Þjóðviljinn - 24.12.1973, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 24.12.1973, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablað 1973 4. I skrælþurrum jarövegi hjartans vaxa kaktusrætur. I rúmar tuttugu aldir hef ég óskað að eignast jasminu. Nú ilmar hár mitt af jasmínu. I rödd mína er kominn hreimur sem væri hann af ilmi jasmínunnar. Fötin mín hafa hinn sama ilm. Þessi sæti ilmur er orðinn hluti af sjálfum mér. Ég horfi hryggur á kaktusinn. Hann veit að hann er ekki illur aðeins hræddur. Hvernig liðu þær, allar þessar aldir? Ég mun lifa jafnmargar enn, hlusta á ræturnar spretta í skrælþurrum jarðvegi hjarta míns. 5 Milli mín og sólarinnar er ekkert bil nema timinn. Ég fer á fætur, hátta. Ég er til, samt er ég ekki til. Aðrir sjá mig sjálfan mig get ég ekki séð. 6 Þegar tíminn hefur numið staðar fyllist klefinn minn af mánuðum, mánuðum, timum, dögum, sekúndum, afmældum sekúndum. Einu spori fyrir framan óskapnaðinn er annar óskapnaður. Einu spori fyrir aftan óskapnaðinn er annar óskapnaður. Sjálfur er ég til ofurlitið framar, ofurlitið aftar. Ég lifi í óskapnaðinum. Ég er ekki til. 7 Klefarnir anda. Klefarnir fyrir ofan mig og klefarnir fyrir neðan mig. Regnið sameinar okkur. Sólin blygðast sín fyrir að láta sjá sig. Nikos. Jorgos, það er blóm sem heldur í mér lífinu. 9. Á jörðu niðri er langt bil milli manns og manns. O lögmál öllum æðra! Langt á milli lagastafs og tómleiks. Þegar Lagastafur setur upp hjálm sinn reykir hann síusígarettur. Þegar hann er kominn í silkináttföt reykir hann ekki. Þá rýkur af þorpum skógum, risökrum. AAæðurnar reykja ekki, en hermennirnir reykja áður en þeir fara að sofa að endaðri stórorustu og eiga að vakna til nýrrar á morgun. Þeir sofa djúpum svef ni í allt að því tvær aldir. Alltaf reyki ég áður en ég á að fara að deyja. Sterkar sígarettur frá Lamia, ilmandi sígarettur frá Xanþi. Ljúfur ilmur rétt áður en öllu er lokið. Ævilokunum fylgir Ijúfur ilmur af ilmríkum sígarettum frá Xanþi sterkum sígarettum frá Lamia. 11. Egeahaf rís upp og starir á mig. Ert það þú? spyr það mig. Já, svara ég, það er ég, og annar maður með mér. Nei, svarar það. Þú þekkir hann ekki og samt er þessi maður þú sjálfur. Egeahafið lagðist útaf aftur, sólin hóstaði ég varð einn eftir, aleinn. 13. Segðu tímanum að flýta sér, dreptu tímann, timinn er réttlaus. Ég ætla að haf a líkið af honum til sýnis í Aiolou. Tíminn er seldur fyrir slikk Síðan sigur á ógæfuhlið jafnt og þétt. 21. mai er hringt til beodor- akis og hann látinn vita að valda- taka júntunnar sé nú fram komin. Klukkan aö ganga sex sama dag kemur yfirlýsing um þetta i griska útvarpinu. Andspyrnu- hreyfingin gerir án tafar þær ráð- stafanir sem þykja hæfa. En allt kemur fyrir ekki. Vopnavald fá- einna sigrar andspyrnu fjöldans. Með grimmd lemja þeir niður aila mótspyrnu. Það kemur seinna i ljós að það er fréttastjóri hersins Georgios Papadopoulos og hans nótar, háttsettir menn i hernum, sem aö þessu standa, en ekki herforingjar konungsins. Þeir ætluðu sér ekki að bregöa neitt við fyrr en tveimur dögum seinna. Allt hið fagra og góða sem fasismi er þekktur að, blómgast nú. Bókabönn, misþyrmingar og ritskoðun. Tónlist Þeodorakis harðlega bönnuö. Kona nokkur, Aþanassia Panagopoulou, er færð I fangelsi fyrir að hafa óhlýönast þessu boði, lagt plötu á plötuspil- arann og skrúfað upp svo heyröist langt út á götu. Mikis undirbýr flótta, en verður of seinn, felur sig i pianóinu sinu, finnst þar, er færður i fangelsi i klefa hr. 4. Þar yrkir hann kvæða- flokkinn Sólin og timinn, eða Um sól og tima. Framhalaiö er alkunnugt. á flóamarkaði í AAonastirakis. Kaupið tímanri með afslættif Hann er alls ekki farinn að úldna, við veiddum hann í gær! I gær, í gær, i gær! Sannast að segja hefur það komið á daginn, að f rá því i gær og þangað til núna liggur ekki mikið eftir okkur. 14. Ot úr þessum hring kemstu aldrei. Þú ert lokaður inni. Og þar verður þú að dúsa, þú, sól og tími. Braut þin markast þegar fjöðrin er dregin upp. Að nóttu ertu dreginn upp, að degi til gengurðu upp. Hneigingar, bros, kvein, formælingar, öllu þessu var komið fyrir innan í sigurverkinu af þeim sem gerði þig. 16. Hin fyrsta af sólum, Aþena í öndverðu, AAikis hinn milljónasti. Síðan koma hundruð þúsunda, og önnur hundruð, og mörghundruð þúsunda saklausra, og svo framvegis, og svo framvegis, unz heimurinn ferst. 27. Sjötti september. Klukkan ellefu fyrir hádegi. Einmitt núna eru fuglarnir að baða sig i ánum. Norðanvindurinn nuggar sér upp við grenitrén. Tyrkir sigruðu okkur við Bizani. Þú drekkur kaffi, krossbölvar. Sólin steikir þrúguna. Klukkan er ellefu fyrir hádegi. 29. Fyrir austan Síríus ganga í september gulbleikar regnskúrir með gular regnhlífar og græn sólgleraugu. Björtu haustskúrirnar eru íklæddar stuttpilsum og fara nú hringinn í kring um AAars. Á miðvikudaginn kemur komast þær inn á braut jarðarinnar. Hanoi, Washington, AAoskva, Sínaíeyðimörk, Tositsagata, austur af Chios, vestur af Korintu. Innifyrir, útifyrir. Pinja með djúpum útskurði. Stuttpils, græn gleraugu, gular regnhlífar öll halda þau aftur af gulbleika regninu fyrir austan Síríus, fyrir vestan septemberklefann minn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.