Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Sviðsljós
Prinsessan sat meö börnunum á þessu barnaheimili i hadegismat, ræddi
við þau og sýndi þeim mikla hlýju.
Föstudaffur
17. februar
Jóhanna Pálsdóttir, Kópavogsbraut 85, 200 Kóp.
(PHILIPS gufustraujám)
Anna Kristín Laite, Yrsufelli 3,111R.
(ZODIAC takkasími)
Benjamín Þorvaldsson, Setbergi 13, 815 Þorlákshöfn
(PANASONIC útvarpsvekjaraklukka)
Oddur Hannesson, Lágafelli 2, 701 Egilsstaðir
(FUJI myndavél)
Már Óskar Óskarsson, Kóngsbakka 5,109 R.
(Úttekt í Ó.M. búðinni)
Vinningar verda
sendir til vinningshafa
AUGLÝSING AR
- sfci/a árangrí!
GJAFAHANDBÓK
r//////////////////////////////
FERMINGAR-
GJAFAHANDBOK
Miðvikudaginn 22. mars mun hin sívinsæla
FERMINGARGJAFAHANDBÓK fylgja DV.
Hún er hugsuð sem handbók fyrir lesendur sem eru
í leit að fermingargjöfum. Þetta finnst mörgum þægi-
legt nú, á dögum tímaleysis, og af reynslunni þekkj-
um við að handbækur DV hafa verið afar vinsælar.
Skilafrestur auglýsinga er til 13. mars en með tilliti
til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á
að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdóttur eða
Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 563 27 00 svo að unnt reynist að veita öllum
sem besta þjónustu.
ATH.I Bréfasími okkar er 563 27 27.
Breska vikublaðið Hello eyðir átj-
án síðum undir Díönu prinsessu þar
sem hún er á ferðalagi í Japan. Það
er ekki óvanalegt að Hello birti
myndir af prinsessunni - þær eru
ávallt nokkrar í hveiju blaði. Ástæð-
an getur verið sú að Díana á heiður-
inn að því að Hello hóf útgáfu í Bret-
landi. Blaöið er spænskt og hafði
verið gefið út á spænsku um áratuga-
skeið. Díana var svo hrifm af þessu
spænska tímariti að hún spuröi eitt
sinn af hveiju blaðið kæmi ekki út á
ensku. Útgefendur brugðust skjótt
við og sjá vart eftir því enda hefur
blaðið náð ótrúlegri markaðssetn-
ingu um alla Evrópu..
Það hefur reyndar verið hljótt um
Díönu prinsessu undanfarna mánuði
að hennar ósk en eftir áramótin fór
hún að sjást aftur á opinberum vett-
vangi, fegurri en nokkru sinni, segja
margir. Það er greinilegt að Díana
hefur tekið ákvörðun um að láta ekki
hjónabandserfiðleika og sögur af
framhjáhaldi Karls prins setja mark
sitt á sig. Þvert á móti geislar af henni
þessa dagana og það fengu aödáend-
ur hennar í Japan að sjá.
Lærðijapönsku.
Díana undirbjó vel þessa fjögurra
daga heimsókn til Japans. Hún sett-
ist á skólabekk til aö læra japönsku
og það hefur væntanlega gengið vel
því hún heillaði gestgjafana þegar
hún talaði við þá á þeirra eigin
tungumáli. Á leiðinni til Tokyo
horfði Díana ekki á kvikmyndir eins
og margir heldur hlustaði á japönsku
í heymartólinu.
Sagt er að Díana hafi getaðTialdið
upp á tvöfaldan sigur þegar hún hélt
heim á leið aftur til Englands. Þessi
ferð hennar til Japans er áreiðanlega
aðeins byijunin á því sem koma skal.
Enginn er betri en Díana til að mýkja
sambönd milli landa.
Auk þess sem Díana kom upp vin-
áttu á milli Buckinghamhallar og
keisaranna í Japan var ferðin ekki
síður til að staðfesta vinsældir prins-
essunar. Díana hefur tvisvar áður
heimsótt Japan, árið 1986 og 1990, og
stóðu Japanar þá í löngum röðum á
götum stórborgarinnar til að sjá hina
fogru prinsessu. Hins vegar hefur
margt gerst síðan þá, skilnaöur Dí-
önu og Karls og ýmsar sögusagnir
um líferni þeirra sem hafa hneykslað
hina austrænu þjóð.
Annasamir dagar
En Díana hafði varla stigið út úr
flugvélinni á flugvellinum í Tokyo
þegar hún hafði brætt hjörtu þessar-
ar þjóðar. Hún gerði það á einu
augnabliki með því að heilsa þeim á
japönsku og segja þeim hversu vænt
henni þætti um að vera komin aftur
til Japans. Hún sagðist hafa hugsað
mikið til þessarar þjóðar vegna
harmleiksins í Kobe þegar jarð-
skjálftinn reið þar yfir.
Díana hafði í nógu að snúast þá
fjóra daga sem hún var í Japan. Hún
var í stanslausum heimsóknum, á
sjúkrahús, elliheimili, barnaheimili,
skoðaði grafreiti breskra hermanna
sem féllu í stríðinu og heimsótti Aki-
hito keisara og Michiko keisaraynju
sem tók á móti prinsessunni klædd
kimono. Þá hitti Dfana einnig krón-
prinsinn, Narulúto, og krónprinsess-
una, Masako, sem setti framabraut-
ina á hilluna þegar hún giftist krón-
prinsinum árið 1993. Masako hafði
verið í námi í Harvard og í Oxford.
Krónprinsinn og eiginkona hans
þykja ákaflega nútímaleg.
Þegar Díana sneri heim á leið á ný
virtist hún afar ánægð með ferðina
og víst er að hún á eftir aö vekja at-
hygh hvar sem hún kemur þótt hún
verði aldrei eiginkona Karls ríkis-
arfa.
Díana var í bleikri dragt meö hvítar perlur um hálsinn
þegar hún heimsótti barnaspítala í Tokyo. Börnin dáð-
ust aö Ijósum háralitnum og bláu augunum og þessi
ellefu mánaða stúlka hélt aö þarna hlyti sjálf Ösku-
buska aö vera komin.
Krónprinsinn, Naruhito, og eiginkona hans, Masako,
þykja mjög nútímaleg. Masako var i blárri og svartri
dragt alveg eins og Diana.
Anthony Quinn, sem verður átt-
ræður á þessu ári, er alveg heillað-
ur af dóttur sinni, Patriciu, sem
hann eignaðist fyrir einu og hálfu
ári fram hjá konu sinni. Nýlega var
kvikmyndahetjan í London ásamt
þeirri stuttu og móður hennar,
Kathy Bevin.
Anthony Quinn, Kathy Bevin og dóttir þeirra, Patricia.
Með eiginkonunni, Iolöndu, á
Anthony þijá uppkomna syni.
Þaö eru miklir kærleikar milli Ant-
honys og litlu dótturinnar.
Heillaður af dótturinni