Þjóðviljinn - 24.01.1981, Qupperneq 24
24 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 24. — 25. janúar 1981.
erlendar
bækur
On My Own Terms.
John Seymour. Faber and Faber
1980.
Höfundurinn varð kunnur, eftir
að bækur hans um sjálfsþurftar-
búskap komu út. M.a. The Fat of
the Land og The Complete Book
of Self-Sufficiency. Aður en þær
komu Ut, hafði hann skrifað ævi-
minningar sinar, sem eru hér
endurritaðar og gefnar út undir
sama titli. Höfundurinn segir i
formála, aðfyrri gerðin hafi verið
slæm. Hann segir hér frá ferð
sinni til Afriku og dvölinni þar.
Hann ferðaðist um Suður-Afriku
og viðar, veiddi villidýr, gróf til
málma, stundaði búskap og
kynntist ibúunum og aökomu-
mönnum. Lýsingar hans á bú-
skapnum eru liflegar og viðskipti
hans við ibúana voru samkvæmt
heföbundnum hætti hvitra manna
þar um slóðir á þeim timum.
Þegar siðari heimsstyrjöldin
skall á, gekk hann i breska herinn
barðist við Japani i Burma, en
Siðan hélt hann til Indlands og
baröist við Japani i Burma, en þar
þar lýkur sögunni.
Höfundur skrifar skemmti-
legan formála að bókinni. Hann
segir aö nokkuð löngu fyrir styrj-
öldina hafi Englendingar tekið að
stæla bandariskan lifsmáta,
„þeir hafi tekið upp bandariska
vúlgarisma og heimsku”. Heiðar-
legt fólk, bændur, sjómenn og
verkamenn hafi verið hundsaðir,
orðið að þola atvinnuleysi og alls-
leysi. Þeir sem framleiddu verð-
mætin og unnu úr þeim hlutu
rýran skerf, meðan ný stétt eða
stéttagrautur, samsettur úr
snikjudýrum ruslaralýð og
braskarahyski hafi hirt arðinn af
vinnu þess. Seymour orðar þetta
eitthvaö á þessa leið: „að þeir
sem unnu gagnleg störf urðu að
lúta dóti, kaupahéðnum, júrista-
bófum, blaðasnápum og yfir-
kontóristum”. Seymour segist
hafa orðið svo leiður á þessu sam-
safni, að hann flutti út i sveit og
tók að lifa á landsins gæöum.
Bókin er fjörlega skrifuð.
The Portable Voltaire.
Edited with an introduction by
Ben Ray Redman. Penguin Books
1979.
Hér birtast: Candide og Zadig
óstyttar, greinar úr heimspeki-
oröabókinni, nokkur bréfanna,
kaflar úr „Siðum og eölisfari
nokkurra þjóða” og sitthvað
fleira. Þetta er ekki nema brota-
brot af skrifum Voltaires, en
veitir hugmynd um fjölbreytni
samantekta hans og einnig um
hann sjálfan og siðast en ekki slst
inntak verka hans. Það er sagt að
Viking-útgáfan hafi hvatt margan
manninn til frekari lesturs, með
þessum handhægu úrdráttum,
sem sú útgáfa gaf út um og upp úr
miöri þessari öld, og er það ekki
óliklegt. Penguin-útgáfa endurút-
gáfnanna ætti að ná viðar,
þarsem Penguin-útgáfan er mun
ódýrari heldur en frumútgáfan.
Kingsley.
The Life Letters and Diaries of
Kingsley Martin. C.H. Rolph.
Penguin Books 1978.
Kingsley Martin var kunnur
sem ritstjóri New Statesman, er
mótaði stefnu þ.ess vikublaðs allt
frá 1930 og til 1960, og gerði það að
einu vandaðasta vinstra-viku-
blaöi á Englandi. Vinstri menn
lásu blaðið af áhuga og hægri
menn sem þá voru og hétu mátu
það sem andstæðing, sem hæfði
þeim sjálfum. En sföast töldu
manntegundinni hefur fækkað
iskyggilega, einkum eftir að
forusta ihaldsmanna virðist vera
komin i hendur skillitilla smá-
borgara. Timabilið 1930—1960 var
timi mikilla atburða og umbreyt-
inga og áhrif blaðsins voru mjög
mikil. Samstarfsmaður Kings-
leys skrifar hér sögu vinstri -
hreyfingarinnar á Bretlands-
eyjum um leið og hann rekur ævi-
feril vinar sins. Þetta er vel skrif-
uð og fróðleg bók um nýliðna
tima.
VERÐLAUN AKROSSGÁT A Nr. 255
/ 2 3 T~ s- !? (? T~ 1 10 1 /1 12 13
lio V n- w~ /9 20 2/ T~ 22 T~ 7T~~ B— 7T~~ T~ V
w J> 23 23 V 12 ií>~ 20 20 & // á> T? 7?— i- 12 T~ b
V 2J,' w~ /2 2(o /9 V 2/ 23 1/ v-— V T2 22 12 77—
n ¥■ n v T~ 2Ú> 6? 79 /3 V á 17- /9 /? z?
z n // ZV J9 /* V (p w~ 7T~ 73 W~ V N—
"/ Zs II 22 23 1? V U 3— <3 T~ s~ v
3 Zs li~~ 3 /9' V- 2*7 13 20 79 18 Jö—
31 22 W // (p V j<7 T~ s~ V /9 3~ 73 Y— W~ (d
2} /G jf i5- 79 /(, /3 /9 2o /9 & V ~32~ v 21 1?
lc) /V 23 23 13 /3 4 á> 21 20 ? sY 23 5?
/ 2 23 5 12 2!
Stafirnir mynda íslenskt orð
eda mjög kunnugleg erlend heiti
hvort sem lesið er lárétt eða lóð-
rétt.
Hver stafur hefur sitt númer
og galdurinn við lausn gátunnar
er sá að finna staflykilinn. Eitt
orð er gef ið og á því að vera næg
hjálp, því að með þvi eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það
eru þvi eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi hvern i sinn
reit eftir því sem tölurnar segja
til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er
gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum,
t.d. getur a aldrei komið í stað á
og öfugt.
Setjið rétta stafi í reitina hér til
hliðar. Þeir mynda þá nafn á
fornu kvæði. Sendið þetta nafn
sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykja-
vík, merkt: ,,Krossgáta nr. 255".
Skilafrestur er þrjár vikur. Verð-
launin verða send til vinnings-
hafa.
Verðlaunin að þessu sinni er
bókin Elds er þörf, úrval úr
greinum Magnúsar Kjartans-
sonar sem Mál og menning gef ur
út.
Verðlaunin fyrir krossgátu 252
hlautÁrsæll Jóhannsson, Vestur-
götu 59, Akranesi. Lausnarorðið
er Hjálmholt. Verðlaunin eru
bókin ,,Árið 1979".