjóri, sagði að 120 börn
væru á Bestabæ, ýmist í heils-
eða hálfsdags gæslu. Hún sagði
að hinn árlegi föndurdagur væri
ætlaður til að foreldrar gætu
komið með börnunum og tekið
þátt í starfi þeirra. „Foreldrar
hafa mætt mjög vel og meira að
segja hafa komið báðir foreldr-
arnir með sumum börnunum.
Dæmi eru um að afi, amma og
Helga J. Stefánsdóttir, leikskóla-
stjóri, telur aðventuna einn yndis-
legasta árstímann. Myndir: im
systkini komi þennan dag. Auð-
vitað er skólinn alltaf opinn fyrir
ættingja barnanna. Við reynum
að breyta eitthvað til frá ári til árs
varðandi föndrið, en þó er það
nokkuð hefðbundið. Við viljum
halda í þetta gamla, góða.
Það er alltaf ákveðin eftirvænt-
,ing við að gera skóinn sem setja á
út í glugga. Við erum mjög fast-
heldnar á það að engir alvöru-
jólasveinar birtist fyrir 12. des.
Jólasveinarnir koma á réttum
degi og þeir sem eru fyrr á ferð
eru ekki alvörujólasveinar, börn-
in vita að þeir eru plat. Verslun-
areigendur mættu taka þetta til
athugunar. Hefðir og siðir eru
dálítið að fara úr böndunum.“
- Hvaða fleiri fastir liðir eru
hefð á aðventu í Bestabæ?
„Börnin gera jólagjöf handa
foreldrum sínum. í ár var unnið
að gerð kertastjaka, við silki-
þrykk og saltþrykk. Börnin búa
sjálf til jólakortin og jólapappír-
inn. Við höldum hátíðlegan
laufabrauðsdag, skerum út fyrir
börnin með gömlu, góðu aðferð-
inni en notum ekki laufabrauðs-
hjól. Allir fá gott í skál, og við
erum með kertaljós og jólalög.
Við kappkostum að fara rólega
í jólaundirbúninginn og erum
ekki með þys og læti, það er nóg
af því í kring um okkur. Við
leggjum áherslu á rólegheit og
notalegheit.
Á jólaföstu höldum við kyrrð-
arstundir. Við erum með dagatal
og fjöllum um tilgang jólanna, að
það séu ekki jólasveinaheim-
sóknir heldur fæðing frelsarans
sem við fögnum á jólum. Þetta eru
daglegar samverustundir við
kertaljós, sungin eru jólalög og
sagðar sögur.
Við förum í kirkju á aðventu,
sr. Sigurður Guðmundsson tekur
á móti okkur í kirkjunni og verð-
ur með helgistund. Helgistundina
reynum við að hafa sem árvissan
atburð.
Litlu jólin hjá okkur eru 18.
des. Þá gerum við okkur daga-
mun í mat og drykk. Allt starfs-
fólkið kemur í jólamatinn, einnig
afleysingafólk og þeir sem ræsta
eftir lokun. Þar kemur jólasveinn
í heimsókn og tónlistarfólk. Bæði
hefur Sigurður Hallmarsson leik-
ið á hljóðfæri fyrir okkur og einn-
Þessar dömur voru búnar að fá nóg af jólaföndrinu þennan daginn og höfðu
dregið upp gömlu góðu raðmyndirnar sem alltaf standa fyrir sínu.
Það verður gaman þegar jólasveinarnir fara að koma, best að sitja prúð og
stillt og bíða.
Foreldrar og fóstrur unnu jólaföndur með börnunum, og fullorðna fólkið
skammtaði límið á gluggaskrautið.
Þessir krakkar voru búnir að vinna sinn skammt af jólaskrauti, og nú skyldi
byggja hús úr dýnum af óbeislaðri atorku.
ig nemendur úr Tónlistarskólan-
um.“
- Er leikskólastjórinn farinn
að hlakka til jólanna?
„Leikskólastjórinn hlakkar
ævinlega til jólanna, og það er
kannski helst sá tími sem hann
vildi vera í fríi til að geta dundað
heimavið. Þetta er sá tími sem
mér finnst einna yndislegastur á
árinu.“ IM
Við sendum okkar bestu
jók- og nýárskveðjur
til viðskiptavÍM okkar og landsmanm allra
Þökkum viöskiptin á árinu
J
Mjólkursamlag KEA