Þjóðviljinn - 24.01.1981, Qupperneq 23
Helgin 24. — 25. janúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23
Þegar
Eisenhower
hershöföingi
kom til
Reykjavíkur
fyrir
réttum
30 árum
Eitt best varðveitta leyndarmál
siðari tima sögu á íslandi, er hvers
vegna allir þingmenn Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks gengust undir það
jarðarmen að játa bandariskum
herstöðvum á Islandi árið 1951
þrátt fyrir eindregnar yfirlýsingar
tveimur árum áður við inngöngu
íslands i Nató að hér yrði ekki hér
á friðartimum. Eins og kunnugt er
voru þingmenn fyrrgreindra
flokka boðaðir á leynifund vorið
1951 og látnir samþykkja her-
stöðvarnar en herinn var þá þegar
lagður af stað frá Bandarikjunum.
1 þessari grein verður minnst at-
burðar, sem gerðist fyrir nákvæm-
lega 40 árum — eða 25. janúar 1951.
Þá kom Dwight D. Eisenhower,
þáverandi yfirhershöfðingi
Atlantshafsbandalagsins, siðar
forseti Bandarikjanna, til Reykja-
vikur og átti viðræður við Bjarna
Benediktsson utanrikisráðherra og
fleira islenska ráðamenn. Mjög lil-
legt er að á þeim fundi hafi Eisen-
hower tilkynnt að íslendingar yrðu
að taka við bandariskum herstöðv-
um — hvort sem þeir væri það ljúft
eða leitt.
Dulbúinn her
A árabilinu 1946—1951 átti svo
að heita að hér væri ekki banda-
riskur her. Skv. Keflavikur-
samningnum 1946 áttu Banda-
rikjamenn að fá að hafa afnot af
Keflavikurflugvelli i 6 1/2 ár og
mega halda þar uppi starfsemi
vegna skyldu þeirrar sem þeir
höfðu tekist á hendur i sam-
bandi við hernám Þýskalands —
eins og það hét. bó að tslending-
ar hefðu formleg yfirráö yfir
vellinum á þessum tima var þar
fjöldi borgaralega klæddra
Bandarikjamanna aö störfum —
eins konar dulbúinn her.
Þegar kom fram á sjötta ára-
tuginn náði kalda striðið
hámarki og i krafti móðursýk-
innar sem það framkallaði
ásamt kinversku byltingunni og
Kóerustriðinu fóru Bandarikja-
menn hamförum og reyndu að
spanna allan heiminn hernaöar-
neti sinu.
Eisenhówer og Bjarni Benediktsson koma gangandi frá Stjórnarráðinu 25. janúar 1951 — Ljósm.: Skafti
Guöjónsson.
Voru Islendingar
knúðir til hlýðni?
Hinn 5. janúar 1951 skýrir
Morgunblaðið frá för* Eisen-
howers um Evrópulönd og hann
hafi sagt á fundi fréttamanna
við brottför sina frá Bandarikj-
unum að hann hvetti Atlants-
hafsrikin eindregið til aö efla og
styrkja varnir sinar. Ekki getur
blaðið þess þó, að Eisenhower
yfirhershöfðingi muni koma við
á tslandi i þessari för sinni.
Ummæli
Kennedys
Um þessar mundir fóru að
birtast i heimspressunni fregnir
af þvi að Bandarikjamenn hafi
hug á tslandi sem nauðsynleg-
um hlekk i hernaöarkerfi
þeirra. Um þetta þegja þó öll
blöð á tslandi nema Þjóðviljinn.
Hinn 3. janúar 1951 segir Þjóð-
viljinn að Joseph Kennedy,
fyr.rv. sendiherra Bandarikja-
manna i London (faðir
Kennedybræðra), hafi haldið
ræðu i lagadeild Virginiu-
háskóla 12. desember þar sem
tsland bar á góma. Kennedy
sagði i ræðu sinni: ,,Hefðum við
i dag þær varnir á tslandi, sem
hægt hefði verið að byggja fyrir
hundraðasta hluta af þvi fé sem
, viö höfum eytt i Berlin myndum
viö hafa keypt öryggi fyrir pen-
| inga okkar en ekki aukna
I hættu”.
Skv. frásögn Þjóðviljans hélt
Kennedy þvi fram i ræöu sinni
| að Bandarikin ættu að hætta við
allar fyrirætlanir um strið á
I meginlandi Evrópu og Asiu en
i einbeita sér i þess stað aö þvi að
i koma upp útvarðastöövum i
Atlantshafi og Kyrrahafi og vig-
búa hin Amerikurikin. Kvaðst
hann vonast til að hlutaðeigandi
rikisstjórnir létu með góðu að
vilja Bandarikjamanna, en ef
þær hreyfðu mótbárum væru
nóg ráð til að knýja þær til
hlýðni. Ræða Kennedy vakti
mikið umtal i bandariskum
blöðum.
Daginn eftir þessa frétt flytur
Þjóöviljinn þær fregnir að kom-
inn sé til landsins um 250 manna
flokkur frá Bandarikjunum til
að koma upp radarkerfi eða
hlustunarkerfi. Timinn, Morg-
unblaðið og Alþýðublaðið minn-
ast ekki á þetta einu orði.
Ferðir
Eisenhowers
um Evrópu
Föstudaginn 12. janúar skýrir
Þjóöviljinn frá þvi fyrstur blaða
að Eisenhower hershöfðingi eigi
að koma i heimsókn til Islands
og veröi það siðasti viökomu-
staður i yfirreið hans um V-
Evrópu. Þess má geta að viða
urðu óeirðir vegna heimsókna
hans, t.d. i Paris og Kaup-
mannahöfn.
t janúar flutti og Harry
Truman forseti Bandarikjanna
þinginu i Washington efnahags-
málaboðskap sinn og krafðist
þess aö útgjöld til hermála yrðu
aukin um 500% og yrðu alls 140
þúsund miljónir dollara. Af
þessu sést hversu æðisgengiö
vigbúnaðarkapphlaupið var á
þessum tima. An vafa hefur
herstöð á Islandi verið einn út-
gjaldaliöurinn.
1 Morgunblaðinu er nákvæm-
lega sagt frá ferðum Eisen-
howers um Evrópu. 17. janúar
segir blaöið t.d.: „Eisenhower,
yfirmaður Atlantshafshersins,
kom til Lissabon frá Lundúnum
i kvöld. Aður en hann lagði af
stað, komst hann svo að orði aö
honum heföi verið óblandið
ánægjuefni að finna hve rikis-
stjórnir Evrópu hefðu verið fús-
ar til aö bæta úr brýnni þörf á
auknum landvörnum.”
Og 24. janúar segir Morgun-
blaðið: „Eisenhower hefir að
undanförnu heimsótt allar
höfuðborgir aðildarrikja
Atlantshafssáttmálans og rætt
þar við leiðtoga rikjanna um
ýmsar áætlanir um varnir Vest-
ur-Evrópu.”
íslandsheimsókn
leyndarmál
Greinilegt er að islensk yfir-
völd hafa verið dauðhrædd um
óeiröir hér vegna komu hers-
höfðingjans þvi að algjör hula
varyfir þvi hvenær hann ætti að
gista landiö. Daginn áður en
hann kom sneri Þjóðviljinn sér
til Bjarna Guðmundssonar,
blaðafulltrúa rikisstjórnarinn-
ar, og spurði frétta um komu
Eisenhowers. Segist blaðinu svo
frá:
„Bjarni sagðist ekkert geta
um hana sagt, það væri ekki vit-
að hvort hershöfðinginn ætlaöi
að gista hér, eða hvar hann ætti
aö gista, ekki hvenær hann
kæmi eöa hvenær hann færi,
ekki hvort hann kæmi til
Reykjavikur, ekki hvar né
hvenær hann ræddi við rikis-
stjórnina, — ieinu orði sagt ekk-
ert. Þó bjóst Bjarni við að
blaðamenn myndu fá tækifæri
til að ræöa við hershöfðingjann,
þegar hann kæmi á Keflavikur-
flugvclli (!). Blaðafulltrúi rikis-
stjórnarinnar virtist þannig jafn
fáfróður um þennan merkisat-
burð og allur almenningur.”
Ekki gekk Þjóðviljinn að þvi
gruflandi hver væri tilgangur-
inn með heimsókn hershöföingj-
ans. Hann kæmi til að semja um
nýtt afsal landsréttinda, nýtt
hernám tslands. Þar fór hann
lika nærri lagi.
Mikill
viðbúnaður
Þjóðviljinn segir einnig frá
þvi 24. janúar aö lögreglan hafi
mikinn viöbúnað: „Fyrir
nokkrum dögum var fariö um
allar fornsölur i leit að skot-
vopnum og i gær fengu þeir
menn sem voru i hvitliðinu eða
studdu veggi Alþingishússins 30.
mars 1949 fyrirmæli um aö vera
til taks i lifvörð um Eisen-
hower!”
Siöasti viðkomustaður hers-
höfðingjans áður en kom til
tslands var Paris. Þar var sett
7000 manna lögreglulið og 3000
manna herliö til að einangra
Hotel Astoria við Champs
Elyssé þar sem hann gisti. Mikil
mótmælaganga var farin þrátt
fyrir bann franskra yfirvalda og
voru þar handteknir yfir 2500
manns.
Blaðamenn
fengu ekki að
spyrja
Kl. 12.25 fimmtudaginn 25.
janúar lenti flugvél Eisen-
howers á Reykjavikurflugvelli
og var gifurlegur viðbúnaður
lögreglu, varaliðs og banda-
riskra öryggisvarða. Þeir sem
tóku á móti Eisenhower voru
Bjarni Benediktsson utanrikis-
ráöherra, Agnar Kl. Jónsson
skrifstof ustjóri, Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri, Sigur-
jón Sigurösson lögreglustjóri
o.fl.
Morgunblaðið skýrir svo frá:
„I afgreiðslusal farþegaaf-
greiðslunnar ræddi Eisenhower
viö blaðamenn sem voru um 15
talsins. Fulltrúi hershöföingj-
ans skýrði frá þvi að hann
myndi ekki aö þessu sinni svara
fyrirspurnum blaðamanna
heldur segja það sem honum
byggi i brjósti i ávarpsformi.
Sagöi hann aðaltilgang sinn
væri að kynna sér hvort allar
rikisstjórnir og allar þjóðir
varnarbandalags Atlantshafs-
rikjanna væri jafn hugleikiö að
varðveita friöinn og gera varn-
arvegg umhverfis vestræna
menningu og mér er það hug-
leikið eða þjóöinni sem fól mér
að vinna þetta verk.”
Þjóðviljinn skýrir hins vegar
svo frá:
„Blaðamenn höfðu vænst þess
að mega leggja nokkrar spurn-
ingar fyrir hershöföingjann en
það var harðbannað. I staðinn
hélthann stutta ræöu yfir blaða-
mönnum þar sem hann sagöi aö
hlutverk sitt væri að „slá
skjaldborg um vestræna menn-
ingu”, að þvi færi fjarri að
nokkur yfirgangur væri tengdur
Atlantshafsbandalaginu og fór
með fleiri ámóta þokkalega
frasa”.
Ur flugafgreiðslunni ók
Eisenhower hershöföingi aö
Stjórnarráðinu við Lækjartorg
og hitti þar að máli forsætisráð-
herra og aðra ráðherra. Síöan
var ekið til Bessastaða þar sem
matarboð var hjá Sveini
Björnssyni forseta. Þar var
rikisstjórnin saman komin
(samsteypustjórn Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks) og tveir
leiðtogar Alþýðuflokksins, þeir
Stefán Jóh. Stefánsson og As-
geir Asgeirsson. Þar hefur
sjálfsagt margt verið skrafað.
Fór hershöfðinginn af landi
brott siðdegis þennan sama dag.
Þess skal getið að engin mót-
mæli voru höfö i frammi á
Lækjartorgi. Þar safnaðist ein-
ungis saman þögull mannfjöldi
til að sjá þennan fræga mann.
Þéttur á velli
og þéttur í lund
Aö lokum verður hér tekin
klausa úr Morgunblaðinu sem
sýnir hina barnslegu aðdáun og
glýju sem sumir voru með i
augum á þeim tima:
„Þeir sem fengu tækifæri til
að sjá Eisenhower I gær gátu
staðfestþað sem áður var vitaö,
að þar fer maður, sem er þéttur
á velli og þéttur i lund. — Hann
er meðalmaður á hæð, en kvikur
i hreyfingum. Eins og menn
kannast viö af kvikmyndum
sem hér hafa sést af hershöfð-
ingjanum, sjást svipbrigöi
greinilega i andliti hans er hann
talar. Hann getur veriö fyndinn
og skemmtiiegur og ljómar þá
andlit hans af gleði, en verður á
næsta augnabliki alvarlegt, ef
slikt ber á góma.”
I þessari sömu grein segir
ennfremur:
„Dwight D. Eisenhower er sá
maður, sem hinar vestrænu,
frjálsu lýðræðisþjóðir byggja nú
allt sitt traust á...”
Fjórum mánuðum siðar var
bandariskur her genginn á land
i Keflavik án þess að Alþingi
hefði verið spurt — og þrátt fyr-
ir loforöin frá 1949 um að hér
skyldi ekki vera hér á friðartim-
um.
—GFr I