Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 9
Föstudagur 17. júni 1983 'ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 Ágúst Böðvarsson, Gunnar Ágústsson, Aage-Nielsen-Edwin með Reykjavíkurmöppuna, Haraldur Sigurðs- son og Nanna Hermannsson, borgarminjavörður. Karlmcnnirnir fjórir hafa allir unnið að útgáfu möppunn- ar og/eða uppsctningu og undirbúningi sýningarinnar á Reykjavíkurkortunum, sem bráðlega verður sett upp í Árbæjarsafni. - (Ljósm.-Leifur). Sumarstarfsemin hafín Sumarstarfsemi Árbæjarsafns er nú hafin og verður með svipuðu sniði í sumar og undanfarin ár. Að sögn Nönnu Hermannsson, borgarminjavarðar, koma árlega í safnið um 10 þúsund manns og kemur mest yfir sumartímann. Þó er opnað fyrir skólafólki og öðrum hópum yfir vetrartímann sé þess sérstaklega óskað, og komu 1,840 skólabörn í safnið síðastliðinn vetur. Miklar framkvæmdir eru á safn- svæðinu vegna skipulagsbreytinga og rísa nú íbúðarhverfi á holtinu norðan við safnið. Aðkoma að safninu er nú frá Höfðabakka en einnig er hægt eins og áður að aka Rafstöðvarveg að safninu. Nú er í undirbúningi á vegum Sýning á Reykjavíkur- kortum og gönguferðir um Elliðaárdalinn meðal nýmæla Árbæjarsafns sýning á Reykjavík- urkortum í tilefni þess, að nýlega gaf safnið út möppu með fjórum Reykjavíkurteikningum, sem Aage-Nielsen-Edwin gerði eftir gömlum Reykjavíkuruppdráttum. Listamaðurinn Aage-Nielsen- Edwin er fæddur í Kaupmanna- höfn en hefur verið búsettur á ís- landi frá 1946. Teikningar hans af Reykjavíkuruppdráttum hafa áður verið gefnar út, en þá stærri en nú er. Hver mappa mun kosta eitt þús- und krónur. Annað á döfinni hjá Árbæjarsafni eru gönguferðir um Elliðaárdalinn, sem safnið mun efna til í samvinnu við umhverfism- álaráð Reykjavíkur. Göngu- ferðirnar hefjast við Árbæjarsafn og gengið verður um alinn að safn- inu aftur. Fyrsta ferðin verður farin n.k. sunnudag og hefst klukkan 14.00. Hún tekur u.þ.b. klukku- stund og leiðsögukona verður Sig- rún Helgadóttir, sem vinnur hjá Náttúruverndarráði. Árbæjarsafn er opið alla daga, nema mánudaga, frá klukkan 13.30-18.00. Aðgangseyrir er 40 krónur fyrir fullorðna, 20 krónur fyrir 12-16 ára og frítt fyrir börn undir 12 ára aldri. Aldraðir og ör- yrkjar fá einnig ókeypis aðgang að safninu. ast Þjóðhátíð Reykjavík DAGSKRA 17.JÚNÍ 1983 I. DAGSKRÁIN HEFST: Kl. 09:55 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík. Kl. 10:00 Forseti borgarstjórnar, Markús Örn Antonsson, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiöi Jóns Sigurðssonar í kirkjugaröinum v/Suöurgötu. Lúörasveitin Svanur leikur: Sjá roöann á hnúkunum háu. Stjórnandi: Kjartan Óskarsson. II. VIÐ AUSTURVÖLL: Lúörasveitin Svanur leikur ættjaröarlög á Austurvelli. Kl. 10:40 Hátíöin sett: Kolbeinn H. Pálsson, formaöur ÆskulýÖsráðs Reykja- víkur. Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri: Páll P. Pálsson. Forseti Islands, Vigdís Finn- bogadóttir, leggur blómsveig frá íslensku þjóöinni aö minnisvaröa Jóns Sigurössonar á Austurvelli. Karlakór Reykjavíkur syngur þjóösönginn. Ávarp forsætisráöherra, Steingríms Hermannssonar. Karlakór Reykjavíkur syngur: Island ögrum skoriö. Ávarp fjallkonunnar. Lúörasveitin Svanur leikur: Ég vil elska mitt land. Kynnir: Rafn Jónsson. Kl. 11:15 GuÖsþjónust^ í Dómkirkjunni. Prestur séra Valgeir Ástráösson Dómkórinn syngur. Marteinn H. Friöriksson leikur á orgel. Einsöngvari: Sigríöur Ella Magnúsdóttir. III. HJÚKRUNAR- OG ÖLDRUNARSTOFNANIR: Kl. 10:00 Vestur-íslenskur karlakór syngur viö Elli- og hjúkrunarheimiliö Grund. (Karlakórinn Vesturbræöur). Kl. 13:30 Skólalúörasveit Árbæjar og Breiöholts leikur viö Hrafnistu. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson. Kl. 14:15 Skólalúörasveit Árbæjar og BreiÖholts leikur viö þjónustu- íbúðir aldraðra viö Dalbraut. Kl. 15:30 Skólalúörasveit Árbæjar og Breiöholts leikur viö Droplaugar- staöi. IV. BIFREIÐAAKSTUR: Kl. 14:00 Akstur gamalla bifreiöa. Félagar úr Fornbílaklúbbi islands aka bifreiöum sínum vestur Miklubraut og Hringbraut og umhverfis Tjörnina og síöan aö Melavelli. Kl. 14:30 Akstursþrautakeppni á Melavelli í samvinnu viö Bindindisfélag ökumanna. V. HLJÓMSKÁLAGARÐUR: Kl. 14:00-18:00 Félagar úr skátahreyfingunni sýna tjaldbúöar- og útistörf. Barna- og fjölskylduleikir. Kl. 14:30 Félagar úr glímu- og íþrótta- félögum í Reykjavík sýna glímu. Kl. 15:00 Oslo Handverker sangforening syngur. VI. i LÆKJARGÖTU: Kl. 14:30 Jasshljómleikar á Lækjartorgi. Hljómsveitin b 5 leikur. Kl. 14:30 Friörik Ólafsson og Guömundur Sigurjónsson tefla á útitaflinu í Lækjargötu. Kl. 15:00 Vestur-íslenski karlakórinn Vesturbræöur syngur viö Menntaskólann í Reykjavik. VII. FJÖLSKYLDUSKEMMTUN: Kl. 15:00 Safnast saman viö Hlemmtorg. Kl. 15:20 Skrúöganga frá Hlemmtorgi, gengiö niöur Laugaveg, Banka- stræti og Ingólfsstræti á Arnarhól. Lúörasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Stefáns Þ. Stephen- sens. Skátar ganga undir fánum og stjórna göngunni. Félagar úr Félagi tamningarmanna taka þátt í göngunni með hesta sína. Stjórnandi: Sigurbjórn Báröarson. Kl. 16:00 Dagskrá á Arnarhóli: Umsjón Klemenz Jónsson. Kynnir: Gunnar Eyjólfsson Meöal þátttakenda: Siguröur Sigurjónsson og Randver Þorláks- son, Hljómsveitin Hrím, Félagar úr leikhúsinu ..Svart og sykurlaust", Aðalsteinn Bergdalog Ragnheiöur Steindórsdóttir, Guöni Þ. Guðmundsson og fleiri óvæntir gestir. VIII. GÖTULEIKHÚS: Kl. 17:00 Götuleikhús á Lækjartorgi, í Austurstræti og víöar. Leikhúsiö „Svart og sykurlaust". 17.JÚNÍ I1983 IX. KVÖLDSKEMMTUN: „Við byggjum leikhús" Kl. 20:00 Safnast saman viö nýja Borgar- leikhúsið í Kringlumýri. Kl. 20:15 Skrúöganga frá Borgarleikhúsinu Gengiö verður Kringlumýrar- braut, inn Sigtún aö Laugardals- höll. Leikarar og starfsmenn Leikfélags Reykjavíkur ganga fyrir göngunni og stjórna. Lúörasveit verkalýösins leikur undir stjórn Ellerts Karlssonar. Kl. 21:00 Kvöldskemmtun í Laugardalshöll: Leikarar og starfsmenn Leikfélags Reykjavíkur flytja söng og leik- atriði um borgarlífiö. Einnig verða sungnir söngvar úr leikverkum sem sýnd hafa verið í Iðnó. Höfundar: Kjartan Ragnarssonog Jón Hjartarson. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Tónlistarstjórn: Siguröur Rúnar Jónsson. Flytjendur: Sigríöur Hagalín, Jón Sigurbjörnsson, Margrét Ólafs- dóttir, Steindór Hjörleifsson, Aöalsteinn Bergdal, Guömundur Pálsson, Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Jón Hjartarson, Soffía Jakobsdóttir, Jóhann Siguröar- son, Valgeröur Dan, Þorleikur Karlsson. GuÖrún Ásmundsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Ragnheiöur Steindórsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Hanna Maria Karls- dóttir, Karl Ágúst Úlfsson, Guörún Þorvarðardóttir og Edda Bachmann. Hljóöfæraleikarar: Jóhann G. Jóhannsson og Tómas Einarsson X. KVÖLDDANSLEIKUR: Kl. 21:30 Hljómsveitin Galdrakarlar leikur á Lækjartorgi og hljómsveitin KIKK leikur í Lækjargotu. Dagskránni lýkur kl. 02:00. Æskulýösráö Reykjavíkur SMÁVÖRUR ÚR FURU I MIKLU URVALI FUPUHUSÍÐ HF. SUÐURLANDSBRAUT 30 105 REYKJAVÍK «8:86605

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.