Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 19ð5
Dagur í lífi Karls Ágústs Úlfssonar, leikstjóra West Side Story:
Ógnvekj andi skrímsli
vaknar til lífsins
Karl Ágúst Úlfsson þýddi West Side Story og er einnig leikstjóri. Þetta er stærsta verkefni hans á sviði ieikstjórnar
en þó ekki fyrsti söngleikurinn því hann leikstýrði Maraþondansinum hjá Leikfélagi Reykjavíkur. DV-mynd GVA
Ég vaknaði klukkan sjö en átta
mánaða dóttir mín, Brynhildur, sér
um að ég sofi ekki lengur en það.
Við erum vön að eyða morgninum
saman og þaö er ágætt þegar maður
er í stífri vinnutöm að eiga svolitla
stund með þeirri stuttu. Hún situr
hjá mér meðan ég þvæ mér og raka.
Síðan gef ég henni hafragraut og fæ
mér Cheerios. Elsta dóttir mín, Berg-
þóra, ellefu ára, vaknar á svipuðum
tíma enda á hún að fara í skólann
upp úr átta. Eiginkonan vinnur
stundum fram á nótt og fær þá að
sofa aðeins lengur.
Ég tek leið tvö um hálftíu en þarf
að vera kominn í Þjóðleikhúsið
klukkan tíu, þá hefst æfingin á West
Side Story. Við emm þessa dagana
að fá inn búninga og ljós og hljóm-
sveitin er byrjuð að æfa með okkur.
Þetta er sá tímapunktur sem er bæði
mjög spennandi en ógnvekjandi þeg-
ar maður sér ekki alveg hvað ætlar
að verða úr því sem maöur er að
gera. Þetta er í rauninni eins og
skrímsli sem allt í einu tekur á sig
ógnvekjandi raunveruiegt form. Ætli
þetta verði ekki svolítið kaótískt
ástand þegar allir þættir eru að
reyna að flétta sig saman. Frumsýn-
ingin verður 3. mars og við æfum
saman sex tíma á dag þessa dagana.
Engin matarlyst
Þetta er stór og mikill hópur, yfir
þrjátíu manns á sviöinu og tuttugu
og þriggja manna hljómsveit. Maður
þarf að sjá til þess að tíminn nýtist
sem best. Það kom reyndar ekkert
upp á sem er í frásögur færandi en
við vorum að skoða ákveðnar senur
og leiðrétta hluti sem höfðu farið
úrskeiðis eða miður á síðustu æf-
ingu. Það er ekki bara ég einn sem
kem með athugasemdir því fólkið er
mjög duglegt að láta vita ef eitthvað
hefur ekki heppnast sem skyidi og
þá skoðum við það líka. Svona æf-
ingaverkefni gengur út á að skoða
alla möguleika og reyna aö sjá á
hversu fjölbreytilegan hátt er hægt
að leysa hlutina.
Við tökum eitt matarhlé á dag en
venjuiega fæ ég mér ekkert. Ég get
eiginlega ekkert borðaö þessa daga
meðan ég hef svona mikið að gera í
leikhúsinu. Ég hef litla lyst og mér
finnst ég verða þungur af því að
borða. Ég þarf nauðsynlega aö halda
fullri athygli og einbeitingu. Fólk
verður værukært ef það raðar miklu
í sig. Ef ég fæ mér eitthvað hef ég
það því í léttari kantinum.
Æfingu lauk klukkan fjögur þenn-
an dag. Við æfum reyndar á fleiri en
einum stað, ég er með leikurunum
en á meðan er Kenn Oldfield dans-
höfundur að æfa dansa og síðan er
æfður söngur á þriðja staðnum, und-
ir stjórn Jóhanns G. Jóhannssonar
tónlistarstjóra sem einnig stjórnar
hljómsveitinni.
Pistill fyrir Dagsljós
Ég fór beint heim og þar sem það
var sjónvarpsdagur hjá mér, ég
þurfti að flytja pistil í Dagsljósi, þá
varð ég að gefa mér tíma til að ljúka
þeim pistli áður en ég færi upp í Sjón-
varp klukkan sex. Eg set oft ýmsar
hugmyndir á bréfsnepla en það fer
eftir hvað ég skipti oft um buxur
hversu vel gengur að finna þessa
snepla.
Ég gat síðan sest við tölvuna og
byrjað að skrifa en þar sem hún er
í borðstofunni var ekki mikill friður.
Það var mjög líflegt í kringum mig
þegar ég reyndi að pikka þetta inn á
tölvuna. Þennan dag var miðdóttirin,
Valgerður, sem er 8 ára, að fara í
afmæli og lá mikið á að pakka inn
afmælisgjöf og klæða sig. Eiginkonan
þurfti að fara á fund og yngsta barn-
iö er frekar órólegt þegar líöur á
daginn þannig að það var líf og fjör.
Það vildi mér þó til happs að tengda-
móðir mín var hjá okkur og gat
bjargað málum. Ég gat því hlaupið í
tölvima milli þess sem ég keyrði Val-
gerði í afmælið og síðan Bergþóru á
körfuboltaæfingu. Það stóðst á end-
um að ég var aö prenta greinina mína
út klukkan fimm mínútur í sex en á
að vera mættur klukkan sex. Ég náði
þessu.
Kjötbollur hjá tengdó
Síðan lá leiðin heim aftur. Ég varð
áþreifanlega var við hversu mikils
virði það er að eiga góða tengdamóð-
ur því ég þurfti ekki að koma nálægt
matseldinni. Hún bjó til þessar ein-
staklega góðu kjötbollur. Það luku
allir upp einum rómi um að þetta
væri nú einhver mesti lúxus sem við
þekktum. Við reynum alla jafna að
skipta með okkur verkum. Konan
mín var komin heim þannig að við
gátum öll borðað saman.
Eftir kvöldmat horfðum við á Dags-
ljós með öðru auganu og síðan á frétt-
imar með báðum. Eftir þaö var viku-
legur fjölskyldufundur hjá okkur.
Þar lítum við yfir vikuna sem var
að líða. Við reynum að meta hvort
hver og einn hafl ekki lagt sitt af
mörkum til heimilisins. Þetta gekk
ágætlega þó alltaf verði einhverjar
undantekningar og stundum eitt-
hvað sem gleymist.
Þegar fundinum lauk upp úr tíu
fóru stelpurnar að sofa, kannski
heldur seinna en venjulega, en við
ákváðum að horfa á kvikmynd á
myndbandi. Þar sem dagurinn hafði
verið erfiður slökktum við á tækinu
áður en henni lauk og fórum að sofa.
Lok myndarinnar veröa að bíða betri
tíma.
Finnur þú fimm breytingar? 297
Af hverju varstu að giftast mér úr því að þér finnst maturinn
minn ekki góður?
Nafn:
Heimili:.....................
Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og
fimmtu getraun reyndust vera:
1. Jóhanna S. Hannesd., 2. Ólafur Högni Ólafsson,
Stóru-Sar.dvík 5, Háseylu 38,
801 Selfoss. 260 Njarðvlk.
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími að verðmæti kr.
4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð-
laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur úr
bókaflokknum Bróðir Cadfael aö verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út
af Frjálsri fjölmiölun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausnimú:
Finnur þú f5mm breytingar? 297
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík