Þjóðviljinn - 24.01.1981, Qupperneq 5
Helgin 24. — 25. janúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Ragnar Arnalds:
Þjálfaðir
íað
mála
skrattann
a
vegginn
Hvernig mun rikisstjórnin
bregðast við mótmælum
verkafólks í gosdrykkja-
verksmiðjunum?
Iðnverkafólk með kröfuspjöld á lofti utan við stjórnarráðið. Lengst til vinstri er Asgrímur Guðmunds-
son, trúnaðarmaður verkafólks I Vifilfelli.
—ljósm.Gel
Drekkið meira Sinalco, öl og
malt. Gefur hraustlegt og gott út-
lit.
-ljósm Gel.
Starfsmenn í gosdrykkjaverksmiðjunum mótmæla viö stjórnarráðið:
Afléttið vörugjaldinu
„Hér er um að ræða vöru-
gjald sem Alþingi hefur lög-
fest og fjárlög byggjast á.
Við munum þess vegna lita
til þess hver raunveruleg
þróun verður i gosdrykkja-
iðnaðinum, en ekki byggja á
uppsagnargleði forstjór-
anna, sem hafa auðvitað
alltaf tilhneigingu til að mála
skrattann á vegginn og eru
þrautþjálfaðir i þvi.
Við gerðum alltaf ráð fyrir
að eftirspurn myndi minnka
eitthvað fyrst eftir hækk-
unina, en töldum að hún
myndi jafna sig á skömmum
tima. Gosdrykkir eru þess
háttar vara. Samdrátturinn
verður kannski meira en ella
af þvi að vörugjaldið leggst á
nú um áramótin, en þess
hefur orðið vart að viðskipti
virðast almennt minni nú i
janúar en á fyrra ári, t.d. i
söluturnum.”
BÓ
Nú niður á Austurvöll
við förum þangað öll,
og I Stjórnarráðið förum
og mótmælin ekki spörum
<Jt af þessum nýja skatti.
sem lagður er á undir Gunnars
liatti.
Sungu starfsmenn gosdrykkja-
verksmiðjanna, sem i gær hópuð-
ust fyrir framan stjórnarráðið og
afhentu forsætisráðherra beiðni
um aö 30% vörugjald og sérstakt
timabundið vörugjald á öl og gos-
drykki yrði fellt niður eða dreift á
fleiri atvinnugreinar til að
tryggja atvinnu verkafólks i þess-
ari grein.
Undir þessa samþykkt rituðu
trúnaðarmenn i Vifilfelli, Olgerð-
inni og Sanitas fyrir hönd starfs-
manna.
Þessu mótmæli eru til komin
vegna uppsagnar á 60 starfs-
mönnum i Verksmiðjunni Vifil-
felli. Eru þær rökstuddar með þvi
að framleiðslan i janúar hafi
minnkað um 27% fyrstu dagana i
janúar miðað viö sama tima i
fyrra. Það fólk sem uppsagnirnar
bitna á, er einkum ungt fólk, flest
um eða innan við tvitugt. Margir
þessara starfsmanna hafa ein-
ungis unnið við fyrirtækiö I stutt-
an tima, og þvi koma uppsagnirn-
ar til framkvæmda nú þegar um
mánaðarmótin.
Asgrimur Guðmundsson,
trúnaðarmaður verkafólks i Vifil-
felli taldi ótvirætt að verulegur
samdráttur hafði oröið með til-
komu vörugjaldsins um áramót-
in. Samdrátturinn væri mun
meiri en sú venjulega árstiðar-
sveifla sem jafnan verður að af-
loknum hátiðum. Hann kvað upp-
sagnirnar koma sér ákaflega illa
og margir væru uggandi um sinn
hag. Hann sagðist vona að stjórn-
völd sýndu mótmælum verka-
fólksins og ósk um afnám vöru-
gjaldsins skilning.
Bjargmundur Jónsson, Jens
Þorvaldsson, Ragnar Haraldsson
og Smári Þorsteinsson, starfs-
menn ölgerðarinnar sögðu að enn
hefði ekki komið til uppsagna hjá
þeim, en þó hefði verið um greini-
legan samdrátt að ræða i fram-
leiðslunni. Þeir töldu að sala á
pilsner hefði ekki dregist saman
við tilkomu nýja Sanitaspilsners-
ins.
Egill Steinþórsson, trúnaöar-
maður i Sanitas sagði að enn hefði
ekki komið til uppsagna þar.
Hann sagði menn þó uggandi um
sinn hag vegna vörugjaldsins.
Nýi pilsnerinn hefði selst mjög
vel og hefðist varla undan að
framleiða hann. Bó
Coca-Cola hœkkaði um 70% á siöasta ári:
Stóð tíl að loka?
Nei, segir Pétur Björnsson forstjóri
Hjá verðlagsstjóra fengum við
upplýsingar úm hvað verð á gos-
drykkjum hefur hækkað með til-
komu hins nýja vörugjalds. Hér
er tekið dæmi af tveimur algeng-
um tegundum gosdrykkja, en
ekkert hámarksverð er á öli.
c c
u5 u5
%
Appelsin 25 cl... 2.00 2.40 20%
Coca Cola 30 cl. .. 2.10 2.50 19%
Aðspurður um afkomu fyrir-
tækjanna sagði Georg Ólafsson að
útkoma ölgerðarinnar hefði verið
jákvæð á siðasta ári, en tap á
rekstri Vifilfells. Hann hafði ekki
upplýsingar um stöðu Sanitas.
Það kom e anfremur fram hjá
Georg að kóka kóla hefði hækkað
um 70% á siðasta ári, sem meðal
annars stafaði af tiltölulega litl-
um hækkunum 1979 og 1978.
Nú liggur fyrir hjá verðlags-
stjóra beiðnium 24% hækkun gos-
drykvja frá ölgerðinni og 27%
hækkun frá Vifilfelli. Pétur
Björnsson forstjóri Vifilfells var
spurður að þvi hvort slik hækkun
myndi ekki leiða til verulegs
samdráttar og jafnvel meiri en nú
hefur komið fram, jafnvel þótt
vörugjaldið yrði fellt niður. Hann
svaraði þeirri spurningu ekki
beint en sagðist ábyrgjast að allt
starfsfólkið yrði endurráðið ef
vörugjaldið yrði aflagt. Hann
sagði aö einu sinni áður héfði orð-
ið um samdrátt að ræða vegna
mikillar verðhækkunar i einu
strikki. á tima vinstri stiórnarinn-
ar 1971-1974, en þá hefði kókið
hækkað um 26-28%. Þá sló á söl-
una i bili en hún jafnaði sig fljótt,
sagði Pétur.
— Er ekki liklegt að svo verði
einnig nú, var þá spurt en for-
stjórinn svaraöi þvi til að ef fyrir-
tækið fengi ekki hækkun kæmi til
framleiðslustöðvunar.
f Nú hefur kvöldvaktinni hjá
ykkur verið hætt, en sú aðgerð
veldur þessum uppsögnum. Stóð
ekki tilað gera það hvort sem var
vegna meiri framleiðslukostnað-
ar á kvöldin?
„Nei”, sagði Pétur afdráttar-
laust.
Aðspurður um framleiðslu-
magn i janúar i fyrra hafði for-
stjórinn ekki svör á takteinum.
Heldur ekki hvað mikið hefði ver-
ið framleitt i desember sl., en þá
ku hafa verið um metframleiðslu
að ræða.
Bó
# r
Skrásetja skal alla Islandsbyggð: i
Manntal fer fram um næstu helgi j
Manntal verður tekið á
Islandi um næstu helgi, dagana
31. jan. og 1. febrúar. Skal þá
skrásetja alla tslandsbyggð. Að
þessu sinni verður manntalið
mun itarlegra en áður hefur
verið og hver einstaklingur 12
ára og eidri fær þrjú blöð til að
útfylla.
Manntal var slðast tckið hér á
landi árið 1960, en siðan var
álitið um hrið að þjóðskráin
myndi duga sem upplýsingar
um ibúa islands. Reynslan
hefur sýnt að svo er ekki og þvi
skal nú hert mannsbarn skráð
eftir öllum kúnstarinnar
reglum.
1 fréttatilkynningu Hagstof-
unnar segir að upplýsingar úr
manntölum séu höfuðheimild
um tölu landsmanna, og búsetu
þeirra, atvinnu og menntun,
húsakynni og margt^ fleira.
Upplýsingar þær sem nu verður
safnað verða i framtiðinni
grundvöllur ýmis konar rann-
sókna hagnýtra og fræðilegra
aðgerða á hvaða sviði þjóölifs-
ins sem er.
Hagstofan hafði samstarf viö
ýmsa aðila við undirbúning
manntalsins þar á meöal sveita-
félög, Fasteignamat rikisins,
Félagsvisindadeild Háskólans,
Framkvæmdastofnun rikisins,
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið, Jafnréttisráð, Land-
læknisembættið og Þjóöhags-
stofnun.
Manntalinu nú er ætlað að
veita upplýsingar um samsetn-
ingu þjóðarinnar, skiptingu i
kyn, aldur hjúskaparstéttir,
heimilis-og fjölskyldutengsl,
heimili, nám, menntun, lifs-
framfæri og atvinnu. Enn
fremur um húsakost og tengsl
húsnæðis og mannfjiílda.
Þá verður tekin upp sú
nýlunda að spyrja um þátttöku i
heimilisstörfum, um ferðir til
vinnu, og veikindafjarvistir úr
vinnu. Hins vegar er ekki fariö
inn á svið sem tengjast tóm-
stundastörfum eða einkalifi að
öðru leyti.
Þegar manntalið var tekið
árið 1960 var gengið i hús og
skráð niður, en nú á hver og einn
að vera virkur við útfyllingu
skýrslunnar. Sveitastjórnir
annast töku manntalsins um
land allt. Skýrslan skiptist i ein-
staklingaskýrslu um alla sem
eru 12ára og eldri, ibúðaskýrslu
og hússkýrslu.
Föstudaginn 30. janúar
verður hálftima þáttur i sjón-
varpinu um manntalið og verða
þar veittar leiðbeiningar um út-
fyllingu skýrslunnar.
Hagstofan tekur skýrt fram
að allt sem skráð er um einka-
hagi manna skal fara meö sem
trúnaðarmál. „Þessi trúnaðar-
skylda er nauðsynleg til þess að
fólk geti óhikað veitt sem sann-
astar og réttastar upplýsingar,
enda er tilgangur manntalsins
ekki sá aö safna upplýsingum
um einstaklinginn sem slikan,
heldur að fá fram sem gleggsta
og réttasta mynd af samfélags-
háttum á landinu nú við upphaf
niunda áratugs aldarinnar,” I
segir i tilkynningu Hagstof- J
unnar.
Aö lokinni úrvinnslu veröa
skýrslurnar varöveittar á Hag- I
stofunni um hriö, en siöan fara ;
þær á Þjóöskjalasafniö. Mann-
taliö nú er þáttur i alþjóðasam-
starfi og hafa manntöl verið
tekin i fjölmörgum rikjum nú
þegar og önnur eru með slikt i
bigerð. *
Það veröur um hæstu helgi I
sem barið verður að hvers |
manns dyrum með manntals- ■
skýrslurnar og Hagstofan ■
leggur áherslu á að menn I
bregöist vel viö svo að fram- |
kvæmdin verði sem auðveldust. ■