Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 56
FRÉTTAS. KOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER OPIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
Kt 6-8 LAUGARbAGS- OG MANÖDAGSMORGNA
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995.
Dagsbrún boðar verkfall:
Neyðar-
úrræði
- segir Guðmundur J.
„Enda þótt segja megi aö nokkuð
hafi mjakast í sérkjaraviöræðunum
í dag er það bara ekki nóg. Þetta er
enginn gangur. Þess vegna höldum
við þennan stjórnar- og trúnaðar-
mannaráðsfund til þess að boða
verkfall. Það er fyrsta mál á dagskrá
fundarins," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dagsbrún-
ar, þegar hann kom af fundi í Karp-
húsinu síðdegis í gær á leið á Dags-
brúnarfund. Dagsbrúnarmenn sam-
þykktu á fundi sínum laust fyrir
kvöldmat að boöa til verkfalls 28. fe-
brúar.
Guðmundur sagði að menn væru
að brenna inni á tíma varðandi þau
atriöi sem að ríkisstjórninni snúa í
þessum kjarasamningum.
„í fyrsta lagi þarf einhvern tíma til
að ræða málið við ráðherrana og síð-
an þurfa einhver atriði að fara fyrir
Alþingi. Menn mega ekki gleyma því
að það eru ekki eftir nema 5 dagar
af þingstörfum. Þess vegna verðum
við að knýja á um að fá hreyfingu á
samningaviðræðurnar og það er síð-
asta hálmstráið að boða til verkfalls.
Þaö er neyðarúrræðið," sagði Guð-
mundur J.
Hin Flóabandalagsfélögin, Hlíf í
Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur, boðuðu til
fundar í stjórn og trúnaðarmannar-
áði í gærkveldi. Þau ætluðu líka að
fá heimild til verkfallsboðunar.
Kennaraverkfallið:
Fundi frestað
- takmörkuð trú á samningum
„Ég hef mjög takmarkaða trú á að
samningar tákist um helgina. Það
þarf mikið að koma til. Stóru máhn
eru enn í sama farvegi og áöur, það
er grunnkaupshækkanir og kennslu-
*+ skyldan.Fólkættiþvíaðverahóflega
bjartsýnt,“ sagði Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir, varaformaður Kennarasam-
bandsins, við DV seinnipartinn í gær.
Fuhtrúar kennarafélaganna og
samninganefndar ríkisins hittust að-
eins stuttlega klukkan hálffimm í
gær en síðan var fundi frestað til
klukkan tíu í dag. „Við sitjum hér
og reiknum og reiknum, vinnum
okkar heimavitinu," sagði Eríkur
Jónsson, formaður Kennarasam-
bandsins.
Kennarar kynntu í fyrrakvöld hug-
myndir að röðunarkerfi í launa-
flokka sem nálgast eiga hugmyndir
samninganefndar ríkisins. Fram að
sáttafundinum í gær var unnið að
. þessuröðunarkerfiísmærrihópum.
LOKI
Nú loka ég fyrir Internetið
hjáfrúnni!
Bíl stolið fyrir hálfri annarri viku:
Eigandinn f innur
búta úr bflnum
hérogþar
- lögreglan segir þetta nýja aðferð bílþjófa
„Ég hef verið að finna búta úr
bílnum hér og þar eftir ábendingar
frá almenningi. Þetta eru hlutar af
boddhnu sem hafa verið að finnast
en það hefur ekki sést tangur né
tetur af undirvagninum, véhnni og
gírkassanum," segir Þorbjörn Pét-
ursson, fyrrum jeppaeigandi.
Jeppa Þorbjörns, GMC Jimmy,
var stolið fyrir utan heimhi hans í
Hafnarfirði aðfaranótt 7. febrúar
sl. og hefur verið auglýst eftir bíln-
um í fjölmiölum í kjölfarið. Nýlega
fékk Þorbjörn ábendingar frá al-
menningi um hvar hluta úr bílnum
væri að finna og í kjölfarið hefur
hann verið að finna þá víðsvegar í
nágrenni Hafnarfjarðar, meöal
annars á gömlu ruslahaugunum í
Hafnarfirði og í Kapelluhrauni.
Að sögn lögreglu er hér um að
ræða aöferð bílþjófa sem virðist
vera ný af nálinni. Hefur bíllinn
hreinlega verið tættur í sundur,
logsoöinn og skorinn, og ruslinu
ekið í sendi- eða pallbíl þar sem það
er að finna nú. Greinilegt sé að
þarna hafi verið á ferð einhver sem
er að gera upp sams konar bíl.
Þorbjörn var sjálfur að gera upp
jeppann áður en honum var stolið
og hefur eytt talsverðu af frítíma
sínum í það. Nú eyðir hann hins
vegar frítíma sínum í að leita bíl-
þjófanna.
-PP
Þorbjörn Pétursson stendur hér við parta úr bíl sínum. Hlutar af boddíinu hafa verið að finnast en það hefur
ekki sést tangur né tetur af undirvagninum, vélinni og gírkassanum DV-mynd Brynjar Gauti
Veðriö á sunnudag
ogmánudag:
mánudag
Á sunnudag og mánudag verð-
ur norðaustlæg átt á landinu með
slyddu við austurströndina, élj-
um norðanlands en léttir heldur
th suðvestanlands. Hiti verður
um og yfir frostmarki austast á
landinu, annars 0-5 stiga frost en
kólnandi á mánudag.
Veðrið í dag er á bls. 61
Klámá
Interneti
Háskólans
Upp hefur komist um meinta mis-
notkun á Internet-kerfi Háskóla ís-
lands. Námsmaður er grunaður um
að hafa sett klámmyndir inn á kerf-
ið. Eftir stjórnarfund hjá Reikni-
stofnun Háskólans í gærmorgun var
lokað fyrir aðgang nemandans að
kerfmu og myndirnar teknar út.
Samkvæmt heimildum DV veröur
málið tekið fyrir í háskólaráði innan
tíðar.
Miklar umræður voru í gær um
þessa meintu misnotkun á kerfinu.
Grunur leikur á að myndirnar hafi
verið settar inn á kerfið í heimildar-
leysi í nafni piltsins af einhverjum
utanaðkomandi aðila, það er að segja
að einhver hafi stolið aðgangi að
kerfinu.
í framhaldi af þessu máli er veriö
að vinna að notkunarreglum fyrir
kerfið á vegum Reiknistofnunar Há-
skólans. Reynt var að ná sambandi
við Douglas A. Brotchie, forstöðu-
manns Reiknistofnunarinnar, og
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor
en án árangurs.
Frumorsök Lindu-
málsins upplýst
Fertugur karlmaður hefur viður-
kennt að hafa ekið á bíl í eigu starfs-
manns Baðhússins sem Linda Pét-
ursdóttir fegurðardrottning rekur.
Eins og fram kom í DV var unn-
usti Lindu, Les, handtekinn í kjölfar-
ið grunaður um að hafa ekið bíl
móður Lindu á bh starfsmannsins.
Þeir höfðu deilt fyrr um kvöldið. Var
Les kallaöur fyrir hjá lögreglu í kjölf-
ariö og samkvæmt lögregluskýrslum
sem birtust opinberlega kom fram
að Linda hafi verið handtekinn þar
sem hún mótmælti handtökunni.
Nú hefur sem sagt veriö upplýstur
sá þáttur sem var orsök þess sem á
eftir kom. Lögreglan hefur frá því í
nóvember fylgst meö bh svipuðum
bíl móður Lindu þar sem rökstuddur
grunur lék á að honum hefði verið
ekið á bíl starfsmannsins. Vitað var
að maðurinn, sem viðurkennt hefur
verknaðinn, hafði aðgang að honum
og lét lögreglan th skarar skríða í
fyrrakvöld þegar hann var á bílnum
við annan mann. Þeir voru báðir
hafðir í haldi yfir nótt og viður-
kenndi annar þeirra að hafa ekið á
umræddan bíl. Hann gat enga skýr-
ingu gefið á tildrögum óhappsins en
sagði skemmdir hafa veriö það smá-
væghegar að hann ætlaði að afgreiöa
það daginn eftir en gleymt því.
Mennirnir hafa báðir margoft kom-
iðviðsögulögreglu. -pp
TVÖFALDUR1. VINMNGUR