Þjóðviljinn - 11.09.1982, Síða 23
Helgin 11.-12. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23
skah
Millisvœðamótið í Moskvu
Tal spáð velgengni
Á nýbyrjuðu millisvæðamóti
beinast augu flestra að ungstirninu
Harry Kasparov. Hann er lang-
stigahæsti kcppandi mótsins og
þykir af mörgum eiga víst sæti í
komandi Áskorendakeppni. En
málið er langtífrá einfalt. Mót eins
og t.d. millisvæðamótið eru mun
harðari keppni cn gcngur og gcrist.
Þar er barist til þrautar, hver ein-
asti skákmaður mætir til leiks eftir
marga vikna þjálfun og leggur allt í
sölurnar. Þá spilar það inní að til
þess að ná árangri þarf sterkar
taugar og oft á tíöum virðist Kasp-
arov leggja dálítið meira á sig en
gott þykir, boginn er spenntur til
hins ítrasta í hverri skák.
Keppendur eru auk Kasparovs
þeirTal, Beljavskí, Geller, Ander-
son, Sax, Gheorghiu, Sax,
Christiansen, Velimirovic, Ouint-
eros, G. Garcia. Murej, Van der
Wiel og R. Rodriquez.
Af þessum mönnum hafa aðeins
þeir Tal og Geller reynslu í
Áskorendakeppninni, jafnvel þó
svo fáir spái Geller mikíum frama í
mótinu.
Tal á hinn bóginn er jafn
óútreiknanlegur og fyrr. Hann
vann millisvæðamótið í Riga fyrir
þrem árum með geypilegum yfir-
burðum. hlaut 14 vinninga af 17
mögulegum og árangur hans uppá
síðkastið hefur verið hinn prýðileg-
asti. Þegar þetta er ritað er einni
umferð iokið af mótinu í Moskvu
og sigur Tals yfir Murej rennir
stoðum undir það hald mitt, að Tal
eigi alla möguleika á að komast í
gegn og í raun muni baráttan um
sætin tvö verða ein allsherjar bar-
átta mili hans. Kasparovs og Belja-
vskí.
Umsjón
Helgi
Ólafsson
Á undanförnum mánuðum hcf-
urTal tekiö þátt í tveim allsterkum
alþjóðlegum mótum. Hið fyrra fór
fram í Yerevan og hið síðara í Mos-
kvu. Moskvumótið hefur e.t.v.
ekki höfðað svo mjög til Tals því
honum hafði verið boðið á mun
sterkara mót, í Bugonjo í Júgósla-
Olympíulið kvenna
íslenska kvennasveitin að tafli á Olympíumótinu á Möltu fyrir tveim árum.
Áslaug er á 1. borði þá Ólöf og síðan Sigurlaug.
Guðlaug Þorsteinsdóttir tcflir nú að nýju með íslenska kvcnnalandsliðinu.
Hún tcfldi síðast á Olympíumótinu í Buenos Aires 1978.
Nú er orðið Ijóst hvernig íslenska
rennaliðið sem teflir á Olympíu-
lótinu í skák verður skipað. Vald-
• hafa verið fjórar konur til að
fla, en keppni á Ólympíumótinu
r fram á þrem borðum. Sveitin
;rður þannig skipuð: 1. borð:
uðlaug Þorsteinsdóttir 2. borð:
'löf Þráinsdóttir 3. horð: Sigur-
lug Friðþjófsdóttir 4. borð: Ás-
lug Kristinsdóttir.
Um síðustu helgi lauk Skákþingi
íslands í kvennaflokki. Mótiö hafði
ekki nein áhrif á val ólympíu-
liðsins, en það hafði verið valið
fyrir keppnina. Sjö keppendur
mættu til leiks og urðu þrjár efstar
og jafnar, Guðlaug Þorsteinsdóttir,
Ólöf Þráinsdóttir og Áslaug Krist-
insdóttir. Þær hlutu allar5 vinninga
af 6 mögulegum og munu heyja
aukakeppni um íslandsmeistaratit-
ilinn í október
víu þar sem Kasparov síðar vann.
Sovéska skáksambandið greip í
taumana og „lagði til" að Tal tefldi
í Moskvu til þess að venjast
loftslaginu fyrir millisvæðamótið!
I Yervan hlaut Tal 10 vinninga af
15 mögulegum og hreppti einn ef-
sta sætið. Hann tapaði einni skák
fyrir stigalægsta manni mótsins.
óþekktum Sovétmanni Eolian að
nafni.
í Moskvu deildi Tal svo efsta
sætinu með landa sínunt Vaganian.
Þeir hlutu báðir 9 vinninga úr 13
skákum. Jafnvel þó mótin hafi ekki
verið hópi þeirra sterkari, þá er
málum nú einu sinni háttað svo þar
eystra. að jafnvel tiltölulega stiga-
lágir skákmenn hafa vfir að ráða
gevsilega vfirgripsmikilli þekkingu
og eru þess utan vel þjálfaöir. Þaö
er því tómt mál að tala um að fá
auðvelda vinninga.
Það er ekki úr vegi að líta á tvær
skákir Tals frá þessum mótum og
þær skákir sem minna á gamla daga
þegar sóknardirfskan var hömlu-
laus. Fyrri skákin var tefld í Yere-
van, hin síðari í Moskvu:
Hvítt: M. Tal (Sovétríkin)
Svart: K. Grigorjan (Sovctríkin)
Enskur leikur
1. c4-e5 4. g3-Bb4
2. Rc3-Rf6 5. Rd5
3. Rf3-Rc6
(Leikur Kortsnojs. Hann bcitti
honum fvrst í einviginu við Karpov
í Baguio 1978.)
5* ••'d5 i(). cxd5-Rb4
6. Bg2-d6 n. d4-exd4
7. 0-0 0-0 12. Rxd4-Bxd4!?
8. e3-Bc5 13. exd4
9. b3-Rxd5
(Staðreyndin er sú að það er ekki
alveg víst að svartur græði mikiö á
því að gefa hvítum tvípeð á d- lín-
unni. Hvítur fær biskupaparið og
sóknarmöguleika á bakstætt peð
svarts á c7.)
13. ..He8?
(Nauðsynlegt og sjálfsagt var 13,-
Bf5. Svartur lendir þegar í afarerfi-
ðri aðstöðu eftir þennan lcik.)
14. a3-Ra6 16. b4-Rb8
15. Bd2-b6
(Riddarinn hyggst leita útgöngu í
gegnum d7 -reitinn. Það er
athyglisvert að jafnvel svo hógvær
áætlun nær ekki fram að ganga.)
17. bxa5-bxa5 19. Dh5!
18. Hel-a4
(á’ann! Svartur á ekkert svar við
útþenslustefnu hvíts kóngsmegin.)
19þ ..Bd7 21. Dh6-Df6
20. Be4-g6 22. Bg5-Dxd4
(eða 22.-Dg7 23. Dh4 með h<)tun-
inni 24. Bfb.)
23. Dh4-Dg7 24. Bh6-Dh8
25. Bf5’
(Svartur er glataður eftir þennan
leik. Hann getur í raun og veru
hvorki hreyft legg né liö.)
25. .. Dc3 28. Dd8!-gxf5
126. Hxe8+-Bxc8 29 Kfl!
kj. Hcl-De5
— Svartur gafst upp. Hann ræður
ekki xið hótunina 30. Hcl o.s.frv.
Það er talsverður munur á þeim Tal
sem teflir í dag og þeim sem fórnaði
uppá óvissuna á árunum í kringum
1960. í dag standast flestar Tal —
1. e4-c5 15. Bd4-Bc6
2. Rf3-d6 16. Dd3-dxe5
3. d4-cxd4 17. fxe5-Hd8
4. Rxd4-Rf6 18. Khl-Dd7
5. Rc3-e6 19. Hadl-f5
6. f4-a6 20. Rc3-Rc7
7. Be2-Be7 21. Bf3-Bxf3
8. 0-0-Rc6 22. Dxf3-Dc6
9. Be3-0-0 23. Bgl-g6
10. a4-Bd7 24. a5-Rd5
11. Rb3-ra5 25. Bb6-Hd7
12. e5-Re8 26. Rxd5-Hxd5
13. Rxa5-Dxa5 27. Hxd5-Dxd5
14. Re4-Dc7
Tal
fórnhnar, öfugt viö það sem aður
var!
'Síðari skákin fvlgir hér án athuga-
semda. Hún var tefld á Moskvu-
mótinu:
Hvítt: M. Tal (Sovétríkin)
Svart: Anikajcv (Sovétríkin)
Sikileyjarvörn
28. HdI!-Dxe5 33. Hel-Bc3
28. Dxb7-De2 34. Bc5-Hd8
30. Dd7-Bf6 35. Be7-Hdl
31. b4-Dxc2 36. Dc8+!
32. Dxe6+-Kh8
—Svartur gafst upp.
Borgarspítalinn
Lausar stöður á
Grensásdeild
Tvær stöður hjúkrunarfræðinga.
Vinnutími 7.30—12.00 alla virka daga.
Fjórar stöður sjúkraliða.
Dag og kvöldvinna.
Upplýsingar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra
simi 81200.
Reykjavík, 10. sept. 1982.
Borgarspitalinn
RIKISSPÍTALARNIR
lausar stödur
LANDSPiTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og LJÓS-
MÆÐUR óskast á Kvennadeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
29000.
SJÚKRALIÐI óskast í hlutastarf virka daga á
dagdeild öldrunarlækningadeildar. Upplýs-
ingar veitir hjúkrunarforstjóri i síma 29000.
STARFSMAÐUR óskast á barnaheimili Land-
spítalans við Engihlíð. Vinnutími frá kl. 14.30
til 19.00
Upplýsingar veitir forstöðumaður barna-
heimilisins í síma 29000 (591)
Vi FI LSSTAÐASPiTALI
MEINATÆKNIR óskast sem fyrst i hálft
starf á rannsóknastofu Vifilsstaðaspítala.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir i síma
42800
KLEPPSSPÍTALI
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast sem fyrst
eða eftir samkomulagi á ýmsar deildir spítal-
ans. Barnaheimili og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
38160
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á ýmsar
deildir spítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Klepps-
spítalans í síma 38160
RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS
AÐSTOÐARMAÐUR óskast við krufningar.
Upplýsingar veitir deildarstjóri krufninga í
síma 29000
Reykjavík, 12 september 1982
RÍKISSPÍTALARNIR