Þjóðviljinn - 24.01.1981, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓ,PVILJINN Helgin 24- ~ 25~ Ían»ar 1981
>
höfðu orðið aðnjótandi æskilegrar fræðslu um
getnaðarvarnir, barnaði boli hana þarna á
básnum, og eftir níu mánuði eignaðist svo
Pasifae ófreskjuna Minotauros með þessum
elskhuga sínum.
AF PÆLINGU
Það hygg ég að merkast haf i borið við hérna
fyrir vestan læk, síðan siðast, að brotist hef ur
út vísir að stúdentauppreisn í Melaskólanum.
Þegar þetta er skrifað hafa lærisveinar og
meyjar þessa menntaseturs tekið byggingar
herskildi, komið sér fyrir á göngum og
heimtað réttlæti.
Þessi gíf urlega ólga í stof nuninni á sér — að
dómi fréttaskýrenda — djúpar rætur, en talið
er að stjórnendur skólans haf i nú höggvið f ull-
nærri bæði siðferðisvitund og kynlífsvitund
nemenda.
Svo að langt má og f lókið sé nú gert stutt og
einfalt, hefur leikhópur frá Alþýðuleikhúsinu
að undanförnu f lutt í skólum höf uðborgarinn-
ar boðskap í leikritsformi um það hvar,
• hvenær, hvernig og hvers vegna eigi að gera
„hitf' og hafa — að sögn aðstandenda sýning-
arinnar — tíuþúsund börn og unglingar þegar
notið þessarar f ræðslu leikhópsins með því að
fara og sjá unglingaleikritið „Pæld'íðí".
Þegar svo kom að því, að sýna skyldi leikrit-
ið í Hagaskólanum, gaf skólastjórinn eftirfar-
andi yfirlýsingu: „Við sáum þetta leikrit, ég,
formaður foreldrafélagsins og hjúkrunar-
fræðingur skólans,og okkar álit er að þetta sé
Ijómandi gott leikrit fyrir 9. bekk, ágætt fyrir
8. bekk, en of stór skammtur fyrir 7. bekk".
Þá sagði skólastjórinn að það,sem væri að
gerast í Hagaskólanum, væri að nemendurnir
í 9. bekk hefðu tekið 7. bekkinga uppá sína
arma, og er ekki annað að sjá en þarna hafi
myndast ein allsherjar samstaða.
Undirritaður hefur lengi verið dálftið gam-
aldags i skoðunum á kynlífsfræðslu unglinga
og hef ég raunar, þegar slíkt hefur borið á
góma, löngum vísað til eigin reynslu í þessum
efnum og meira að segja einhvers staðar lýst
því yfir í lærðri grein, að við krakkarnir í
Vesturbænum hefðum haft f ulla vitneskju um
það hvar, hvenær, hvernig og hvers vegna ætti
að gera „hitt", heilum áratug áður en okkur
gafsttækifæri til að fremja athöfnina í verki.
Þegar ég var yngri hafði ég þá skoðun á
kynlífsfræðslu unglinga, aðbörn í sveit fengju
þessi fræði nánast með móðurmjólkinni.
Síðan hafa skoðanir mínar í þessum efnum,
sem og mörgum öðrum, gerbreyst.
Ég er semsagt á efri árum, kominn á þá
skoðun að það sé ekki bara óráðlegt, heldur
stórháskalegt að láta húsdýr og aðra fer-
fætlinga sjá um kynlífsfræðslu barna og ung-
linga. Slíkt hefur löngum haft hinar uggvæn-'
legustu afleiðingar.
Hver man ekki eftir Pasifaé úr grísku goða-
fræðinni? Hún hlaut einmitt staðgóða kynlífs-
fræðslu i f jósinu. Eftir að hún síðan hafði ver-
iðgefin Mímosi Krítarkonungi hélt hún áfram
að halda við kennara sinn í kynlífsfræðum,
föngulegan bolakálf í hallarf jósi Mimosar, en
tarf þennan hafði Posedon gefið Krítarkon-
ungi.
Þar sem hvorki tuddinn eða drottningin
Eða þegar hingað til lands var sent amerískt
úrvalslið landgönguliða á stríðsárunum,
föngulegir sveitamenn, sem höfðu eins og
Pasifaé lært f ræðin í f jósinu. Auðvitað leituðu
þeir ástarfunda hjá þeim sem heima fyrir
höfðu veitt þeim mesta fróun. En þar sem hér
geisaði mæðiveiki á þessum árum var fátt um
fína drætti hjá sauðkindum, en þeim mun
meira leitað á kýrnar.
Um þetta athæfi ortu svo landsmenn:
Hingað komið úrvalslið
iðkar kálfasmíði,
hverju ætli úrhrakið
i Ameríku ríði?
Ég er líka, á ef ri árum, kominn á þá skoðun
að sjálfsmenntun í kynferðismálum sé ekki
bara óf ullnægjandi, heldur líka háskaleg. Mér
er til dæmis tjáð að í Húnavatnssýslu hafi
heimasæturnar til skammstíma verið svo illa
heima í þessum fræðum að þær haf i haldið að
setja ætti pilluna milli hnjánna og halda henni
þar, til að koma í veg fyrir getnað.
Og þar sem ég er nú orðinn svo einlægur
talsmaður meiri kynfræðslu til handa ungling-
um brá ég mér í gær á sýningu Alþýðuleik-
hússins á „Pæld'íðí" og komst að þeirri niður-
stöðu að leikritið væri ekki bara gagnlegt,
fróðlegt og fræðandi fyrir krakkana, heldur
líka elskulegt og óvenjulega skemmtilegt, en
það er vist meira en hægt er að segja um aðra
kynfræðslu svona yfirleitt.
Ég skora þessvegna á öll skólayfirvöld að
leyfa öllum krökkum að fara og sjá þetta
ágæta leikrit og best væri að þau tækju for-
eldrana með.
Það er fyrir mestu að krakkarnir hef ji verk-
legar æfingar sem fyrst, og þá ríður á að allt
sé gert eftir kúnstarinnar reglum, því hvað
segir ekki í barnagælunni:
Elsku hjartans yndið mitt,
ef þú ferð úr brókum
gamnaðu þér og gerðu hitt,
en gerðu það uppúr bókum.
Flosi.
Albert
Guðmundsson er frægur fyrir
flest annað en að lúta forystu
flokks sins og venjulega hefur
hann sitt fram þótt hann eigi við
aðra „stórkarla”. Þess sáust lika
greinilega merki i borgarstjórn á
fimmtudag þegar oddviti minni-
hlutans, Davið Oddsson, varð á
miðjum fundi aö breyta niður-
skurðartillögu sinni vegna þess
að Albert neitaði að styðja hana
óbreytta. Davið hafði lagt til i
nafni alls borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins að bygginga-
framkvæmdir borgarinnar yrðu
skornar niður um 5%. Adda Bára
Sigfúsdóttir spurði Albert i
matarhléinu hvort hann hefði
samþykkt aö skera byggingar
fyrir aldraða um 5%, en hann er
sem kunnugt er formaöur
bygginganefndar meirihlutans og
brást hann hinn versti við. Til-
lagan eftir mat hljóðaði þvi upp á
5% niðurskurð á öllu nema
byggingum fyrir aldraða! (Þess
má geta að tillagan var felld).
Sinfóníusveitin
fer i tónleikaferð til Þýskalands
og Austurrikis siðar á þessu ári.
Þarna virðist kjörið tækifæri til
að kynna islenska tónlist og
islenska einleikara þvi að tæplega
virðist hljómsveitin eiga erindi til
útlanda upp á önnur býti. Þessu
Elias Snæland: Næsti ritstjóri
Timans?
Töluveröur
taugatitringur mun nú rikja á
Hagstofunni út af allsherjar-
mannatalinu sem tekið verður 31.
janúar n.k. Óttast sumir aö fram-
kvæmdin muni fara að einhverju
leyti úr skorðum. Þegar verið var
að undirbúa spurningalistann
kom m.a. upp sú hugmynd að ein
spurningin hljóðaði svo: Hvar
varst þú staddur aðfararnótt 31.
janúar? Þeim sem stakk upp á
þessu orðalagi þótti nefnilega
nokkuð einsýnt að fólk svæfi
heima hjá sér á nóttunni.
Ólafur
B. Thors fyrrverandi forseti
borgarstjórnar Reykjavfkur
hefur lýst þvi yfir opinberlega að
hann ætli ekki að vera f framboði
til borgarstjórnar i næstu
kosningum. Reyndar munu fæstir
núverandi borgarstjórnar-
fulltrúar ætla sér að halda áfram
i borgarstjórninni. 1 þeim hópi
Pétur H.: Enn eru til stólpa-
kjaftar.
eru m.a. þingmennirnir Guðrún
Helgadóttir, Albert Guðmunds-
son og Birgir tsl. Gunnarsson.
Þykir þeim öllum alltof mikill
rill fylgja þvi að vera bæði á
alþingi og i borgarstjórn. Enn-
fremur munu þeir Kristján Bene-
diktsson, Páll Gislason og Björg-
vin Guðmundsson allir ætla að
draga sig i hlé I næstu kosningum.
Björgvin
Guðmundsson lýsir þvi reyndar
ýfir i blaðaviötali i vikunni að
hann sé ekki búinn aö taka
ákvörðun um hvort hann hættir
eða gefur kost á sér. Þeir sem
þekkja til eru þess hins vegar
fullvissir að hann hafi þegar tekið
ákvörðun um aö hætta. Astæða:
Þórhallur Asgeirsson ráðuneytis-
stjóri viðskiptaráðuneytisins fer
fljótlega að hætta fyrir aldurs
sakir og þá er komið að Björgvini
i þá stöðu. Ekki þykir viö hæfi að
ráðuneytisstjórar séu að vasast i
pólitik.
Björgvin: Sér glytta i ráðuneytis- Albert: Brást hinn versti við.
stjórann.
er þó alls ekki að heilsa. A
tónlistarhátið i Wiesbaden i
Þýskalandi verður einungis leikið
eitt islenskt tónverk eftir látinn
listamann, Jón Leifs, og i Austur-
riki er engin islensk tónlist á dag-
skrá. Einleikari i Wiesbaden er
norskur pianóleikari en Manuela
Wiesler að visu i Austurriki. Lik-
lega ætla Islendingar að kenna
Austurrikismönnum hvernig á aö
fara með Jóhann Strauss og
Frans Schubert?
um flest það, sem almættinu hafði
þóknast að skapa. Með dular-
fullu seiðmagni hins kjaftgleiða
auðnuieysingja hefur honum
tekist aö „snakka” sig inná út-
varpið, stjórnendum dagskrár-
gerðar þess til ævarandi háð-
ungar, sjálfum sér til skammar
og vitibornum útvarpshlust-
endum til leiðinda.”
Segið svo að ekki séu enn til
kjaftar á íslandi.
Einhverjar
hressilegustu persónusvi-
virðingar sem lengi hafa sést i
íslenskum fjölmiðlum mátti sjá i
Helgarpóstinum nú I vikunni. Þar
ræðst Pétur H. Lárusson á félaga
Sigmar B. Hauksson og bókstarf-
lega treður hann niður i svaðið.
Hann segir m.a.:
„Þessi Don Quijote islenskrar
pressu hafði vart slitið ferm-
ingarfötunum, þegar hann var
orðinn frægur fyrir að þenja sig
Þar
sem Ólafur Ragnarsson hefur nú
verið rekinn af Visi bollaleggja
menn mjög um það hver taki við
starfi hans. Heyrst hefur að Jón
Baldvin Hannibalsson sæki mjög
stift aö komast i ritstjórastólinn
og færi vel á þvi að þeir mágar,
Ellert Schram og Jón Baldvin,
ritstýrðu málgagninu. Þá gætu
lika þær Bryndis og Magdalena
skrifaö leiklistargagnrýni til
skiptis.