Þjóðviljinn - 02.09.1988, Blaðsíða 3
Polarbjór
f Venezuela
Bruggarar í Venezuela hafa framleitt polarbjór síðan 1948. íslenski
Polarbjórinn nokkrum árum eldri
Eins og sjá má eru miðarnir á fiöskunum mjög áþekkir.
ísbjörn norðursins á jaka.
„Ég var á göngu í Porto
Capello og stoppaöi við ís- og
bjórvagn til þess aö fá mér
einn bjór. Þar var ungt fólk
sem ég spjallaði viö og það
vildi endilega bjóöa méF góö-
an bjór, en það var dós af Pol-
arbjór. Mig rak í rogastans og
sagöi fólkinu að þessi bjór
væri framleiddur á íslandi.
Fólkið harðneitaði því og
sagði Polarbjórinn vera stolt
bruggara í Venezuela."
Baldur Sveinbjörnsson stýri-
maður sigldi í vor til nokkurra
landa Mið- og Suður-Ameríku
með flutningaskipinu Heru Borg.
M.a. var stoppað í Venezuela og
þar kynntist hann þessu stolti
bruggara þar í landi. Baldur tók
nokkrar flöskur af bjórnum með
til íslands og einsog sjá má á
myndinni er miðinn á flöskunni
mjög áþekkur þeim sem er á
bjórnum frá Agli Skallagríms-
syni. Aftan á flöskunni stendur
að nafnið sé skrásett vörumerki
frá 1948.
Jóhannes Tómasson, forstjóri
Egils Skallagrímssonar, sagðist
Baldur Sveinbjörnsson stýrimaður með Polarbjórinn góða frá Venezuela.
kannast við þennan bjór, en benti
hinsvegar á að íslenski Polarbjór-
inn væri eldri en sá frá Venezu-
ela. Þeir hefðu framleitt hann frá
1942. Pá sagði Jóhannes að Norð-
menn hefðu um tíma framleitt
bjór sem þeir kölluðu Polarbjór.
Jóhannes taldi ekki líklegt að
málaferli gætu spunnist út af
þessu. Hann sagði að mjög lítið
væri selt af bjórnum erlendis, ör-
lítið þó til Evrópulanda. Hann
benti á að nafninu á bandaríska
bjórnum Budweiser væri stolið
frá Tékkóslóvakíu, en þar hefði
Budweiserbjór verið framleiddur
mun lengur en í Bandaríkjunum.
Bandarísku bjórframleiðendurn-
ir fóru í mál við tékknesku
bruggarana og töpuðu því máli
þótt bandaríska nafnið væri skrá-
sett vörumerki.
Baldur sagði að Polarbjórinn
frá Venezuela væri mun betri en
sá íslenski, auk þess sem hann
vafrí miklu ódýrari, en ein flaska
af þessum bjór kostar um sex
krönur út úr búð, hinsvegar er
talað um að bjórflaskan muni
kosta um 150 krónur hér.
„Það var engin spurning um
það að Polarbjórinn virtist lang
vinsælastur á krám í Venezuela,
en níu af hverjum tíu drukku
þennan bjór,“ sagði Baldur.
Nú er bara að sjá hvort íslenski
Polarbjórinn verður jafn vinsæll
hér og nafni hans í Venezuela.
Eða ætlar Egill að kalla bjórinn
sinn einhverju öðru nafni? T.d.
Egill sterka?
„Það er of snemmt að segja
neitt um það á þessu stigi máls-
ins,“ sagði Jóhannes með „stæl“
stjórnmálamannsins og hló við.
-Sáf
Litlir kærleikar
hjá KEA
Valur Arnþórsson kaupfé-
lagsstjóri KEA er nú byrjaður
að laka til á skrifborðinu sínu
en hann mun láta' af störfum
hja kaupfélaginu innan tíðar
og búa sig undir flutning til
Reykjavíkur þar sem banka-
stjórastóll í Landsbankanum
bíður hans.
Margir Norðlendingar, sem
hefur þótt stjórnsemi Vals hel-
sti of mikil í atvinnu- og byggð-
amálum á svæðinu, eru farnir
að horfa til bjartari tíðar og
segjast eiga von á liprari og
betri samskiptum við nýja
kaupfélagsstjórann Magnús
Gauta Gautason sem nú er
að ganga frá ráðningarmálum
sínum við stjórn KEA.
Heimildir norðan heiða
segja að Valur sé lítt sáttur við
að Magnús verði ráðinn og
þyki embætti kaupfélagsstjó-
rans setja ofan þegar bókar-
inn á kontórnum tekur við. Til
sannindamerkis segja menn
athyglisvert að þegar þeir Val-
ur og Magnús áttu leið um Ak-
ureyrarflugvöll á dögunum á
sama tíma, annar að fara
suður og hinn að koma að
sunnan, tók Valur stóran
sveig framhjá Magnúsi og yrti
ekki á hann.B
Ásmundur
undir feldi
Það þykir snúið að vera
verkalýðsleiðtogi í ASÍ þessa
daga, - og ekki síst að vera
Ásmundur Stefánsson.
Meirihlutinn sem myndaðist í
Alþýðusambandinu á
Thoroddsen-árunum er að
gliðna, og stuðningsmenn nú-
verandi stjórnar að hópast
saman. Alþýðubandalags-
mennirnir eru ásamt ýmsum
óháðum og órólegum lítið
hrifnir af niðurfærslu sem byrj-
ar í launaumslögunum, en
innan verkalýðsarmsins þar
eru líka deildar meiningar. í
þessari stöðu liggur Ásmund-
ur undir feldi einsog fleiri
Allaballa-leiðtogar innan ASÍ.
Á að vera með stjórnarliðinu,
hætta á misklíð meðal Alla-
balla í ASÍ og husanlega mjög
minnkuð áhrif í valdastöðum,
til dæmis forsetasætinu, -
eða á að standa upp með All-
aballaliðinu og hætta þarmeð
á klofning og nýjan meirihluta,
- sem mundi kosta skrifstofu-
djobbið á Grensásveginum,
bankafáðsstólinn í Alþýðu-
banka og svo framvegis. Það
er ögurstund hjá Ásmundi,
sem hefur í fyrsta sinn í
langan tíma haft frumkvæði
að fundi verkalýðsarms Alla-
balla nú á laugardaginn...B
lan Ross
í Garðabæinn
KR-ingum hefur ekki
gengið eins vel í boltanum í
sumar og vonast var til í Vest-
urbænum, hafa misst bæði af
meistaratitlinum og bikarnum,
og mjög tvísýnt er um að þeir
nái Evrópusætinu. Ýmsir
Vesturbæingar eru farnir aö
hugsa misjafnlega til þjálfa-
rans, lans Ross, - en síðasta
sagan segir að Ross ætli að
venda sínu kvæði í kross og
sé förum í Garðabæinn til að
þjálfa meistaraflokk Stjörn-
unnar á næsta tímabili en fé-
lagið er búið að tryggja sér rétt
til að leika í 2. deild næsta
sumar. Ekki er búist við öðru
en að Garðbæingar borgi
þjálfaranum vel en óneitan-
lega er það viss álitshnekkir
fyrir Ross að þjálfa í 2.
deildinni þegar þess er gætt
að hann var áður þjálfari Vals-
ara, (slandsmeistaranna í
fyrra. Það er upp og ofan að
vera knattspyrnuþjálfari...B
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
IÐNLANASJOÐUR
FLYTUR í
ÁRMÚLA 7
Um helgina flytjum viö í ný húsakynni að
Ármúla 7. Hentugt húsnæöi og bætt vinnuaðstaöa
auðvelda okkur aö ná settum markmiðum í þjón-
ustu við íslenskt atvinnulíf.
Og nú verður ólíkt þægilegra að sækja okkur
heim. I Ármúlanum eru næg bílastæði og uppi á
þriðju hæðinni fer vel um viðskiptavinina meðan
þeir sinna erindum sínum við okkur.
Gjörðu svo vel að hafa samband við okkur ef
þú óskar upplýsinga um starfsemi Iðnlánasjóðs.
NÝTT SÍMANÚMER
IÐNLÁNASJÖÐUR
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVlK, SÍMI 680400