Þjóðviljinn - 24.01.1981, Page 13
Helgin 24.- 25. janúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Ljósmyndari Notaös og nýs náði þessari mynd i fylgsni málaliöa á fréttastofu útvarpsins. Þeir sem sjást á myndinni eru Friörik Páll
Jónsson, Stefán Jón Hafstein (meö krepptan hnefa) og Helgi Pétursson.
Ekki fer á milli mála aö hér
er málaliöi á ferö. Halldór
Halldórsson fréttamaður.
Málaliöarnir á fréttastofunni
Eins og komið hefur fram i
fréttum að undanförnu hafa
kommúnistar töglin og hagld-
irnar hvert sem litið er hér á
landi: rikisstjórn, borgarstjórn,
verkalýðssamtök að ógleymdu
útvarpi og sjónvarpi. Ellert B.
Schram, ritstjóri Visis, hefur
réttilega bent á að m.a.s. hæg-
lætismaðurinn Andrés Björns-
son útvarpsstjóri sé nú orðinn
bandingi kommúnista og er sem
slikur notaður til að troða mála-
Eiöur Guönason útvarpsráös-
maður er einn þeirra sem
harðast hafa gagnrýnt mála-
liöanna. Blaöamaður Notaðs og
nýs náði tali af honum er hann
var að koma af frimúrarafundi
og sagðisj hann lýsa yfir
þungum áhyggjum af þróun
mála.
liðum inn i fréttamannsstöður
án þess að útvarpsráð fái við
nokkuð ráðið. Og ef fréttamenn-
irnir eru ekki kommúnistar þá
eru þeir frændur og vinir yfir-
manna útvarpsins. Rann-
sóknarblaðamaður Notaðs og
nýs ásamt ættfræðingi siðunnar
fóru á stúfana til að kanna þetta
mál nánar og reyna að mæla
hinn annarlega pólitiska
þrýsting á Skúlagötu 4.
Ekki fór á milli mála að
útvarpshúsið er orðið hreiður
borgaraskæruliða eins og
myndir hér á siðunni sýna og
þurfti engan rannsóknarblaða-
mann til að komast að þvi. Hitt
er annað mál að ættfræðingur
Notaðs og nýs hafði ærnu verki
að^ sinna og fara hér á eftir
helstu niðurstöður hans:
A. Einar örn Stefánsson er að
öllum likindum tengdasonur
Jóhannesar Arasonar þuls
(kona hans heitir jú Asta R.
Jóhannesdóttir ). Sá er hængur-
inn á þessari kenningu að
Jóhannes Arason er ekki einn af
yfirmönnum útvarpsins og
dregur það úr gildi hennar. Ekki
er vitað um neinn Stefán i yfir-
mannaliði útvarpsins.
B. Mál Ernu Indriðadóttur
liggur ljóst fyrir. Hún hlýtur að
vera systir Margrétar Indriða-
dóttur fréttastjóra. Indriði er
ekki með algengustu nöfnum og
er með ólikindum að tvær konur
sem hafa tilhneigingu til blaða-
mennsku skuli báðar bera þetta
föðurnafn.
C. Asdis J. Rafnar. Hér er
mjög liklega um dulnefni að
ræða þ.e.a.s. Ásdis notar ættar-
nafn til að breiða yfir sitt rétta
föðurnafn. Hún skyldi þó ekki
vera Þorsteinsdóttir (Hannes-
sonar) eða Guðmundsdóttir
(Jónssonar)? Ha? Já, ætli
hundurinn liggi ekki einhvers
staðar grafinn?
Að lokum vill Notað og nýtt
taka það fram og endurtaka að
þetta fólk sem skipar þessar
stöður, hvort sem það er flokks-
bundið á einum eða öðrum stað,
er fólk af þvi tagi sem kallast
málaliðar ef það er ekki nyt-
samir sakleysingjar þeirra
öfgaafla sem ég var að tala um
áður, nema hvort tveggja sé.
Sjö þúsund og fimm hundraöasti fundur útvarpsráös settur.
Andrés Björnsson útvarpsstjóri liggur hundflatur. útsendari
kommúnista til hægri.
Helgi H, Jónsson fréttamaöur lætur til skarar
skriöa.
Ellert B. Schram reynir aö komast óséöur út úr
útvarpshúsinu. 1 stresstöskunni eru ættartölur
umsækjenda um fréttamannsstööur.