Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Side 4
4
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Fréttir_______________________________
Skoðanakönnun DV um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:
Mikil andstaða
við umsókn strax
- þorri krata vill hins vegar sækja um strax
Meirihluti kjósenda er andvígur
því aö íslendingar sæki strax um
aðild að Evrópusambandinu. Þetta
kom fram í skoðanakönnun sem DV
gerði á mánudag og þriðjudag. Af
þeim sem tóku afstöðu reyndust 71,6
prósent andvíg umsókn en fylgjandi
reyndust 28,4 prósent.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja og eins á milli landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðis. Spurt var:
„Ertu fylgjandi eða andvígur þvi að
Island sæki strax um aðild að Evr-
ópusambandinu?“
Sé tekið mið af svörum allra í úr-
takinu reyndust 22,2 prósent vera
fylgjandi aðildarumsókn strax en
55,8 prósent andvíg. í hópi aðspurðra
reyndust 19,3 prósent óákveðin og 2,7
prósent neituðu að gefa upp afstöðu
sína.
Séu niðurstöðumar bomar saman
við könnun sem DV framkvæmdi í
ágúst á síðasta ári kemur í ljós að
óákveðnum hefur fækkað nokkuð.
Þá reyndust 30 prósent aðspurðra
óákveðin, eða neituðu að gefa upp
afstöðu sína, samanborið við 22 pró-
sent núna. Á tímabilinu hefur stuðn-
ingsmönnum umsóknar íjöigað um
0,5 prósentustig og andstæðingunum
um 7,5 prósentustig.
Andstaðan mest
í Kvennalistanum
Sé afstaðan til þess að ísland sæki
strax um aðild að Evrópusamband-
inu greind eftir stuðningi kjósenda
við stjómmálaflokka kemur í ljós að
mikill meirihluti krata vill sækja um
aðild strax, eða 71,4 prósent. Andvíg
eru 17,9 prosent og 10,7 prósent eru
óákveöin eða svara ekki. Meðal
stuöningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins eru nokkuð skiptar skoðanir
varðandi tafarlausa aðildarumsókn.
Fylgjandi eru 29,8 prósent, andvíg
eru 50,3 prósent og 19,9 prósent em
óákveðin eða neita að gefa upp af-
stöðu sína.
Meðal stj órnarandstæðinga eru
andstæðingar tafarlausrar aðildar-
umsóknar í miklum meirihluta í öll-
um tilfellum. Mest er andstaðan í
Kvennalistanum, eða 83,3 prósent,
en minnst hjá stuðningsmönnum
Þjóðvaka, eða 61,3 prósent. í Alþýðu-
bandalaginu er andstaðan 78,8 pró-
sent og í Framsóknarflokknum 78,9
prósent.
Meðal þeirra sem em óákveðnir í
afstöðu til sjórnmálaflokka, eða gefa
ekki upp afstöðu sína til þeirra,
reyndust 18,4 prósent fylgjandi ESB-
umsókn strax en 50,6 prósent andvíg.
Þá má má geta þess að allir stuðn-
ingsmenn Péturs Bjarnasonar á
Vestjfórðum reyndust andvígir að-
ildarumsókn. Meðal stuðnings-
manna Eggerts Haukdals á Suður-
landi reyndist einn óákveðinn en
aörir andvígir.
í könnun DV kom fram að afstaðan
til tafarlausrar aðildarumsóknar að
ESB er nokkuð mismunandi eftir
kynferði og búsetu kjósenda. Meöal
karla sem tóku afstöðu reyndust 27,8
prósent fylgjandi umsókn en hjá
konum var hlutfalliö 29,2 prósent. Á
landsbyggðinni reyndust 22,6 pró-
sent fylgjandi umsókn en á höfuð-
borgarsvæðinu var hlutfallið 34,2
prósent. -kaa
Eigendur ms. Leifs Eiríkssonar ósáttir við Jakob og utanríkisráðuneytið:
Verra siðferði en
í bananalýðveldum
- segja eigendur skipsins sem ekki fá reikning greiddan
í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
starfsemi menningarfulltrúans í
London, Jakobs Frímanns Magnús-
sonar, kom fram að utanríkisráðu-
neytið neitar að greiöa reikning upp
á 2,4 mflljónir króna frá eigendum
skemmti- og farþegaskipsins Leifs
Eiríkssonar sem notað var við há-
tíðahöld í London á síðasta ári. Eig-
endur skipsins sætta sig ekki viö
þetta og íhuga að fara dómstólaleið-
ina til að fá sitt fram. Þeir segja að
ekki hafi veriö staðið við munnlegt
samkomulag.
Jakob Frímann Magnússon menn-
ingarfulltrúi flytur ávarp á einni af
þeim hátíðarsamkomum sem fram
fóru um borð i Leifi Eiríkssyni.
„Til að geta staðið við okkar hluta
samkomulagsins þurftum við að
leggja verulega hart að okkur. Allan
timann var treyst á það að munnlega
samkomulagið stæöist um að okkur
yrði greitt á einhvem hátt fyrir þessa
þjónustu. Þetta með oliuna var eitt-
hvað sem Jakob kom með síðar eins
og skrattinn úr sauðarleggnum. Þá
sagðist hann hafa hringt í einn okkar
og væri með staðfestar upptökur af
því á segulbandsspólum að hann
hefði játað því að aldrei hefði staðið
til að við fengjum meira en fyrir ol-
íunni heim. Það eru einhver 200-300
þúsund krónur og svoleiðis langt út
úr korti að það hefði einhvem tím-
ann komið tfl greina. Það samsvarar
kostnaði við skipið á dag. Við höfum
aldrei fengið uppgjör af neinu tagi frá
Jakobi um það hvaö hann telur sig
hafa lagt út fyrir okkar hönd,“ sagði
Sigurður R. Þórðarson, einn eigenda
skipsins, í samtali við DV.
Sigurður sagði reikning upp á 2,4
milljónir vera mjög eðhlegan. Þeir
hefðu verið með skipið í London 1
þrjár vikur með 4-5 mönnum í fullu
starfi um borð sem hefðu tekið þátt
í aö undirbúa hátíðahöldin. í skipinu
var rekin útvarpsstöð auk þess sem
tónleikar og tískusýningar vom
haldnar.
Eigendur skipsins reyndu aö ná í
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráöherra en án árangurs. Þeir náðu
Ms. Leifur Eiriksson við bryggju i London en skipinu var siglt um ána Tha-
mes með ýmsum uppákomum um borð í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Eigendur skipsins fá ekki greiddan reikning sem sendur var utanríkis-
ráðuneytinu.
sambandi við aðstoðarmann hans,
Þröst Ólafsson, sem vísaöi allri
ábyrgð á hendur Jakohi.
„Lögfræðingur okkar hefur skrifað
ráöuneytinu bréf en því hefur ekki
verið svarað. Þá er næst að fara dóm-
stólaleiöina en okkar mistök eru að
hafa treyst því að orð mannanna
stæðust. Þetta er siðferöi í utanríkis-
þjónustu sem er andlit okkar út á
við. Ég held að þetta sé einsdæmi og
myndi ekki koma fyrir í bananalýð-
veldum," sagði Sigurður.
13 V
ísland sæki strax
um ESB-aðild
— eftir stuöningi viö
stjórnmálaflokka
B Fylgjandl
□ Andvíglr
9 Óákv/svara ekkl
80%
75%
62%
81%
Óákv./svara ekki
Skoflanakönnun
DV
Kennarar:
Róleg verk-
fallsvarsla
„Þaö hafa ekki átt sér staö nein
alvarleg verkfallsbrot en ýmis
jaðartílfelli haía komið upp sem
við höfum skoðað. Þannig var
töluvert afhent af vinnu- og
kennslubókum í grunnskólunum
í dag. Það er verk kennara og
hefði átt að gerast á fimmtudag-
inn. Þá fylgjumst við afar náiö
meö námskeiðum íþróttafélag-
anna en viö teljum að þau séu í
sumum tilfellum að setja upp
skóla. Það á t.d. viö um námskeið
í íþróttahúsum Fram og Breiða-
biiks og hjá íþróttafélögimum i
Njarövík og Keflavík,“ sagði
Gunnlaugur Ástgeirsson, for-
m aöur verkfallstjórnar kennara-
félaganna, sehmipartinn í gær.
Strax í gærmorgun fóru sveitir
verkfallsvarða á vegum kennara-
félaganna í skóla tfl að kanna
hvort verkfallsbrot væru í gangj.
Aimennt var íriður um verkfalliö
utan hvað ástæða hefur þótt til
að fylgjast meö námskeiðum
íþróttafélaganna.
Gunnlaugur segjr að ef verk-
fállið dragist á Ianginn verði tekiö
fastar á fyrmefndum tflfellum.
Dagurinn í gær hafl einkennst af
þvi að vera fyrsti dagur verkfalls
og föstudagur þar að auki og því
hafi ekki reynt á verkfallsveröi.