Þjóðviljinn - 11.09.1982, Blaðsíða 17
Helgin 11.-12. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
I
Húsakynni Iivíta hússins skoðuð
Hluti veislugesta. Hljómsvcit í baksýn
Vigdís í Hvíta húsinu
Bertil prins og Vigdís hcilsast
innilega. Haraldur krónprins
Norðmanna til vinstri.
Forsetarnir leika á als oddi í skrif-
stofu Bandaríkjaforseta, theOval
Office.
Mikið var um dýrðir í Hvíta
húsinu í Washington þegar for-
seti Bandaríkjanna bauð Vig-
dísi Finnbogadóttur til veislu
ásamt öðrum gestum frá Norð-
urlöndum. Gunnar Elísson,
ljósmyndari Þjóðviljans, fékk
að vera innan dyra allan tímann
og var hann eini fréttaljós-
myndarinn sem fékk leyfi til
þess. Hér á síðunni eru nokkrar
svipmyndir frá þessum atburði.
Gunnar sagði að heimsókn Vig-
dísar hefði vakið mikla athygli í
Bandaríkjunum og fengið umfjöll-
un íöllum fjölmiðlum. M.a. hefur
verið útvarpað viðtali við hana um
Bandaríkin og sjónvarpað var
beint frá blaðamannafundi með
henni og öðrurn fulltrúum Norður-
landa. I Washington Post birtist
m.a. nær heilsíðuviðtal við Vigdísi.
í dag, laugardag, verður opnun
„Scandinavia Today" í Minneapo-
lis sjónvarpað um öll Bandaríkin
en meðal viðstaddra verður vara-
forseti Bandaríkjanna. Þangað
kom Vigdís í gær og var tekið á
móti henni meðmikilli viðhöfn.
Albert Ouie, ríkisstjóri Minnes-
ota, tóku á móti henni á flugvellin-
um ásamt Birni Björnssyni ræðis-
manni (bróður Valdimars Björns-
sonar) en hann er af íslenskunt
ættum.
GFr
Myndir: gel
Bandarísku forsetahjónin, Ronald og Nancy Reagan taka á móti Vigdísi fyrir utan Hvíta húsifi.