Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 7
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
7
Fréttir
Sjötugur karlmaður dæmdur 1 fangelsi í annað skiptið fyrir kynferðisbrot:
Areitti ungan dreng kyn
f erðislega í f imm skipti
- hefur orðið uppvís að kynferðissamböndum við drengi frá árinu 1968
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Roy Ófeig Breiðfjörð, 70 ára, í
10 mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
lega áreitni gagnvart 10 ára dreng í
fimm skipti seinnihluta síðastliðins
sumars. Maðurinn hefur áður verið
dæmdur fyrir kynferðisbrot gagn-
vart börnum og í dóminum kemur
fram að maðurinn hefur orðið upp-
vís að „kynferðissamböndum við
unga pilta“ frá árinu 1968.
Móður drengsins fór að gruna eitt-
hvað misjafnt þegar barnið greindi
henni frá því að tiltekinn starfsmað-
ur bensínstöðvar „væri ógeðslegur"
- hann væri alltaf aö halda utan um
sig og kyssa. Síöan greindi hann frá
því að maðurinn hefði tekið sig upp
og sýnt sér aðra og meiri kynferðis-
lega áreitni.
Eftir að málið var kært viður-
kenndi sakborningurinn að hafa
kynnst drengnum þegar hann kom á
vinnustað hans eins og aðrir krakkar
þegar þeir komu á bensínstöðina til
þess að skipta um dekk á hjólum sín-
um. Maðurinn sagði að áreitni sín
gagnvart umdræddum dreng hefði
farið fram í skúr við bensínstöðina.
Sakborningurinn kvaðst, þrátt fyrir
að hann hefði fengið dóm fyrir annað
kynferðisbrot árið 1987, ekki hafa
gert sér grein fyrir því hvaða afleið-
ingar háttsemi hans gæti haft í för
með sér gagnvart drengnum.
Eftir þessa atburði átti drengurinn
við ýmsa líkamlega sem andlega erf-
iðleika að stríða sem dómurinn taldi
ljóst að hefðu orsakast af brotum
sakbomingsins.
í dóminum kemur fram að tilhneig-
ing mannsins til að stofna til kyn-
feröissambanda sé gagnvart ókyn-
þroska drengjum. í niðurstöðu geð-
læknis kemur fram að kynhneigð
mannsins sé almennt oft mjög erfið
viðfangs og ekki læknanleg í eigin-
legum skilningi. Áfengisneysla, fé-
lagsleg staða, geðræn líðan, persónu-
leiki og greindarfar skipti þar máli.
Geðlæknirinn taldi ekki að refsing
kæmi að gagni. Hins vegar taldi hann
nauðsynlegt að maðurinn sækti
reglubundna meðferð hjá geðlækni.
Geðlæknirinn taldi að til greina
kæmi lyfjameðferð sem gæti dregið
úr kynhvöt enda væru slík lyf skrá-
sett hérlendis og hefðu verið notuð í
nágrannalöndunum hjá einstakling-
Chrysler Neon sem framleiðendur
segja vera timamótabifreið.
Nýir bflar
sýndir hjá Jöfri
Nýi fólksbílhnn Chrysler Neon,
nýr Dodge Ram 300 hestafla pahbíll,
Jeep Cherokee 2,5 turbo diesel og
1995 árgerðirnar af Jeep Cherokee
og Grand Cherokee verða sýndar á
Chrysler-hátíð í dag, laugardag, og á
morgun frá klukkan 12-17 hjá Jöfri
á Nýbýlavegi 2 í Kópavogi.
Jöfur er nú tengdur við Internet
tölvu- og upplýsingakerfi þar sem
hægt er að finna myndir og upplýs-
ingar um bíla. Um helgina verður
boðið upp á „léttar veitingar" og
reynsluakstur.
um með afbrigðilega kynhvöt - slík skráð hér. Geðlæknirinn lagði jafn- legar læknisfræðilegar rannsóknir Guðjón St. Marteinsson kvað upp
ábendingvirðisthins vegar ekki vera framt til að nauðsynlegt væri aö ítar- færu fram á heilsufari mannsins. dóminn. -Ott
Vií erum nú að taka upp nýja sendingu af þessum vönduðu 28" ajómra^atskjum,
en ath. aÓ nssta sending uerÓur EKKI á jafn frábæru irerli!
$i
$8.900,
stgr.
TeleTech CTV-2857 NTX 28" sjónvarpstœki með
Nicam Digital Stereo, Philips-myndlampa, þráðlausri
fjarstýringu, textavarpi, 40 stöðva minni, sjálfvirkri
stöðvaleit, aðgerðastýringum á skjá, tímarofa, Scart-
tengi og mörgu fleira. Ath. Framleidd í Evrópu!
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
'vlsT | RAÐGREIÐSLUR
| TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA \
MUnÍ -"© tLAt : Tl L_ ALLT AHÐ 30 MÁNAÐA 4
Hraðþjónusta víð landsbyggðina:
ent númer:
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar samdœgurs)
msasvegi 11
Sími: 886 886 Fax: 886 888