Þjóðviljinn - 24.01.1981, Page 11
Helgin 24. — 25. janúar 1981. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 11
DAGSBRÚN 75 ÁRA
Stutt
afmælis-
spjall við
Eðvarð
Sigurðsson
formann
félagsins
Á morgun, mánudaginn
26. janúar eru 75 ár liðin
frá því að Verkamanna-
félagið Dagsbrún var
stofnað í Reykjavík. Við
áttum stutt spjall við
Eðvarð Sigurðsson
formann félagsins í tilefni
af þessum tímamótum, en
hann hefur nú verið for-
maður i nákvæmlega 20 ár.
Hann lét þess reyndar
mrr
P/x \ JL
Eðvarð Sigurðsson: Að sumu leyti eru störfin nú orðin einhæfari en áður var og þess vegna meira
slitandi. (Ljósm.: gel)
getið að þrátt fyrir háan
aldur hefðu ekki verið
nema 12 formenn frá
upphafi og aðeins 3 frá
tímamótaárinu 1942.
— Verður eitthvað sérstakt til
hátiðabrigða á 75 ára afmælinu,
Eðvarð?
— Það verður ekki neitt
tilstand að ráði. Við höfum opið
hús i Lindarbæ kl. 3—6 siðdegis nú
ásunnudag, 25. janúar. Þar verða
veitingar fyrir verkamenn og
aðra gesti. Við sérstaka athöfn i
þessu kaffisamsæti kemur fram
hvað ákveðið hefur verið að gera i
tilefni afmælisins.
— Hver er staða Dagsbrúnar
núna með tilliti til fortið-
arinnar?
— A þessum 75 árum siðan
félagið var stofnað hafa orðið
meiri umskipti i þjóðfélaginu en á
öllum þeim tima sem leið frá
landnámi fram að stofnun Dags-
brúnar, en hún kom til sögunnar
við upphaf nýrrar atvinnuþróun-
ar. Með þessari stórkostlegu
Frá fyrstu kröfugöngunni 1. mai 1923.
Aðdragandinn
Dagsbrún var formlega stofn-
uð 26. janúar 1906 en töluverður
aðdragandi varð að stofnun
þess. A 50 ára afmælinu skrifaði
Eðvarð Sigurðsson afmælis-
grein og lýsti þá þessum að-
draganda á eftirfarandi hátt:
28. desember 1905 var fyrsti
undirbúningsfundurinn, sem
vitað er um, haldinn i pakkhúsi
Jóns Magnússonar, siðar yfir-
fiskimatsmanns, við Holtsgötu
16, Lindarbrekku, nú Vestur-
vallagötu 6. Um þennan fund
segir svo i gerðabók Dagsbrún-
ar:
,,Ar 1905 hinn 28. desember
var fundur settur og haldinn
samkvæmt fundarboði frá Árna
Jónssyni tómthúsmanni, Holts-
götu 2, og fleirum i pakkhúsi
Jóns Magnússonar frá Skuld til
að ræða um félagsskap og sam-
tök meðal verkamanna i
Reykjavik. Fundarstjóri var
kosinn Sigurður Sigurðsson bú-
fræðingur og skrifari Runólfur
Þórðarson Mýrargötu 3.
Fundarmenn voru 36 að tölu.”
Siðar segir: „Fundarstjóri
hélt stuttan fyrirlestur um
verkamannasamtök i öðrum
löndum og um þýðingu þess
félagsskapar bæði fyrir þá og
mannfélagið i heild sinni.
Þar á eftir urðu nokkrar um-
ræður, sem allar lutu að þvi, hve
nauðsynlegt væri að koma á
félagsskap meðal verkamanna
hér i Reykjavik, einkum i þeim
tilgangi að laga vinnutimann,
jafna kaupgjaldið og takmarka
sunnudagavinnuna.
Þá kom fram tillaga um
stofnun félagsskapar i þessu
augnamiði og var hún borin
undir atkvæði og samþykkt með
öllum atkvæðum.”
Siðan kaus fundurinn 5 manna
nefnd „til þess að semja frum-
varp til laga fyrir hið fyrirhug-
aða félag og gefa þvi nafn.” í
nefndina völdust þessir menn:
Arni Jónsson, verkamaður, Jón
Magnússon, fiskimatsmaður,
Sigurður Sigurðsson búfræðing-
ur, Sigurður Jónsson, verka-
maður og Runólfur Þórðarson
verkamaður. Akveðið var að
halda fund aftur fyrstu dagana i
janúar ,,og ræða þá lögin, ef
nefndin yrði þá búin að ljúka
starfi sinu og lögin yrðu full-
samin.”
Næsti fundur er svo haldinn i
Bárubúð 3. janúar 1906. „sam-
kvæmt fundarboði frá nefnd
þeirrier verkamenn höfðu kosið
á fundi sinum 28. des. f. á.”
Nefndin hafði ekki lokið störfum
sinum og gerði ráð fyrir að þeim
lyki ekki fyrr en seint i mánuð-
inum. Þó nefndin hefði ekki lok-
ið störfum sinum, verður þessi
fundur að teljast merkur áfangi
i stofnun félagsins, þvi á fundin-
um „lagði nefndin fram stofn-
skrá fyrir hið væntanlega félag
er hún hafði komið sér saman
um að nefna: Verkamanna-
félagið Dagsbrún”.
Þessi stofnskrá „skyldi liggja
frammi til undirskriftar þar til
næsti fundur verður haldinn og
skyldu allir þeir er undir stofn-
skrána hefðu skrifað boðaðir á
næsta fund til að ræða um lög-
in”, eins og segir i gerðabók-
inni.
Með samþykkt stofnskrárinn-
ar á þessum fundi, er félaginu
raunverulega valið nafn, hið
táknræna og fagra nafn:
„Dagsbrún”. Þaö skal ekki full-
yrt hér, að hve miklu leyti þess-
um frumherjum Dagsbrúnar
var ljóst hið sögulega hlutverk
sitt, en vafalaust endurspeglar
nafngiftin vonirnar, sem bundn-
ar voru við þetta nýja félag og
hlutverk þess, vonina um að nýr
dagur væri að risa fyrir litil-
magnann i þjóðfélaginu. 1 50 ár
hefur þetta nafn, og félagið sem
það ber, verið stolt fslensku
verkalýðshreyfingarinnar. Þús-
undum verkamanna hefur þetta
nafn orðiö einkar hjartfólgið og
breytingu á þjóðfélaginu og at-
vinnuháttum er Dagsbrún ekki
sama stærð og hún var langt fram
eftir árum í verkalýðssamtökun-
um eða þjóðlifinu.
— Þú átt við að ófaglærðir
verkamenn séu tiitölulega færri
en þeir voru áður?
— Já.
— Hversu margir eru i Dags-
brún?
— Við erum með svona um 3800
reglulega félaga en að visu koma
miklu fleiri við sögu á hverju ári.
— Er þetta ekki einnig sundur-
leitari hópur en áður var?
— Hann hefur breyst æði mikið.
Upphaflega voru Dagsbrúnar-
menn félag hafnarverkamanna
og þeirra sem voru i þessari beinu
verkamannavinnu en með vél-
væðingunni hafa störfin breyst
mjög mikið og eru t.d. á vinnuvél-
um og hvers kyns tækjum, einnig
bílstjórastörf og verksmiðjustörf.
— Attu kannski von á þvi að áð-
ur en félagið verði 100 ára leggist
niður öll erfiðisvinna og öllu verði
stjórnað með tökkum og tólum?
— Ég vil ekki spá um það hvað
næstu áratugir bera i skauti sinu
en allir vita hverju tölvuvæðingin
getur valdið. Allt er i örum breyt-
ingum en að mörgu leyti eru
störfin nú orðin einhæfari og að
þvi leyti meira slitandi en áður
var.
Ekki var meiningin að um neitt
stórviðtal yrði að ræða og látum
við þar staðar numið, en óskum
afmælisbarninu til hamingju.
—GRr
Formenn
Dagsbrúnar
í 75 ár
1. Sigurður Sigurðsson
1906—1909 og 1915
2. Pétur G. Guðmundsson
1910—11, 1913 og 1921
3. Árni Jónsson
1912 og 1914
4. Jörundur Brynjólfsson
1916—18
5. Ágúst Jósefsson
1919—20
6. Héöinn Valdimarsson
1922—24, 1927—35, 1938—9
og 1941
7. Magnús V. Jóhannesson
1925—26
8. Guðmundur O. Guð-
mundsson
1936—37
9. Einar Björnsson
1940
10. Sigurður Guðnason
1942—1953
11. Hannes M. Stephensen
1954—1961
12. Eðvarð Sigurðsson
1961—1981
andstæðingar alþýðunnar hafa
lært að bera virðingu fyrir þvi —
og ekki alltaf óttalausa.
Stofnskráin, sem þessi fundur
gekk frá er svohljóðandi:
„Vér sem ritum nöfn vor hér
undir, ákveðum hér með að
stofna félag með oss, er vér
nefnum „Verkamannafélagið
Dagsbrún”. Mark og mið þess
félags vors á að vera.:
1. Að styrkja og efla hag og at-
vinnu félagsmanna.
2. Að koma á betra skipulagi að
þvi er alla daglaunavinnu
snertir.
3. Að takmarka vinnu á öllum
sunnu- og helgidögum.
4. Að auka menningu og bróður-
legan samhug innan félags-
ins.
5. Að styrkja þá félagsmenn eft-
ir megni, sem verða fyrir
slysumeða öðrum óhöppum.”
Þessi stofnskrá með eigin-
handar undirskrift þeirra 384
manna, er höfðu undirritað
hana áður en næsti fundur var
haldinn og teljast stofnendur
félagsins, hefur varöveist alger-
lega ósködduð.